loading/hleð
(19) Blaðsíða 17 (19) Blaðsíða 17
Skrá um Kortasafn Háskóla íslands Anderson, Johann. Nova Gronlandiae, Is- landiae et Freti Davis tabula (35.7X28.8 sm). Kortið fylgir bók Andersons: Nachrichten von Island, Grönland und der Strasse Davis, sem kom út í Hamborg 1746 og var svo endur- prentuð og þýdd á ýmis mál. Höfundurinn var þá látinn, og líklega á hann engan þátt í gerð kortsins, sem er af venjulegri gerð hollenskra sjókorta frá síðustu árum 17. aldar. Kortið fylgir öllum útgáfum bókarinnar með breytt- um titilfeldum. Bellin, Jacques Nicolas. Carte réduite des Mers du Nord ... 1751. A Paris. Chez Mr Bellin (55.4X88 sm). Bellin (1703—1772) var forstöðumaður sjó- mælinganna frönsku, og frá hans hendi eða stofnunarinnar liggur mikill fjöldi sjókorta víða um heim, enda gengust Frakkar um þær mundir mjög fyrir hafrannsóknarleiðangrum og fóru víða. Auk sjókorta gerði Bellin fjölda landabréfa til birtingar 1 ýmsum safnritum, sem gefin voru út um þessar mundir. Kortið er í megindráttum af hollenskri 17. aldar gerð. Á íslandi (Isle d'lslande) eru Vest- firðir klofnir í tvo skaga um fsafjarðardjúp, þar sem syðri skaginn stefnir í vestur, en hinn í hánorður. Austurströndin sveigist 1 boga inn til landsins milli Homafjarðar og Vopnafjarðar. En þetta hvorttveggja var einkenni hollenskra sjókorta á síðara hluta 17. aldar og í upphafi hinnar 18. Bellin, Jacques Nicolas. Carte réduite de l’Islande et des Mers qui en sont voisines . .. Par le S' Bellin .. . Paris 1767 (54.5 X83 sm). Kortið virðist gert eftir kortinu 1 ferðabók Horrebows, en höfundurinn hefur varla notað Knoffs-kortið í gerð Homanns. Auk aðal- kortsins af fslandi eru sérkort af Austfjörðum og Vestfjörðum. Austfjarðakortið er af venju- legri gamalli hollenskri gerð. Vestfjarðakortið er hins vegar nýtt af nálinni og gert 1 rann- sóknarleiðangri Kerguélen-Trémarecs í rann- sóknarleiðangrum hans um Norðurhöf á ár- unum 1767 og 1768, en þá hafði hann nokkra viðdvöl á Vestfjörðum. Bellin, Jacques Nicolas. Carte réduite de partie de la Mer du Nord ... Par le S. Bellin (Paris) 1768 (55.7X85.2 sm). ísland er hér af gamalli hollenskri gerð, eins og hún varð í meðförum þeirra á 17. öld. Ör- nefni eru sárafá og blendingur hollenskra og franskra nafna. Á fslandshluta kortsins stend- ur: „Sjá íslandskortið 1767, þarsem ströndum og innlandi er nánar lýst“. Er þar vísað til korts af Knoffs-gerð, sem Bellin gaf út árið áður. Kortið er því endurprentun eftir eldra mynda- móti, en aukið þessari ábendingu. [Bellin, Jacques Nicolas]. Carte réduite des Mers du Nord. Pour servir a l’Histoire générale des voyages. Par M. B. íngr de la marine (32X44 sm). Kortið er úr hinu fræga ferðasögusafni Pré- vosts og af venjulegri gerð hollenskra sjókorta á síðara hluta 17. og fyrra hluta 18. aldar. Blaeu, Willem Janszoon. Regiones svb Polo Arctico. Auctore Guiljelmo Blaeu, s. a. (41.2X51.2 sm). Kortið er fyrst prentað í frönskum viðauka við kortasafn Blaeus sem gefinn var út 1640, Ap-


Kortasafn Háskóla Íslands

Ár
1982
Tungumál
Íslenska
Efnisorð
Blaðsíður
28


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Kortasafn Háskóla Íslands
http://baekur.is/bok/39ed6987-8fe4-451a-bbf9-a9e81b7970f0

Tengja á þessa síðu: (19) Blaðsíða 17
http://baekur.is/bok/39ed6987-8fe4-451a-bbf9-a9e81b7970f0/0/19

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.