loading/hleð
(64) Blaðsíða 62 (64) Blaðsíða 62
landbúnaðarafurðum í hágæðaflokki. Samtímis þessum nýja samningi um heims- viðskipti er sú þróun áberandi að mynduð eru fríverslunarsvæði t.d. NAFTA sem Bandaríkin, Kanada og Mexíkó eiga aðild að. í Asíu er unnið að myndun slíks svæðis. Síðast en ekki síst er Evrópusambandið að breytast með fjölgun ríkja úr 12 í 15 og með Maastrichtsáttmálanum sem tengir ríki þess mun sterkari böndum en áður. Við slíkar aðstæður verða íslendingar að meta stöðu sína í samfélagi þjóðanna. Það er miklvægt að málefnaleg umræða og fræðsla eigi sér stað um það hverra kosta sé völ þannig að fólk geti tekið afstöðu í svo mikilvægu máli. Kvennalistinn vill að við íslendingar eigum viðskipti við allar þjóðir sem vilja skipta við okkur en þau viðskipti eiga ekki að vera gagnrýnislaus. Við eigum að læra af öðrum þjóðum og efla samskipti á sviði menningar, mennta, vísinda og lista en megum ekki skirrast við að tala máli mannréttinda og umhverfisverndar þótt það kunni að valda erfiðleikum í viðskiptum. EES-samningurinn er staðreynd. Við erum orðin aðilar að samningum sem opna okkur viðskipti einkum við þjóðir Evrópu ýmist í gegnum EES-samninginn eða með fríverslunarsamningum sem EFTA-ríkin hafa gert t.d. við þjóðir Austur-Evrópu. Þeir samningar gera okkur kleift að sækja okkur þekkingu og reynslu jafnframt því að auka og bæta viðskipti. íslendingar verða að vera opnir fyrir þeim möguleikum sem bjóðast. Umræður eru hafnar um hugsanlega aðild íslands að Evrópusambandinu þótt ljóst sé að fleiri ríki verða ekki tekin inn í sambandið næstu árin. Kvennalistinn vill að EES-samningnum verði breytt í tvíhliða samning við Evrópusambandið og telur mun fleira mæla gegn aðild íslands að Evrópusambandinu en með henni. Kvennalistinn gerir þá kröfu að svo stórt mál verði borið undir þjóðaratkvæði komi til þess að íslendingar sæki um aðild að ESB. Evrópusambandið er að breytast og er margt óljóst um það hvaða stefnu það mun taka. Framundan er margra ára um- ræða um framtíðarskipan sambandsins. Þótt stefnubreyting kunni að eiga sér stað stendur eftir hugmyndafræði og gildismat ríkjasambands sem hvort tveggja geng- ur þvert á hugmyndir Kvennalistans um lýðræði, valddreifingu, áhrif fólks á eigið líf og umhverfi, sjálfbæra þróun og réttinn til að þróa eigið samfélag. Evrópusam- bandið mun eftir sem áður byggjast á Rómarsáttmálanum sem gerir ráð fyrir sam- eiginlegri nýtingu og yfirráðum yfir auðlindum eins og fiskimiðum. Slíkt er íslend- ingum afar óhagstætt ekki síst í ljósi þess viðkvæma ástands sem ríkja mun næstu árin á fiskimiðunum við landið. Þá er sú mikla miðstýring, embættismannaveldi og karlveldi sem ræður ríkjum í Brussel þyrnir í augum kvenna en reyndar er nú hafin sókn gegn þessum ólýðræðislegu vinnubrögðum. Margt gott er að finna í lögum Evrópusambandsins svo sem um félags- og vinnumál svo og jafnrétti kynj- anna en það breytir ekki því að konur eru enn mjög fáar í forystu ESB og atvinnu- leysi í röðum kvenna, einkum ungra kvenna, gífurlega mikið. Því vill Kvennalist- inn að svo komnu máli leggja áherslu á að ísland standi utan Evrópusambands- ins. Það er ekkert sem hindrar okkur í að lögleiða góðar breytingar ættaðar frá Evrópu nema vilja- og skilningsleysi íslenskra stjórnvalda Kvennalistinn leggur áherslu á gott samstarf við aðrar þjóðir. í slíku samstarfi þarf efnahagslegt og menningarlegt sjálfstæði þjóðarinnar að vera tryggt. Aðeins þannig getum við nýtt þá miklu möguleika sem land okkar og þjóð búa yfir. 62
(1) Kápa
(2) Kápa
(3) Blaðsíða 1
(4) Blaðsíða 2
(5) Blaðsíða 3
(6) Blaðsíða 4
(7) Blaðsíða 5
(8) Blaðsíða 6
(9) Blaðsíða 7
(10) Blaðsíða 8
(11) Blaðsíða 9
(12) Blaðsíða 10
(13) Blaðsíða 11
(14) Blaðsíða 12
(15) Blaðsíða 13
(16) Blaðsíða 14
(17) Blaðsíða 15
(18) Blaðsíða 16
(19) Blaðsíða 17
(20) Blaðsíða 18
(21) Blaðsíða 19
(22) Blaðsíða 20
(23) Blaðsíða 21
(24) Blaðsíða 22
(25) Blaðsíða 23
(26) Blaðsíða 24
(27) Blaðsíða 25
(28) Blaðsíða 26
(29) Blaðsíða 27
(30) Blaðsíða 28
(31) Blaðsíða 29
(32) Blaðsíða 30
(33) Blaðsíða 31
(34) Blaðsíða 32
(35) Blaðsíða 33
(36) Blaðsíða 34
(37) Blaðsíða 35
(38) Blaðsíða 36
(39) Blaðsíða 37
(40) Blaðsíða 38
(41) Blaðsíða 39
(42) Blaðsíða 40
(43) Blaðsíða 41
(44) Blaðsíða 42
(45) Blaðsíða 43
(46) Blaðsíða 44
(47) Blaðsíða 45
(48) Blaðsíða 46
(49) Blaðsíða 47
(50) Blaðsíða 48
(51) Blaðsíða 49
(52) Blaðsíða 50
(53) Blaðsíða 51
(54) Blaðsíða 52
(55) Blaðsíða 53
(56) Blaðsíða 54
(57) Blaðsíða 55
(58) Blaðsíða 56
(59) Blaðsíða 57
(60) Blaðsíða 58
(61) Blaðsíða 59
(62) Blaðsíða 60
(63) Blaðsíða 61
(64) Blaðsíða 62
(65) Blaðsíða 63
(66) Blaðsíða 64
(67) Kápa
(68) Kápa
(69) Kvarði
(70) Litaspjald


Framtíðarsýn

Ár
1995
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
68


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Framtíðarsýn
http://baekur.is/bok/6b3ac37a-b4b3-4d9c-a9ab-a1b755adba2e

Tengja á þessa síðu: (64) Blaðsíða 62
http://baekur.is/bok/6b3ac37a-b4b3-4d9c-a9ab-a1b755adba2e/0/64

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.