(10) Blaðsíða 8
Við viljum skilgreina hugtökin hagkvæmni og arðsemi á nýjan
hátt. Við viljum að í arðsemisútreikningum verði spurt — hver
verða áhrif ákvarðana á líf fólks í nútíð og framtíð og hvemig
samræmist arðsemin vemdun náttúmauðlinda.
Við viljum að tækni og þekking verði notuð í þágu okkar alha,
að við stjómum tækninni, en hún stjómi ekki okkur.
Hagkvæmnisútreikningar sem byggja á ofangreindum forsend-
um, en ekki á skjótfengnum peningagróða em undirstaða annars
verðmætamats — verðmætamats sem setur mannleg gildi og
félagslega samábyrgð í öndvegi.
GmndvaUaratriði í aUri efnahagsstefnu hlýtur að vera að
tryggja atvinnu og efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Við mót-
un hennar leggjum við til gmndvallar stefnu hinnar hagsýnu hús-
móður, stefnu sem miðar að því að íslendingar geti í sem ríkust-
um mæU Ufað á eigin framleiðslu og hagi útgjöldum í samræmi við
tekjur.
Við viljum efnahagsstefnu sem miðar að því að við fullvinnum
sjálf útflutningsvömr okkar í sem fjölbreytilegustu formi og að
við vinnslu þeirra séu það fremur gæði en magn sem ráði ferðinni.
Við viljum stórefla íslenskan smáiðnað og endurvinnsluiðnað af
ýmsu tagi til innanlandsnota. Með því vinnst tvennt. í fyrsta lagi
getum við þá dregið úr innflutningi neysluvamings og í öðm lagi
skapast aukin atvinna.
Við viljum miða veiðar og fiskiskipastól landsmanna við þol
fískistofna við landið, þannig að tryggt verði að við göngum ekki
of nærri þessari auðUnd, okkur sjálfum og afkomendum okkar til
óbætanlegs tjóns.
Við viljum fullvinna hér sjávarafurðir og efla rannsóknarstarf-
semi sem miðar að því að finna ný nýtanleg hráefni í sjávarútvegi
og bæta nýtingu þess hráefnis sem við nú öflum. Við viljum efla
gæðaeftirUt með vinnslu sjávarafurða og að það verði framkvæmt
8