loading/hleð
(21) Blaðsíða 15 (21) Blaðsíða 15
15 grundvallarreglum, sem 1.—4. grcin frumvarps þessa lýsa. Með því nú höfundur bréfsins heDr þekkt eitt af atriðum þessum, hefir hann orðið að þekkja þau öll, sé abréfið" frá Ileykjavík, því 28. August varbúið að prenta þau þar öll. Hann hefir því orðið að sneiða hjá þeim með áseltu ráði. Slík aðferð lýsir því ofur vel sjálf, af hverjum rótum hún er runnin, ekki sízt þegar nöpur hrakyrði um einstaka menn blandast saman við. — Ilann segir enn fremur, að mönnum hafi mjög brugðið í brún, er þeir sáu, að þetta at- riði, sem hann hefir tekið fram, hafi staðið fyrst á atkvæðaskránni og komið' fyrst til atkvæða. þetta er eigi sannara en annað. Yið undirbúníngs-um- ræðuna, sem haldin var á fjórum fundum og stóð í 3 daga, áskildu menn sér öll þau breytíngaratkvæði, er sett voru á atkvæðaskrána. Síðan höfðu þíng- menn 3 daga til að íhuga málið, milli undirbúníngs- umræðunnar, og ályktarumræðunnar, og enn fremur láu prentaðar atkvæðaskrár fyrir mönnum frá því daginn áður en gengið var til atkvæða, og enginn lireyfði heldur neinni mótbáru gegn atkvæðaskránni, enda gat varla verið ástæða til þess, með því að meðferð málsins var í alla staði lögmæt og sam- kvæm því, sem í öðrum málum er tíðkanlegt. Eg þykist nú hafa sannað, að frumvarp stjórn- arinnar hafi fengið í raun og veru alla tilhlýðilega viðurkenníngu af þínginu, þó að það yrði að ráða stjórninni frá að gjöra það óbreylt að lögum, eins og það lá fyrir, sökum þýðingarmikilla galla, sem stjórnin hefði bæði átt að sjá og getað séð við í tíma. Ef menn nú hugleiða uppáslúngur alþíugis, þá verður eigi með rökum sagt, að nokkuð í þeim hafi getað valdið drætti á málinu. Stjórnin hefir stöðugt


Um fjárhagsmálið og meðferð þess á alþíngi 1865

Ár
1867
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
36


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Um fjárhagsmálið og meðferð þess á alþíngi 1865
http://baekur.is/bok/60a2def5-e3b8-4521-81f7-0dbd844dd2e5

Tengja á þessa síðu: (21) Blaðsíða 15
http://baekur.is/bok/60a2def5-e3b8-4521-81f7-0dbd844dd2e5/0/21

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.