loading/hleð
(17) Blaðsíða [15] (17) Blaðsíða [15]
flutti í fyrstu frumvarp til laga um jafnlaunadóm. Jafnlauna- rá6 er skipaó 5 mönnum. Formaður er Guörún Erlendsdóttir, hæsta- réttarlögmaóur. 1973 Lög um hlutdeild ríkisins í hyggingu og rekstri dagvistunarheimila fyrir börn ganga í gildi x apríl 1973. Á meðan frumvarpið var til umræðu á Alþingi söfnuðu Öur og aðrar kvenréttindafélagskonur ásamt rauðsokkum undirskriftum málinu til stuðnings. Lagt var fram á Alþingi frumvarp til laga um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemis- aðgerðir. Mjög miklar umræður og skrif í blöðum og tímaritum urðu um "fóstureyðingafrumvarpið", eins og það var kallað. 1974 Með lögum um skólakerfi, 21. maí 1974, er ákveðið: "í öllu starfi skóla skulu konur og karlar njóta jafnréttis í hvívetna, jafnt kennarar sem nemendur." Tvær nefndir voru á árinu 1974 settar á laggirnar til þess að vinna að framkvæmdum á kvennaárinu 1975. Snemma árs stofnuðu Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna ásamt nokkrum öðrum kvenfélögum kvennaársnefnd. í júnímánuði settu Kvenfélaga&amband íslands, Kvenréttindafélag íslands, Kvenstúdentafélag íslands, Félag háskólakvenna, Rauðsokkahreyfingin og Félag sameinuðu þjóðanna á íslandi samstarfsnefnd vegna kvennaársins. Menntamálaráðuneytió skrifaði nokkrum kvennasamtökum bréf í ágústmánuði 1974, og óskaði eftir tillögum um verkefni á kvenna- árinu að því leyti er varðar verksvið ráðuneytisins. (Húsfreyjan, 3. tbl. 1974). Auður Eir Vilhjálmsdóttir var vígð til prests 29. september 1974, fyrst kvenna á íslandi. Frá 1911 hafa íslenskar konur haft laga- legan rétt til kirkjulegra embætta sem og annarra, en þrátt fyrir það kom í ljós, að enn eru til menn í prestastétt, sem telja að íslenska kirkjan sé komin á villigötur, fyrst kona er vxgð til prestsþjónustu. Nokkur blaðaskrif og skoðanaskipti urðu um málið. 1975 Kvennasögusafn íslands var stofnað 1. janúar 1975, á fyrsta degi alþjóðakvennaárs Sameinuðu þjóðanna. í ársbyrjun voru fyrirhuguð verkefni á vegum samstarfsnefndarinnar frá júní 1974 kynnt í fjölmiðlum, svo sem hátíðahöld, ráðstefnur, sýningar og útvarpserindi. Forsætisráðuneytið tilkynnti í janúarmánuði, að ríkisstjórnin hafi ákveðið að skipa nefnd, sem kallist kvennaársnefnd, og rétt til að tilnefna fulltrúa í nefndina eiga þessi félög: Kvenfélagasamband íslands (tvo fulltrúa), Kvenstúdentafélag íslands og Félag háskóla- kvenna (einn fulltrúa sameiginlega), Kvenréttindafélag íslands, Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna, Rauðsokkahreyfingin og Félag sameinuöu þjóðanna (einn fulltrúa hvert). (19. júní 1975, bls. 36-37). Kvennaársnefndin var skipuð í júní 1975, og er for- maður hennar Guðrún Erlendsdóttir hæstaréttarlögmaður. Norðurlandaráð hélt fund í Reykjavík í febrúarmánuði. Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður, var kosin forseti ráðsins. Hér verður helstu viðburða kvennaársins 1975 getið. (Helstu heim- ildir eru dagblöðin í Reykjavík). Ráðstefnur, hátiðahöld óg'fundir: 1975 Fyrsta kvennaársráðstefnan var x Reykjavík í janúarmánuði. Að ráð- stefnunni stóð Rauðsokkahreyfingin ásamt nokkrum verkalýðsfélögum og fjallaði hún um kjör laglaunakvenna. í febrúar var ráðstefna utn dagvistun barna og forskólanám. Fóstru- felag íslands og Rauðsokkahreyfingin gengust fyrir þessari ráðstefnu.
(1) Kápa
(2) Kápa
(3) Blaðsíða [1]
(4) Blaðsíða [2]
(5) Blaðsíða [3]
(6) Blaðsíða [4]
(7) Blaðsíða [5]
(8) Blaðsíða [6]
(9) Blaðsíða [7]
(10) Blaðsíða [8]
(11) Blaðsíða [9]
(12) Blaðsíða [10]
(13) Blaðsíða [11]
(14) Blaðsíða [12]
(15) Blaðsíða [13]
(16) Blaðsíða [14]
(17) Blaðsíða [15]
(18) Blaðsíða [16]
(19) Blaðsíða [17]
(20) Blaðsíða [18]
(21) Blaðsíða [19]
(22) Blaðsíða [20]
(23) Blaðsíða [21]
(24) Blaðsíða [22]
(25) Blaðsíða [23]
(26) Blaðsíða [24]
(27) Blaðsíða [25]
(28) Blaðsíða [26]
(29) Blaðsíða [27]
(30) Blaðsíða [28]
(31) Blaðsíða [29]
(32) Blaðsíða [30]
(33) Blaðsíða [31]
(34) Blaðsíða [32]
(35) Blaðsíða [33]
(36) Blaðsíða [34]
(37) Kápa
(38) Kápa
(39) Kvarði
(40) Litaspjald


Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna

Ár
1976
Tungumál
Íslenska
Efnisorð
Blaðsíður
38


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna
http://baekur.is/bok/beea5a70-f328-4b60-80be-af7ecf755aa3

Tengja á þessa síðu: (17) Blaðsíða [15]
http://baekur.is/bok/beea5a70-f328-4b60-80be-af7ecf755aa3/0/17

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.