loading/hleð
(4) Blaðsíða 2 (4) Blaðsíða 2
miðum og reynslu kvenna að við stjórn borgar og bæja, breyta þeim konum og börnum í vil og einnig að vekja athygli á fádæma lélegum hlut kvenna í sveitastjórnum landsins. Árang- urinn varð sá að Kvennaframboðin komu 2 konum að á Akureyri og i Reykjavík og konum fjölgaði úr rúmum 6% í 12% í sveitastjórnum. Snemma árs 1983 varð Ijóst að alþingis- kosningar voru í nánd. Þá hófust umræður um það hvort ekki væri full þörf á að pilsaþytur heyrðist í sölum alþingis og að einnig þar væri vakin athygli á því misrétti sem konur eru beittar leynt og Ijóst og einnig að koma sjón- armiðum og vermætamati kvenna að. Kvennalistinn leit dagsins Ijós í mars 1983 og bauð fram í þremur kjördæmum: Reykja- vík, Reykjanesi og Norðurlandi eystra. Kvennalistinn hafði skamman tíma til stefnu og geystust konur milli funda og vinnustaða í bæjum og milli héraða hvernig sem viðraði. Harðfiskur, blóm, merki, bolir og náttkjólar voru boðin til sölu og ágóðinn notaður til að fjármagna blaðaútgáfu, auglýsingar og annað það sem notað var til að boða fagnaðar- erindið. í fyllingu tímans eignaðist Kvennalistinn þrjár þingkonur, þær Sigríði Dúnu Kristmunds- dóttur, Guðrúnu Agnarsdóttur og Kristínu Halldórsdóttur. Konum fjölgaði á þingi úr 3 í 9 (úr 5% í 15%). Frá því að Kvennalistinn steig sín fyrstu spor á þingi hafa konur hans innan sem utan þings verið að feta sig áfram á hálum brautum stjórnmálanna, jafnframt því að byggja upp kvennahreyfingu og vinna með konum úr öðr- um flokkum og hreyfingum að ýmsum brýn- ustu hagsmunamálum kvenna. Áfram mun haldið skref fyrir skref þar til markmiðinu verður náð — að skapa breytt og betra þjóðfélag þar sem jöfnuður ríkir, bæði kynin fá að njóta sín og börnum verður tryggð framtíð friðar og réttlætis. Sigri fagnað 23. april 1983. 2 FRÁ KONU TIL KONU — KVENNALISTINN


Frá konu til konu

Ár
1984
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
20


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Frá konu til konu
http://baekur.is/bok/8e398a3a-cc87-4f62-9539-cf87ea582fd0

Tengja á þessa síðu: (4) Blaðsíða 2
http://baekur.is/bok/8e398a3a-cc87-4f62-9539-cf87ea582fd0/0/4

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.