loading/hleð
(19) Blaðsíða [17] (19) Blaðsíða [17]
1975 í Neskaupstað í aprílmánuði var ráðstefna um kjör kvenna í sjávar- þorpum og til sveita. Aðalráðstefna kvennaársins var haldin á vegum nefndanna, sem settar voru á stofn 1974. Ráðstefnan var formlega sett á hátíðafundi kvennaársins í Háskolabíöi 14..jání, en sjálf ráðstefnan var haldin 20.-21. júní á Hotel Loftleiðum. Fjöldamargar samþykktir komu frá ráðstefnunni. Ein þeirra var áskorun til kvenna um að taka sér frí frá störfum á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október 1975 til að sýna fram á mikilvægi starfa sinna. (Allar áskoranir og ályktanir ráðstefnunnar, svo og niðurstöður starfshópa voru fjölritaðar. Til í Kvennasögusafni íslands). Mikill fjöldi "kvennaársfunda" var haldinn um land allt, hjá héraðs- samböndum kvenfélaga, einstökum kvenfélögum og jafnvel hjá félögum karla. Sumir fundanna voru venjulegir umræðufundir, en aðrir há- tíðafundir með ræðuhöldum og alvöruþrungnum skemmtiatriðum. Alþjóðakvennadaginn 8. mars héldu Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna hátíðlegan í Norræna húsinu. Á dagskránni var m.a. þáttur, sem bar heitið: "Konan sem hvarf", en það voru brot úr íslenskum bókmenntum síðasta áratugs. Hátíðafundur kvennaársins var haldinn í Háskólabíói 14. júní 1975. Ræðumaður var Eva Kolstad frá Noregi. (Ræðan er í Húsfreyjunni, 3. tbl. 1975). Eitt dagskráratriða var um vinnandi konur á Islandi fyrr og nú: "Stóðu meyjar að meginverkum". Þessi þáttur, og eins "Konan sem hvarf", var fluttur af leikurum, en háskólanemar tóku þá báða saman. Þátturinn "Stóðu meyjar að meginverkum" var fluttur í útvarpinu sunnudaginn 18. október 1975. (Ljósrit af þættinum er til í Kvennasögusafni íslands). Helvi Sipila, aðalframkvæmdastjóri alþjóðakvennaársins á vegum Sameinuðu þjóðanna, talaði á fundi í Norræna húsinu í ágústmánuði. Kvennaársráðstefna á vegum Alþýðusambands íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja var haldin í Munaðarnesi í Borgarfirði 26.-28. september 1975. (Ötdrættir úr erindum og önnur fjölrituð plögg frá ráðstefnunni eru til í Kvennasögusafni íslands). Á vegum Sameinuðu þjóðanna var ráðstefna haldin í Mexikó í júní- mánuði. íslenska ríkisstjórnin sendi þrjá fulltrúa, sem tilnefndir voru af rxkisskipuðu kvennaársnefndinni: Auði Auðuns, Sigríði Thorlacius og Vilborgu Harðardóttur. 1 Austur-Berlín var önnixr alþjóðaráðstefna haldin í tilefni kvenna- ársins. Þessi ráðstefna var opin félagasamtökum og einstaklingum. Frá íslandi fóru fimrn konur á vegum Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna og fleiri félaga. Helvi Sipila flutti ávarp á báðum ráðstefnunum. Sýningar x tilefni kvennaársins: 1975 Á yegum Norræna hússins, Félags íslenskra myndlistarmanna og Menn- ingar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna var sýning x marsmánuði á margs konar listaverkum kvenna, "Listiðja í dagsins önn - Kvennavinna", var heiti farandsýningar á munum og klæðnaði frá Færeyjum, Grænlandi, íslandi, Álandi og frá Sömum. Samstarfsnefnd íslensku kvennasamtakanna átti frumkvæði að því að halda sýninguna, en hún var gerð á kostnað norræna menningarsjóðsins og með' styrk frá menntamálaráðuneytinu. Sýn- ingin var fyrst sett upp í Reykjavík, en síðan í Neskaupstað, Egilsstöðum, Akureyri, ísafirði og Patreksfirði, áður en hún var send til hinna landannaj Listasafn íslands hafðiiallt sumarið 1975 sýningu á þeim lista- verkum kvenna, sem til voru í eigu þess. Margar aðrar sýningar með listaverkum kvenna (bæði einkasýningar og samsýningar) voru haidnar á árinu, t.d. á verkum Eyborgar Guðmunds-
(1) Kápa
(2) Kápa
(3) Blaðsíða [1]
(4) Blaðsíða [2]
(5) Blaðsíða [3]
(6) Blaðsíða [4]
(7) Blaðsíða [5]
(8) Blaðsíða [6]
(9) Blaðsíða [7]
(10) Blaðsíða [8]
(11) Blaðsíða [9]
(12) Blaðsíða [10]
(13) Blaðsíða [11]
(14) Blaðsíða [12]
(15) Blaðsíða [13]
(16) Blaðsíða [14]
(17) Blaðsíða [15]
(18) Blaðsíða [16]
(19) Blaðsíða [17]
(20) Blaðsíða [18]
(21) Blaðsíða [19]
(22) Blaðsíða [20]
(23) Blaðsíða [21]
(24) Blaðsíða [22]
(25) Blaðsíða [23]
(26) Blaðsíða [24]
(27) Blaðsíða [25]
(28) Blaðsíða [26]
(29) Blaðsíða [27]
(30) Blaðsíða [28]
(31) Blaðsíða [29]
(32) Blaðsíða [30]
(33) Blaðsíða [31]
(34) Blaðsíða [32]
(35) Blaðsíða [33]
(36) Blaðsíða [34]
(37) Kápa
(38) Kápa
(39) Kvarði
(40) Litaspjald


Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna

Ár
1976
Tungumál
Íslenska
Efnisorð
Blaðsíður
38


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna
http://baekur.is/bok/beea5a70-f328-4b60-80be-af7ecf755aa3

Tengja á þessa síðu: (19) Blaðsíða [17]
http://baekur.is/bok/beea5a70-f328-4b60-80be-af7ecf755aa3/0/19

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.