loading/hleð
(26) Blaðsíða 22 (26) Blaðsíða 22
22 svo, að þú hafir í hug- að svíkja mig-, en vita skaltu það, að hvorki þjer nje þínum líkum mun auðnast að standa yfir mín- um höfuðsvörðum“. þ>á gekk hinn spanski út og sást ei síðan nokkra daga; fóru þeir svo að leita hans, og fundu hann dauðan niður við sjó, bláan sem hel og gráan sem naut; kom þeim þá ásamt að þeir feðgar mundu hafa drepið hann eptir áeggjun konunnar. „f>að hygg eg betra“, mælti Parm- es, „að bregða ei út af því, sem þetta fólk til leggur, hverr- ar tegundar sem það er; búa fleiri hjer á eyu þessari enn margir vita, ef eg get rjett til“. f»að bar til eina nótt er leið á vetur, að Parmes Ijet illa í svefni ; vaknaði hann þá síðan og var sveittur mjög og mælti : „Eg hefi haft nóg að gjöra í nótt að sætta tvo nágranna vora ; bar þeim það á milli, að nábúi hafði drepið mann í netlögn sinni og spilt svo fytir sjer veiðinni; vildi jeg nú hvað helzt losast við sýn þessa; er mjer það skaðlegt að eiga illt útistandandi við nokkra af jarð- búum þessum, er hjer byggja“. Stýrimaður mælti : „Eg er sama sinnis, því að prestar vorir segja, að þetta sjeu fjendur einir og er þá ills af von“. Parmes kvaðst eigi vita hvað um það væri, „en burtu vildi jeg hjeðan við fyrsta tækifæri“. Nilles mælti : „Svo mundi hafa verið, þó þetta væri ekki“. Skildu þeir svo talið. io. KAP. f>egar vora tók, vakti alt af einn þeirra upp á hæðinni, ef sigling kynni að sjást. Eina nótt, er Nilles vakti, eráleið vorið, sá hann sigla þrjú skip að eynni, hann vekur þá fje- laga; standa þeir upp og sjá þeir, að þau muni sigla fram hjá; þeir tóku fiskibát, er þeir höfðu smíðað um veturinn, og reru til skipanna. f>eir komu að því fyrsta, og voru þar spanskir. Parmes spyr, hvaðan hin skipin sjeu. f>eir segja, að á því næsta sjeu landar sínir, en það síðasta sjeu Englend-
(1) Band
(2) Band
(3) Saurblað
(4) Saurblað
(5) Blaðsíða 1
(6) Blaðsíða 2
(7) Blaðsíða 3
(8) Blaðsíða 4
(9) Blaðsíða 5
(10) Blaðsíða 6
(11) Blaðsíða 7
(12) Blaðsíða 8
(13) Blaðsíða 9
(14) Blaðsíða 10
(15) Blaðsíða 11
(16) Blaðsíða 12
(17) Blaðsíða 13
(18) Blaðsíða 14
(19) Blaðsíða 15
(20) Blaðsíða 16
(21) Blaðsíða 17
(22) Blaðsíða 18
(23) Blaðsíða 19
(24) Blaðsíða 20
(25) Blaðsíða 21
(26) Blaðsíða 22
(27) Blaðsíða 23
(28) Blaðsíða 24
(29) Blaðsíða 25
(30) Blaðsíða 26
(31) Blaðsíða 27
(32) Blaðsíða 28
(33) Blaðsíða 29
(34) Blaðsíða 30
(35) Blaðsíða 31
(36) Blaðsíða 32
(37) Blaðsíða 33
(38) Blaðsíða 34
(39) Blaðsíða 35
(40) Blaðsíða 36
(41) Blaðsíða 37
(42) Blaðsíða 38
(43) Blaðsíða 39
(44) Blaðsíða 40
(45) Blaðsíða 41
(46) Blaðsíða 42
(47) Blaðsíða 43
(48) Blaðsíða 44
(49) Blaðsíða 45
(50) Blaðsíða 46
(51) Saurblað
(52) Saurblað
(53) Saurblað
(54) Saurblað
(55) Band
(56) Band
(57) Kjölur
(58) Framsnið
(59) Kvarði
(60) Litaspjald


Saga af Parmes loðinbirni.

Ár
1884
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
56


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Saga af Parmes loðinbirni.
http://baekur.is/bok/8a06bd5e-320b-4681-8b06-74715121802b

Tengja á þessa síðu: (26) Blaðsíða 22
http://baekur.is/bok/8a06bd5e-320b-4681-8b06-74715121802b/0/26

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.