loading/hleð
(13) Blaðsíða 9 (13) Blaðsíða 9
9 gæfir. Ilvað er nú eðlilegra, þar sem svona tilhag- ar, enn að menn stytti sjer dægur, og skapi sjer á- nægjustund með því, að nema eitthvað til fróðleiks, sem manni er innanhandar og faung eru á. Enda veit jeg margan þann bónda í landinu, og er jegþó víða ókunnugur, sem lætur sjer annt um, aö búa sig svo undir veturinn, að honum veröi sem bezt varið til uppfræðíngar á heimili sínu, bæði með að lialda börnum til náms og láta lesa fyrir fólki sínu ftnð, er skemmtilegt sje eður fróðlegt; þannig má svo heita, að hann setji skóla á heimili sinu. Og þetta er einmiöt það, sem vjer Islendíngarnir eigum að liafa fyrir augum oss, að vjer erum ekki það sem vjer eigum að verða eöur getum orðið, fyr enn sjer- hvert heimili d landinu er or&i& sinn eginn heimaskóli. En eigi þessu að veröa framgeingt, þá ber liin mesta nauðsyn til að ujiplýsingin sje glædd sem mest verður — en þeir, sein hana glæða, koma úr landsins skóla, og má því einnig í þessari grein vera mjög svo áríðandi, að hann sje sem beztur og þessu landi sem hagkvæmastur. jiað er enn eitt sem kallar Isleiulínga til vis- inda og mennta, sem jeg ætla að muni hvað mest í varið, og-er það túngumdl þeirra. Yjer tölum enn því sama máli sem hinir fyrstu landnámsmenn, og það máliö, sem í fornöld var alrnennt á norðurlönd- um, væri nú dáið og’ greptrað með forfeðrunum, ef vjer hefðum ekki varðveitt það ásamt svo mörgum fornfræðum sem á þvi eru rituð. Norðmenn, Danir, Svíar og Einglar hafa týnt því og tekið upp aðra túngu, en drottinn faldi það undir túngurótum lítill- ar og fátækrar þjóðar. 5etta mál er svo ágætt, að það er með rjettiá- litið veglegast allra norðurlanda mála, einsog það er uppspretta og undirrót þeirra allra, og finnst útlend-


Ræða við vígslu Latínuskólans í Reykjavík 1. dag octóbr. mán. 1846

Ár
1846
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
24


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Ræða við vígslu Latínuskólans í Reykjavík 1. dag octóbr. mán. 1846
http://baekur.is/bok/35c9c760-33c8-4fc1-8406-4a14cdd3012c

Tengja á þessa síðu: (13) Blaðsíða 9
http://baekur.is/bok/35c9c760-33c8-4fc1-8406-4a14cdd3012c/0/13

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.