loading/hleð
(10) Blaðsíða 6 (10) Blaðsíða 6
6 6h eigi skaltú heldur gjöra þjer upp fá- via;ku, því það er fyrirlitlegt. Dygðin er heilbrigði og fríðleiki sálarinnar, Mótluetið fö?r ljeðan sárasta brodd sinn fyá óþolinmæði vorri. þú mátt reiða þig á það, að sá maður getur ekki verið dygðugur sjálfur, sem aldrei þykist hafa hitt fyrir dygðugan rnann. það er eitthvert töfrainagn í sambúð kvenna, sem heíur lag á því, að spekja hina óstýrilátu, sefa hina hroðalegu og herða upp hina huglau.su. Sæll er sá, sem á trúan vin í neyð sinni; en sælli er þó hinn, sem eigi þarf vinar við. Ahnenningsálitið eitt cr lögmætur grund- völlur stjórnarinnar. Hlynntu að frækorni viðkvæmninnar, og mun það bcra blómlega ávexti góðgjörða- seminnar. Hlustaðu ekki á neitt illt uni vin þinn, og talaðu ekki ncitt illt um óvin þinn. þekkingin getur orðið að hciinsku, cf greindin vakir ekki yfir henni. Sá, sem lifir samkvæmtskynscminni, verð- ur aldrci snauður; sá, sem hagar sjer í hvert sinn, eins og lundin býður honum, verður aldrei ríkur, það er ekki staðurinn, sem manninn gjör- tr inerkan, heldur maðurinn, sem staðinn gjörir svo, Sá, sem ekki vill hcyra áininningar vinar gíns, verðskuldar atyrði óvinar. þungar stunur ýfa sár hjartans, og blíð- lcg orð hugga harmþrungin anda. það er heimska að minnast á það, sem vjer gleymum sjálfum oss fyrir. þolinmæði er berta ráð bæði við ást og ógæfu, Viaika prýðir auðlegðina og skýlir fátækt- inni. Ef þú vilt stæra þig, þá stærðu þig af góðverkum. Sá, scm þiggur velgjörning, ætti æfinlega að vera minnugur þess, ef hann annars vill heita góður maður. Sá, sem gjörir velgjörning, ætti að glcyma því óðar, ef hann ekki vill votta óveru- lund. Varastu bóklestur um nætur, ef þú vilt halda heilsu þinni og skilningi. það er torveldara að yfirbuga girndir, . en yfirvinna óvini. Sá, sem rill höndla ánægju, verður fyrst að leita að sakleysi. Losti er leiðarsteinn til eymdar og eyði- leggingar. Kjassaðu hvorki, nje kepptu við konu í viðurvist ókunnugra; annað er heiiuska, hitt vitleysa. Iðjulaus og útsláttarsöm stúlka er viss með að verða óþrifin kona, og kaldlynd móðir. Kvennamaður elskar aldrei; og þar sem enda ljettúð ræður, þar er sjaldan ástin hrein og heit. „Fljótur að cta, fljótur að vinna“ er sögn eins gömul og fjöllin; og aldrei var neitt orð sannara. það, sem cr elskað afhjarta, það er syrgt af lijarta. Að kefja niðurbráða reiði, er bæðikarl- mannlegt og guðdómlegt. Ofundin er eins og eldingin, það á bezt við hana svartasta myrkur. Dragðu það ekki til annars dags, sem gjöra átti í dag. Horfðu æfinlega framan ( menn, þegar þú ávarpar þá, og tíðast, þcgar þeir tala til þín. Engin stór borg getur til lengdar verið í friði: eigi hún ekki í stríði út í frá, þá liefur hún fjandmenn heima fyrir. Ekkert innrætir oss betur hóglæti, en sú reynsla, að vjer erum sjálfum oss ónógir. Hreinskilnin bætir úr mörgum brestum. Að styggja ekki, er hið fyrsta stig til að þókknast. Dylgjur gjöra saklausustu verk tortryggi- leg. það er engin sú staða til í lífinu, að eigi sje árvekni húsmóðurinnar í öllum búskap- arefnum óinissandi, til þess að heimilinu vegni vej, An þreklyndis áformar enginn stórræði, og afrekar enginn neitt það, sem erfiði er í og áhætta. Hjartað hefur ekki eins opnar dyr fyrir neitt, eins og fyrir smjaðrið, því það svæfir alla verði, eins og smnir töfradrykkir. Maður fyrirgefur svik, en gleymir þeim aldrei. Sá er mesti ógæfumaðurinn, sem álítur sjálfan sig að vera það. Smjaður er eins og svikknir peningar;


Nýársgjöf 1851 handa Íslendingum

Ár
1850
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
16


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Nýársgjöf 1851 handa Íslendingum
http://baekur.is/bok/a77bb572-09fe-47f0-b726-3efb9bc32452

Tengja á þessa síðu: (10) Blaðsíða 6
http://baekur.is/bok/a77bb572-09fe-47f0-b726-3efb9bc32452/0/10

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.