(12) Blaðsíða 10
AFMÆLISRIT FAXA
Halldór Giiðjónsson, skólastjóri:
„Sól og dögg leggja lóð sín á metin móti
hretum og kulda. Árvekni og natnar hendur
leggja lóð sín móti illgresi og skemmdum.
Enginn fœr metið verðgildi hinna góðu afla,
er ávallt og allstaðar vinna móti hinum
lakari í uppeldisstarfi móður náttúru. Heil-
brigð félagssamtök æskunnar eru sífellt að
leggja lóð sín á metin móti öflum spillingar-
innar í siðgæði og manndómi.
Ég þakka þér, skátafélagið Faxi, fyrir
10 ára samstarf í uppeldismálum bæjarins.
Horfðu hátt og vítt, en vertu umfram allt
á verði inn á við í þinni ungu og fram-
sæknu félagssál.“
Ólafur Á. Kristjánsson, bœjarstjóri:
„Skátahreyfingin er bræðralagshugsjón og
alheimssamband ungra manna og kvenna,
sem viðurkenna jafnrétti inannanna, án til-
lits til litar og kynþátta.
Stefnuskráin er göfgandi fyrir einstakl-
ingana, felur í sér líkamsþjálfun, reglu-
semi og kærleika til náungans.
Sannur skáti er fyrirmyndar þegn þjóð-
félagsins, því fleiri, því hetra.“
Þorsteinn Þ. Víglundsson, skólasljóri:
„Svo skátafélagið Faxi kvað vera orðið
10 ára! Oft finnst okkur svona eftir á, að
tíminn hafi liðið fljótt. Ég minnist stofn-
unar félagsins eins og hún liefði skeð í gær.
Kjarninn í félagsskapnum urðu nemendur
úr Gagnfræðaskólanum, margir liinir betri
og mannvænlegri, og Þorsteinn Einarsson,
samkennari minn, gerðist foringi skátanna.
Lítið herbergi í skólahúsinu varð fyrsta
skjól félagsins og skólanum bar einnig gæfa
til að greiða götu þess um aukið húsnæði,
þegar ineira þurfti með. Ég segi gæfu, því
að gæfa hefir það orðið mörgum unglingum
okkar að starfa og þroskast undir merki
skátafélagsskaparins, hér sem annarsstaðar.
Sameiginlegar menningarhugsjónir hafa
til þessa tengt saman Gagnfræðaskólann og
skátafélagið. Vel gerður æskulýður og bind-
indisstarfið er blessun þeirra beggja. Mætti
svo lengstum verða.
Hamingjan fylgi Faxa.“
Ólafur Ó. Lárusson, héraóslæknir:
„Frá því skátar hófu liér starfsemi, hef
ég fylgzt með þeim og veitt þeim athygli.
Þeir hafa frá upphafi sett svip sinn á
byggðarlagið.
Ég þykist þess fullviss, að margir þeirra
drengja og stúlkna, sem gengið hafa í þenn-
an holla félagsskap, hafi gert sér far um að
iðka í verki, margar af þeim dyggðum, sem
skátum ber. Þeir eru skjótir til hjálpar og
fyrirgreiðslu, þegar til þeirra er leitað, orð-
varir og orðheldnir. Ég veit ekki annað en
skátarnir hér séu til fyrirmyndar í reglu-
semi, forðist áfengi og tóhak, og er slíkt
prýði á mönnum á öllum aldri. Göngur
þeirra og útilegur stuðla að auknu lieil-
brigði og æskilegu sambandi við móður
náttúru.
Skátarnir liafa gert sér far um að kynna
sér „hjálp í viðlögum,“ og hef ég oft séð
ávexti þeirrar þekkingar. Þeir bera skyn á
gildi hreinleika í meðferð sára og meiðsla,
sem er ómetanlegt.
Ég óska Faxa gæfu og blessunar á ókomn-
um árurn."
Sr. Halldór Kolbeins, sóknarprestur:
„Skátahreyfingin er lyftistöng kristinnar
menningar. Sá, . em einhvern tíma hefir
starfað af alhuga í skátareglunni ber þess
blæ alla ævina. Hann er frjálslegur og al-
úðlegur, úrræðagóður og drengilegur.
Skátahreyfingin býr yfir liugsjónum, sem
fylla hugi óspilltra æskumanna eldmóði og
gleði yfir lífinu. Skáti trúir á Guð og lifir
í ríki kærleikans.“
1 □
(1) Kápa
(2) Kápa
(3) Blaðsíða 1
(4) Blaðsíða 2
(5) Blaðsíða 3
(6) Blaðsíða 4
(7) Blaðsíða 5
(8) Blaðsíða 6
(9) Blaðsíða 7
(10) Blaðsíða 8
(11) Blaðsíða 9
(12) Blaðsíða 10
(13) Blaðsíða 11
(14) Blaðsíða 12
(15) Blaðsíða 13
(16) Blaðsíða 14
(17) Blaðsíða 15
(18) Blaðsíða 16
(19) Blaðsíða 17
(20) Blaðsíða 18
(21) Blaðsíða 19
(22) Blaðsíða 20
(23) Blaðsíða 21
(24) Blaðsíða 22
(25) Blaðsíða 23
(26) Blaðsíða 24
(27) Blaðsíða 25
(28) Blaðsíða 26
(29) Blaðsíða 27
(30) Blaðsíða 28
(31) Blaðsíða 29
(32) Blaðsíða 30
(33) Blaðsíða 31
(34) Blaðsíða 32
(35) Kápa
(36) Kápa
(2) Kápa
(3) Blaðsíða 1
(4) Blaðsíða 2
(5) Blaðsíða 3
(6) Blaðsíða 4
(7) Blaðsíða 5
(8) Blaðsíða 6
(9) Blaðsíða 7
(10) Blaðsíða 8
(11) Blaðsíða 9
(12) Blaðsíða 10
(13) Blaðsíða 11
(14) Blaðsíða 12
(15) Blaðsíða 13
(16) Blaðsíða 14
(17) Blaðsíða 15
(18) Blaðsíða 16
(19) Blaðsíða 17
(20) Blaðsíða 18
(21) Blaðsíða 19
(22) Blaðsíða 20
(23) Blaðsíða 21
(24) Blaðsíða 22
(25) Blaðsíða 23
(26) Blaðsíða 24
(27) Blaðsíða 25
(28) Blaðsíða 26
(29) Blaðsíða 27
(30) Blaðsíða 28
(31) Blaðsíða 29
(32) Blaðsíða 30
(33) Blaðsíða 31
(34) Blaðsíða 32
(35) Kápa
(36) Kápa