loading/hleð
(19) Blaðsíða 13 (19) Blaðsíða 13
13 hluta hvortveggja aðalatriðin í stjórnarfrumvarpinu, bæði það, að ríkisþíngið léti af hendi við alþíng öll fjárveizluráð fyrir íslands hönd, og hitt, um tillags- upphæðina, er fjárhagsaðskilnaður yrði, að fá þau úr- slit, sem þau fengu. Fyrra atriðið, að alþíng fengi í hendur fjárveizluráðin, hlaut þíngið í sjálfu sér að fallast á, og það hefir það gjört, og enda tekið það skvrt og skorinort fram. |>íngið gat reyndar eigi skilið í, að sérstakl lagaboð þyrfti til að breyta því fyrirkomulagi, sem að vísu á sér stað, en hvorki heflr lög né heimild við að styðjast. Með því nú ríkis- þíngið liefir haft á liendi fjárveizlu fyrir íslands hönd án samþykkis alþíngis og einúngis eptir samkomulagi við stjórnina, ldaut það að vera eðlilegast, að stjórn- in sjálf kæmi sér saman við ríkisþíngið um það, að það sleppti aptur þessum ólögbundnu yfirráðum, sem það varla mun vera svo sérlega fastheldið á. það liggur nærri að ætla, að stjórnin hafi með frumvarpi þessu ætlað sér að ná í nokkurskonar kvittun hjá alþíngi fyrir allan þann tíma, sem hún hefir veitt ríkisþínginu fjárhald íslands, en alþíng gat alls enga ástæðu liaft til þess að gefa þesskonar kvittun, og kannast þannig óbeinlínis við, að ríkis- þingið hefði verið lögráðandi fjármála íslands eða haft lögmætt skattálöguvald, sem hlaut eptir eðli sínu að lúta undir fulltrúa þjóðarinnar. — Um hitt at- riðið, eða um ársgjaldsupphæðina úr ríkissjóði Dan- merkur, var alþíngi alls eigi unnt að gjöra neina uppástúngu í tölum, eins og á stendur, af þeirri einföldu og auðskildu ástæðu, er áður var getið, að stjórnin hafði eigi gefið þínginu kost á, að geta gjört sér nokkra hugmynd um, hvað stjórn landsins fram- vegis mundi kosta, og eigi heldur fengið erinds-


Um fjárhagsmálið og meðferð þess á alþíngi 1865

Ár
1867
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
36


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Um fjárhagsmálið og meðferð þess á alþíngi 1865
http://baekur.is/bok/60a2def5-e3b8-4521-81f7-0dbd844dd2e5

Tengja á þessa síðu: (19) Blaðsíða 13
http://baekur.is/bok/60a2def5-e3b8-4521-81f7-0dbd844dd2e5/0/19

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.