loading/hleð
(31) Blaðsíða [29] (31) Blaðsíða [29]
Breytt 1951: Fæéingarstyrkur jafn til allra, 600 kr., en ogift móðir fær 300 kr. í 3 mánuði endurkræfan styrk hjá föðurnum. í lögum 1971 er upphæðin alls 9.000,00 kr., og fæðingarstyrkinn tekur sjúkrahúsið. 1949 A Alþingi 1948-49 flutti Hannibal Valdimarsson frumvarp til laga um réttindi kvenna. 2. gr. "Konur skulu njóta algerlega sama réttar í atvinnumálum og fjármálum sem karlar, og er óheimilt að setja nokkrar takmarkanir á val kvenna til þátttöku í nokkrum störfum. Skylt er að gera sérstakar ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til þess, að staða konunnar sem móður til þátttöku í atvinnu- lífi þjóðarinnar verði sem best tryggð." Frumvarpið fékk mjög furðulega afgreiðslu, og síðast var fellt að vxsa málinu til 3. umræðu. (Melkorka, 1. h. 1949 - Svava Þórleifsdóttir. Alþingi og réttindi kvenna. Syrpa, 3. h. 3. árg. maí 1949, grein eftir Hannibal Valdimarsson). 1954 Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 38 14. apríl 1954. í lok 3. gr. segir: "Konur og karlar hafa jafnan rétt til opinberra starfa og til sömu launa fyrir sömu störf." (Með þessum lögum var felld úr gildi 3. gr. laganna frá 1911 "Til allra embætta o.s.frv."). 25. gr. laganna: "Konur, sem veita heimili forstöðu, eiga rétt til þess að vinna tvo þriðju hluta ákveðins vinnutíma gegn samsvarandi frádrætti í launum, enda megi slíkt verða að skaðlausu. Samsvarandi íviljunum má og öðrum veita, er sérstaklega er farið, svo sem vegna heilsuveilu." 17. gr. laganna: "Ákveða skal með reglugerð, hvernig fari um launa- greiðslur til starfsmanna í veikindaforföllum svo og til kvenna í fjarvistum vegna barnsburðar." Reglugerð um orlof og veikindaforföll starfsmanna ríkisins 87/1954. 11' grein: "Vegna barnsburðar skal kona eiga rétt á að vera fjarverandi með fullum launum í samtals 90 daga. Séu lengri frá- tafir nauðsynlegar að dómi lækna, skal meta þær eftir ákvæðum um veikindadaga, sbr. 6. gr." 1955 Kvennaráðstefna ASÍ 22.-23. janúar 1955. Ályktanir m.a. um algert jafnrétti kvenna og karla í launa- og kjaramálum. (19. júní 1955, bls. 26). Verslunarmannafélag Reykjavíkur verður hreint launþegafélag. 1945 voru þrjár launþegadeildir settar á stofn, og fyrsti heildar- samningur um kaup og kjör verslunarmanna var gerður 1946. (Versl- unarmannafélag Reykjavíkur 70 ára, 1961, bls. 29 og 32-35). Ný lög um laun starfsmanna ríkisins, nr. 92 24. des. 1955. Konur skrifa mikið um þau lög, þ.e. launajafnréttið í framkvæmd. (Ásgarður 1958 og 1960. 19. júní 1956 og 1957). 1958 Auglýsing um fullgildingu á samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunar- innar, nr. 100, um jöfn laun karla og kvenna fyrir jafnverðmæt störf, nr. 12 10. mars 1958. (Stjórnartíðindi). Breyting á skattalögum, lög um tekjuskatt nr. 36 29. maí 1958, er á þann veg, að skattar hindra konur ekki lengur til að afla sér tekna í atvinnulífinu, eftir giftingu. Eiginmaðurinn fær 50% frá- drátt af tekjum konu sinnar, áður en skattgjald er lagt á hann. Áður varð hann að borga skatt af öllum tekjum hennar eftir mjög bröttum skattstiga. 1960 Margrét Sigurðardóttir flytur á Alþingi frumvarp til laga um fæð- ingarorlof í 90 daga fyrir konur, sem taka laun fyrir vinnu sína. Skyldu allir atvinnurekendur greiða í sjóð, sem væri undir stjórn Tryggingaráðs. í greinargerð kemur fram, að Starfsstúlknafélagið Sókn og Fóstrufélagið hafa fengið fæðingarorlof handa konum, sem komnar eru á full laun í starfsgrein sinni. Frumvarpið var flutt
(1) Kápa
(2) Kápa
(3) Blaðsíða [1]
(4) Blaðsíða [2]
(5) Blaðsíða [3]
(6) Blaðsíða [4]
(7) Blaðsíða [5]
(8) Blaðsíða [6]
(9) Blaðsíða [7]
(10) Blaðsíða [8]
(11) Blaðsíða [9]
(12) Blaðsíða [10]
(13) Blaðsíða [11]
(14) Blaðsíða [12]
(15) Blaðsíða [13]
(16) Blaðsíða [14]
(17) Blaðsíða [15]
(18) Blaðsíða [16]
(19) Blaðsíða [17]
(20) Blaðsíða [18]
(21) Blaðsíða [19]
(22) Blaðsíða [20]
(23) Blaðsíða [21]
(24) Blaðsíða [22]
(25) Blaðsíða [23]
(26) Blaðsíða [24]
(27) Blaðsíða [25]
(28) Blaðsíða [26]
(29) Blaðsíða [27]
(30) Blaðsíða [28]
(31) Blaðsíða [29]
(32) Blaðsíða [30]
(33) Blaðsíða [31]
(34) Blaðsíða [32]
(35) Blaðsíða [33]
(36) Blaðsíða [34]
(37) Kápa
(38) Kápa
(39) Kvarði
(40) Litaspjald


Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna

Ár
1976
Tungumál
Íslenska
Efnisorð
Blaðsíður
38


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna
http://baekur.is/bok/beea5a70-f328-4b60-80be-af7ecf755aa3

Tengja á þessa síðu: (31) Blaðsíða [29]
http://baekur.is/bok/beea5a70-f328-4b60-80be-af7ecf755aa3/0/31

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.