loading/hleð
(11) Blaðsíða 7 (11) Blaðsíða 7
sem þar var ekki sérstaklega upp- talið, varð sameiginlegt, heldur er hér höfð gagnstæða aðferðin og sameiginlegu málin nefnd, svo að alt það sem hér er ekki berum orðum nefnt sameiginlegt, er sérmál hvors landsins um sig. Að því er annars sérstaklega kemur til einstakra atriða í 3. grein, þá má þess geta um 5. tölulið, um fæðingjaréttinn, að Islendingar fóru uppliaflega að eins fram á, að lög- gjafarvald hvors landsins hefði rétl til að veita fæðingjarétt innan síns löggjafarsviðs. En af þessu hefðu getað sprottið ýnais vandkvæði, þar sem þeir, sem þannig fengju fæðingjarétt á Islandi, hefðu hvorki eftir ríkisrétti né alþjóðarétti getað talist hafa fæðingjarétt í Danakon- ungs veldi, og því lcusu menn lield- ur, að löggjafarvald íslands fengi með lögum þessum almenna heim- ild til, að veita fæðingjarétt, er einnig gilti fyrir Danmörku, en þó er hér við því búist, að þá er fæðingja- réttur verður veittur á íslandi, verði líkra skilyrðra kraíist, sem i Dan- mörku. Að því er kemur til ákvörðunar- innar í 7. tölulið 3. greinar um, að þess skuli gætt, er sæti losnar í liæstarétti, að skipaður sé þar maður, er haíi sérþekkingu á íslenzkri lög- gjöf og kunnugur sé íslenzkum hög- um, þá er það hér sett eftir ósk inna dönsku nefndarmanna, er þótti mjög viðurhlutamikið, að ganga að ákvæði fyrstu máls- greinar um stofnsetningu æðsta dóms innanlands í íslenzkum málum, og vona, að ekki muni verða bráður bugur að því undinn; en ákvæði þetta gildir ofj auðvitað að eins þangað til að þetta verður gert, sbr. »meðan«.* Við 4. gr. Þar sem svo er að orði komist, að öðrum málefnum, sem taki bæði til Danmerkur og íslands, þar á með- al póstsambandinu og ritsímasam- bandinu milli landanna, »ráði« o. s. frv., þá er það auðvitað ekki til- gangurinn, að breyta með þessu því skipulagi, sem nú er gert um póst- sambandið og ritsímasambandið. Við 5. gr. Akvörðunin í fyrstu málsgrein greinarinnar um, að Danir og ís- lendingar á íslandi og íslendingar og Danir í Danmörku skuli í öllum atriðum njóta fulls jafnrjettis að öðru jöfnu, hefur verið talin svo mikils varðandi í nefndinni, að ósk- að hefur verið að gera hana að föstu og óbreytilegu skilyrði fyrir sam- bandi landanna. Jafnframt ákvæðinu um, að óbreytt skuli haldast forréttindi íslenzkra námsmanna til hlunninda við Kaup- mannaháfnarháskóla, var þess óskað frá Dana hálfu, að upp væri tekið í lögin, að við háskólann skjddi stofna kennaraembætti i íslenzkum lögum. Frá íslenzkri lilið er ekkert á móti því haft, að slíkt kennaraembætti sé stofnað, en af formlegum ástæð- um hefir það ekki þótt rétt að taka upp í þessi lög nokkurt ákvæði um þetta, með því að danska lög- gjafarvaldið hefir ávalt fult frelsi til að gera þetta, og því féllu inir ’) Einn nefndarmanna P. Knudsen vill í stað orðatíltækis þess er notað er í 3. gr. 4. heldur liafa orðin »fiskiveiða- réttur ríkisborgaranna«, en lætur þó eftir atvikum sitja við orðalag greinarinnar, með því að hann fékk ekki ósk sinni framgengt.
(1) Band
(2) Band
(3) Saurblað
(4) Saurblað
(5) Blaðsíða 1
(6) Blaðsíða 2
(7) Blaðsíða 3
(8) Blaðsíða 4
(9) Blaðsíða 5
(10) Blaðsíða 6
(11) Blaðsíða 7
(12) Blaðsíða 8
(13) Blaðsíða 9
(14) Blaðsíða 10
(15) Blaðsíða 11
(16) Blaðsíða 12
(17) Blaðsíða 13
(18) Blaðsíða 14
(19) Blaðsíða 15
(20) Blaðsíða 16
(21) Blaðsíða 17
(22) Blaðsíða 18
(23) Blaðsíða 19
(24) Blaðsíða 20
(25) Blaðsíða 21
(26) Blaðsíða 22
(27) Blaðsíða 23
(28) Blaðsíða 24
(29) Blaðsíða 25
(30) Blaðsíða 26
(31) Blaðsíða 27
(32) Blaðsíða 28
(33) Blaðsíða 29
(34) Blaðsíða 30
(35) Blaðsíða 31
(36) Blaðsíða 32
(37) Blaðsíða 33
(38) Blaðsíða 34
(39) Blaðsíða 35
(40) Blaðsíða 36
(41) Saurblað
(42) Saurblað
(43) Band
(44) Band
(45) Kjölur
(46) Framsnið
(47) Kvarði
(48) Litaspjald


Nefndarálit innar dönsku og íslenzku Sambandslaganefndar frá 1907.

Ár
1908
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
44


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Nefndarálit innar dönsku og íslenzku Sambandslaganefndar frá 1907.
http://baekur.is/bok/52a0c01e-d0ba-484d-bdfb-2b0736d83318

Tengja á þessa síðu: (11) Blaðsíða 7
http://baekur.is/bok/52a0c01e-d0ba-484d-bdfb-2b0736d83318/0/11

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.