loading/hleð
(15) Blaðsíða 13 (15) Blaðsíða 13
Uppeldismál Ein meginástæða valda- og áhrifaleysis kvenna í samfélaginu er sú að uppeldi og umönnun bama hvílir nær eingöngu á konum, án þess að það sé metið að verðleikum. Aukin og bætt þátttaka samfélagsins í uppeldi barna og jöfn foreldra- ábyrgð eru því viðfangsefni sem Kvennalistinn vill beita sér fyrir. Meiri hluti kvenna býr við margfalt álag vegna vinnu innan sem utan heim- ilis. Mæður sem vinna utan heimilis búa við stöðuga óvissu um öryggi bama sinna og standa ráðþrota þegar bömin þurfa sérstaklega á þeim að halda, svo sem við langvarandi veikindi eða aðlögun að dagvistun. Parfir bama hafa of oft lotið í lægra haldi fyrir þörfum vinnumarkaðarins. Stóraukinni þátttöku kvenna í atvinnulífinu hefur ekki verið mætt sem skyldi með aukinni þjónustu. Kvennalistinn vill gerbreyta þessu. Samfélaginu ber skylda til að búa vel að öllum bömum. Fjölga þarf samverustundum bama og fullorðinna með því að gefa foreldrum kost á styttri og sveigjanlegri vinnutíma. Lengi býr að fyrstu gerð. Því er brýnt að jafnréttisviðhorf ríki í dagvistun og í skólum, svo að stúlkur og drengir séu jafn vel búin undir líf og starf. 13


Stefnuskrá í borgarmálum 1986

Ár
1986
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
32


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Stefnuskrá í borgarmálum 1986
http://baekur.is/bok/bbfd88f5-f65e-45b2-aaee-8bbaf51cdffc

Tengja á þessa síðu: (15) Blaðsíða 13
http://baekur.is/bok/bbfd88f5-f65e-45b2-aaee-8bbaf51cdffc/0/15

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.