loading/hleð
(6) Front Cover (6) Front Cover
Guðmundur Thorsteinsson, eða Muggur, eins og hann var venjulega kallaður af kunnugum jafnt sem ókunn- ugum, var einn gáfaðasti og fjölhæf- asti listamaður, sem Island hefir átt. Það má segja, að allt hafi leikið honum i höndum. Hann var snjall málari og teiknari, en auk þess var hann leikari góður og gamanvísna söngvari. Greip hann oft til þess, þegar fjárhagur hans var þröngur, að syngja á skemrntunum, enda var hann hrókur alls fagnaðar, hvar sem hann kom. Muggur ól samanlagt sjálfsagt meir en helming æfi sinnar utanlands. Þó er hann að mörgu leyti meðal hinna þjóðlegustu íslenzkra myndlistarmanna, enda munu myndir hans ór íslenzkum þjóðsögum lengst halda nafni hans á lofti. Þótt hann væri af ríku fólki kominn. tæmdist honum snemma fe, enda var hann manna örlátastur og hafði litið fésýsluvit, svo sem títt er um listamenn. Þó var faðir hans, Pétur Thorsteinsson kaupmaður, talinn einn snjallasti athafnamaður Islands um langt skeið.


Sagan af Dimmalimm

Year
1942
Language
Icelandic
Pages
44


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Sagan af Dimmalimm
http://baekur.is/bok/d6359c2c-ce94-4e68-9d34-33b47df4effc

Link to this page: (6) Front Cover
http://baekur.is/bok/d6359c2c-ce94-4e68-9d34-33b47df4effc/0/6

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.