loading/hleð
(18) Blaðsíða 16 (18) Blaðsíða 16
Skólar Skipulag skólastarfs hér í borg miðast við löngu liðna tíð, þegar mæður voru almennt heima, sáu um að gefa bömum sínum mat í hádeginu og sendu þau í skólann oft á dag. Nú er öldin önnur, nánast allar mæður vinna utan heimilis. Yfirvöld láta þó sem allt sé óbreytt og bitnar það illa á foreldrum en þó verst á bömum. Skólar eru tvísetnir ef ekki margsetnir og skóladagur barna þar af leiðandi sundurslitinn. Ekki er almennt gert ráð fyrir aðstöðu til hvíldar og tómstunda í skólunum. Mötuneyti em ekki til staðar og aðeins um 6% bama höfðu aðgang að skóladagheimilum árið 1985. Mörg böm búa við sjoppufæði og götuna meðan foreldrar vinna sinn langa vinnudag. Slys á börnum á götum úti og í heimahúsum eru hér með því mesta sem þekkist í Norður-Evrópu. Gegn þeim má vinna með því að tryggja að böm eigi í hús að venda þann tíma sem foreldrar em við vinnu. Auka þarf þátttöku foreldra í skólastarfi og bæta tengsl heimila og skóla. Gmndvöllur farsæls skólastarfs er að til kennslustarfa fáist fólk með réttindi, en eins og nú horfir leita kennarar annarra starfa vegna lélegra launakjara og mikils vinnu- álags. Við viljum opna skólana fyrir hvers konar félagsstarfsemi og tómstundaiðk- un bama og unglinga. Við viljum að listmennt í skólum verði aukin og böm geti lært á hljóðfæri, dans eða aðra listmennt í skólanum sínum. Draga verður úr þeim aðstöðumun sem böm búa við í þeim efnum. Við viljum að lögum og reglugerðum um rekstrarkostnað skóla verði breytt þannig að hver skóli verði sem sjálfstæðust rekstrareining og að skólanefndir, skipaðar fulltrúum foreldra, nemenda og starfsfólks skólans, taki að hluta við störfum fræðsluráðs. Við viljum að skólum verði sköpuð skilyrði til að uppfylla þær skyldur sem grunnskólalögin kveða á um. Skólinn á að sinna hverjum einstaklingi í samræmi við þroska hans og þarfir. Kvennalistinn varar við hugmyndum um einkaskóla. Hætt er við að slíkir skólar búi yfir meira fjármagni en ríkisskólar og það leiði til frekari aðstöðu- munar á milli bama en nú er. 16


Stefnuskrá í borgarmálum 1986

Ár
1986
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
32


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Stefnuskrá í borgarmálum 1986
http://baekur.is/bok/bbfd88f5-f65e-45b2-aaee-8bbaf51cdffc

Tengja á þessa síðu: (18) Blaðsíða 16
http://baekur.is/bok/bbfd88f5-f65e-45b2-aaee-8bbaf51cdffc/0/18

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.