(8) Blaðsíða 6
AFMÆLISRIT FAXA
99
Það sktti að verða skcmintuii"
„Hláturinn lengir lífið,“ segir máltækið,
og er eflaust margt satt í því, að minnsta
kosti er það atriði, sem við skátarnir ger-
um okkur fyllilega ljóst og sést það m. a.
af því, að ein lagagrein okkar fjallar um
þetta efni: Skáti er glaðvær.
Skátafólagið Faxi hefur frá stofnun tek-
ið mikinn þátt í skemmtanalífi bæjarbúa
og á þar vafalaust virðulegan sess, enda
hafa skemmtanir þær, sem félagið hefur
stofnað til verið mjög vinsælar meðal bæj-
arbúa, ef ráða má af fjölda þeim, er sækja
hinar almennu skemmtanir félagsins.
Fyrsta almenna skemmtunin, sem félagið
stofnaði til var barnaskemmtun. Var hún
haldin í Alþýðuhúsinu á annan jóladag
1941. Skemmtun þessi hafði verið undir-
búin þá um haustið, en einkum þó eftir að
jólafrí hafði verið gefið í skólum bæjarins,
því að þá voru flestir skemmtikraftarnir
innan við 16 ára aldur. Allmikil auglýsinga-
starfsemi var viðhöfð, bæði með götuaug-
lýsingum, auglýsingum i blöðum og út-
varpi, og að morgni annars jóladags voru
fregnmiðar um skemmtunina bornir í hvert
hús í bænum. Á fregnmiöum þessum voru
talin upp hin ýmsu skemmtiatriði og fyrir
neðan þau var áskorun til allra foreldra,
um að leyfa börnum sínum að sækja
skemmtunina- Neðst á fregnmiðanum stóð
svo: „Aðgangur 1 króna,“ og var þetta
sett hálf hikandi, því að við vorum smeykir
um, að krakkar fengju ekki að fara fyrir
svo hátt verð, en við hættum nú á það,
enda voru jólin. Skemmtun þessi tókst
með afbrigðum vel, og var húsið svo þétt-
setið sem frekast var unnt, en allþröngt
var, þegar dansinn hófst, að loknum
skemmtiatriðunum.
Næsta haust var hafinn undirbúningur
að nýrri skemmtun, sem átti ekki aðeins
að vera boðleg börnum, heldur einnig full-
orðnum. Hún var haldin í Samkomuhús-
inu og auglýst á sama hátt og hin fyrri.
Á fregnmiðunum stóð auk skemmtiatrið-
anna: „Dansað til kl. 3 f. h. Fimm manna
hljómsveit. Aðgangur er kr. 3,00.“ Eftir
þessa skemmtun voru síðan haldnar ár-
legar skemmtanir, sem hver um sig ávann
íélaginu vaxandi álits. Á þessum skemmt-
unum hafa ekki eingöngu verið bomir
fram skátaleikir eða kennsluþættir, heldur
og margskonar gamanleikir, hljómlist og
síðast en ekki sízt söngur. Þar á meðal
tveir stúlkna-kvintettar, sem hvor um sig
hafa verið þeir beztu hér í Eyjum. Allar
þessar skemmtanir hafa verið tvíteknar
á ári hverju og þá einhverjum nýjum atrið-
um bætt við.
Annar liður í skemmtana- og útbreiðslu-
’ barnaskemmt ö
verðnr I Alf>ýöuhú*lnu i (2, jólftdaf) kl. 2 h.
Dagskrá. .
, 1 Cowboy* tkaramlá.
2. 10 litlir negr*Btrák»r.
;j Jóla»veinn 8k«rámUr.
4. Fukira llatlr.
5. DANS á cftir ■kwmotiatriftumlm.
5 mttt.na hljomaveit leikur á roilll »kemmUatri5ann*
Forcldrar lofift börnum yðar aö bJú, hnyra or *uka þáU t
•kammtun *kéunna.
Aögangur 1 króna.
■ ''fiftfj SkátafélagíO „FAXI"
Fregnmiði að fyrstu skemmtuninni, 2. jóladag 1941
6
(1) Kápa
(2) Kápa
(3) Blaðsíða 1
(4) Blaðsíða 2
(5) Blaðsíða 3
(6) Blaðsíða 4
(7) Blaðsíða 5
(8) Blaðsíða 6
(9) Blaðsíða 7
(10) Blaðsíða 8
(11) Blaðsíða 9
(12) Blaðsíða 10
(13) Blaðsíða 11
(14) Blaðsíða 12
(15) Blaðsíða 13
(16) Blaðsíða 14
(17) Blaðsíða 15
(18) Blaðsíða 16
(19) Blaðsíða 17
(20) Blaðsíða 18
(21) Blaðsíða 19
(22) Blaðsíða 20
(23) Blaðsíða 21
(24) Blaðsíða 22
(25) Blaðsíða 23
(26) Blaðsíða 24
(27) Blaðsíða 25
(28) Blaðsíða 26
(29) Blaðsíða 27
(30) Blaðsíða 28
(31) Blaðsíða 29
(32) Blaðsíða 30
(33) Blaðsíða 31
(34) Blaðsíða 32
(35) Kápa
(36) Kápa
(2) Kápa
(3) Blaðsíða 1
(4) Blaðsíða 2
(5) Blaðsíða 3
(6) Blaðsíða 4
(7) Blaðsíða 5
(8) Blaðsíða 6
(9) Blaðsíða 7
(10) Blaðsíða 8
(11) Blaðsíða 9
(12) Blaðsíða 10
(13) Blaðsíða 11
(14) Blaðsíða 12
(15) Blaðsíða 13
(16) Blaðsíða 14
(17) Blaðsíða 15
(18) Blaðsíða 16
(19) Blaðsíða 17
(20) Blaðsíða 18
(21) Blaðsíða 19
(22) Blaðsíða 20
(23) Blaðsíða 21
(24) Blaðsíða 22
(25) Blaðsíða 23
(26) Blaðsíða 24
(27) Blaðsíða 25
(28) Blaðsíða 26
(29) Blaðsíða 27
(30) Blaðsíða 28
(31) Blaðsíða 29
(32) Blaðsíða 30
(33) Blaðsíða 31
(34) Blaðsíða 32
(35) Kápa
(36) Kápa