loading/hleð
(15) Blaðsíða 13 (15) Blaðsíða 13
13 athugaður nægilega, hlýtur hver maður að spyi’ja: Hverju sæta býsn þessi, og hvernig má þau þýða? Hvað veldur því, að 1 ö g f r æ ð i n g u r, h a g f r æ ð- mgur og verzlunarfræðingur, er mynda stjóm bankans, leyfa sér að bjóða mönnum annað eins og þennan kaupsamning, aðra eins óhæfu ? Myndu þeir sjálfir vilja eignast húseign með þessum kjörum? Mest firnar mig, að lögfræðingur skuli vera við riðinn þessi undur. Hann ætti þó að vita, að hann lifir enn 1 þjóðfélagi, er ennþá hef- ir friðhelgi eignarréttarins, sem eitt hinna æðstu boðorða í stjórnarskrá sinni. — En eignarréttur þess- ara húsakaupunauta Landsbankans er ekki friðhelg- ur samkvæmt samningunum. Hann er ófriðhelgur og meira en það. — Eg geri ráð fyrir, að mér verði svarað því, að enginn maður sé neyddur til þess að rita undir slíkan samning, en þá svara eg fyrst og fremst því til, að neyð er enginn kaupmaður, og fá vandræði verri en húsnæðisskortur, og eg geri alls ekki ráð fyrir, að nokkur maður hafi ritað undir samninginn af öðrum ástæðum en húsnæðisneyð. — Liggur því við að segja megi, að bankinn hafi notað sér neyð þessara manna, þó ekki verði sagt, að hann hafi gert það í hagsmunaskyni, því fremur hlýtur þetta að hafa orðið honum til tjóns en gróða. Má ætla, að hann hefði mátt fá hærra verð fyrir húsin, ef kaupendurnir hefðu verið frjálsir að eign sinni. Nú er eg kominn að því, að gera tilraun til þess að svara spumingum þeim, sem eg hefi sett fram fyrir skemstu og skýra háttalag bankans um þessa hluti, og skýringin er í fám orðum sú, sem eg drap á fyr í


Landsbankinn og bolchevisminn

Ár
1923
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
18


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Landsbankinn og bolchevisminn
http://baekur.is/bok/90d1e3f8-d9e3-44a2-b897-8312d865df78

Tengja á þessa síðu: (15) Blaðsíða 13
http://baekur.is/bok/90d1e3f8-d9e3-44a2-b897-8312d865df78/0/15

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.