loading/hleð
(7) Blaðsíða 7 (7) Blaðsíða 7
Kveðja frá Óháða söfnuðinum Ný tegund af liósi Fyrir réttri öld fór slíkur straumur frelsis og framfara um íslenskt þjóðfélag að annað eins hafði ekki gerst síðan á fyrstu öldum íslands- byggðar. Framfarirnar voru á mörgum sviðum, bæði veraldlegum og andlegum. Árið 1904 fékk landið heimastjórn, fyrsta rafstöðin var gangsett og Fríkirkjusöfnuðurinn hafði verið stofnaður í Reykjavík og myndarleg kirkja reist. Stofnun safnaðarins átti það sammerkt með heimastjórninni að í báðum tilfellum var sótt fram til aukins frelsis, og Fríkirkjan átti það sammerkt með fyrstu rafstöðinni, að kveikt var Ijós á nýjan hátt, annars vegar ný tegund veraldlegs Ijóss en hins vegar ný tegund andlegs Ijóss. Ekki spáðu allir vel fýrir Fríkirkjunni. Til voru þeir sem töldu að í slíkum söfnuði myndu hinir rættust ekki. ( Fríkirkjusöfnuðinum í Reykjavík tók efnameiri verða ráðandi og skapa sér forréttinda- höndum saman fólk af öllum stéttum og þjóðfé- stöðu í krafti fjármagns, sem væri í ósamræmi lagshópum sem hafði svipaða sýn á nauðsyn þess við boðskap Krists. Að því leyti væri þjóðkirkja að kirkjan væri frjáls og lýðræðisleg innan frá en heppilegra form því hún væri fjármögnuð af því ekki háð ríkisvaldinu. Nú, eftir aldar langan feril ríkisvaldi sem ætti uppsprettu hjá fólkinu sjálfu. Fríkirkjunnar.sýna skoðanakannanir að þeim fjölg- En hver hefur reynslan orðið? Strax í upphafi ar jafnt og þétt sem vilja aðskilnað ríkis og kirkju. kom í Ijós að þessar hrakspár fýrir fríkirkjunni Það þýðir í raun að þeim fer fjölgandi sem vilja gera kirkjuna frjálsa og óháða ríkisvaldinu, sem sé að fríkirkju. Þetta ætti að vera uppörvun fyrir fríkirkjusöfn- uði landsins, og farsæl saga fríkirkjunnar hefur sannað réttmæti þeirra sjónarmiða sem hún er byggð á. Rúm hálf öld er síðan flokkadrættir vegna prestkosninga ollu því að Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík klofnaði og Óháði söfnuðurinn var stofnaður. Á hálfrar aldar afmæli Óháða safnaðar- ins lýstu talsmenn beggja safnaðanna yfir því að fyrir löngu væri búið að jafna þau mál og þau væru úr sögunni, enda eru kærleikur og fyrirgefning kjarni kristninnar. Nú horfa fríkirkjusöfnuðirnir í bræðrabandi fram á við, bjartsýnir, samstíga og einhuga. Frí- kirkjusöfnuðirnir í Reykjavík eru greinar á sama meiði. Á þessum merku tímamótum í sögu Frí- kirkjusafnaðarins í Reykjavík sendir Óháði söfn- uðurinn bræðra- og systur-söfnuði sínum hugheil- ar árnaðaróskir og þakkar fyrir gott samstarf á liðnum árum. Ómar Ragnarsson sendir kveðju frá Óháða söfnuð- inum á aldarafmæli Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík M i | - 4 Wfcl L Lm j- pE| . * hd ■:W -•*' • v ■ B. Jp iV 1 ' wÉ . Wí> M L . /J Bl ' 1 'mi 1 ' V m « W - V Mynd af Kristilegu félagi ungra manna Fríkirkjusafnaðarins 1947. Fremsta í mynd má greina sitjandi: Sigurður Halldórsson formann safnaðarstjórnar, Sr. Árna Sigurðsson Fríkirkjuprest, Jón Arason formann bræðrafélagsins. Standandi eru meðal annarra ónafngreindra: Hjalti Geir Kristjánsson, Sr. Hannes Guðmundsson,Jóhannes Örn Óskarsson, Gunnar B. Bjarnason, Helgi Sesselíusson, Guðmundur Ó. Eggertsson, Helgi Hersveinssonjens Jónsson, Björgvin Guðmundssonjóhann Erlendur Óskarsson og Þorkell Valdimarsson. Fríkirkjan í Reykjavík 7


Fríkirkjan í Reykjavík

Ár
2004
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
32


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Fríkirkjan í Reykjavík
http://baekur.is/bok/f4b3a6a4-737c-4f5c-8fd7-3a4f60be73d8

Tengja á þessa síðu: (7) Blaðsíða 7
http://baekur.is/bok/f4b3a6a4-737c-4f5c-8fd7-3a4f60be73d8/0/7

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.