loading/hleð
(37) Blaðsíða 37 (37) Blaðsíða 37
25 ára afmælisrit Stómasamtakanna „Hreyfing er nauðsynleg fyrir líkama og sál“ segir Örn Agnarsson stómaþegi Örn Agnarsson hefur starfað sem verkamaður hjá álverinu í Straumsvík í liðlega 30 ár eða frá 1972. Hann hefur unnið í kerskála, við höfnina en lengst af sem öryggisvörður. Hann gekkst undir stómaaðgerð 1977, þá tæplega þrítugur að aldri. Örn hefur verið mjög virkur í starfi Stómasamtakanna; tók þátt í undirbúningi samtakanna og er því einn af stofnfélögunum. Hann hefur þrívegis verið kjörinn formaður samtakanna, fyrst 1983. Þá hefur hann verið í heimsóknarþjónustunni frá því hún var mynduð og þeir eru því ófáir, sem lent hafa í stómaaðgerð, sem notið hafa leiðbeiningar hans. Einhvern tíma á árinu 1977 veiktist ég hastarlega og var bókstaflega við dauðans dyr. Ég missti skyndilega allan mátt og datt niður. Þú lentir í miklum hremmingum áður en þú fórst í aðgerð? Það er víst óhætt að segja það. Ég veiktist af ristilbólgum haustið 1975 og var skorinn upp tæpum tveimur árum síðar. Aðdragandinn var því harla skammur. Einhvern tíma á árinu 1977 veiktist ég hastarlega og var bókstaflega við dauðans dyr. Ég missti smám saman allan mátt og kraft. Það hefur stundum verið sagt að þeir sem lenda á milli lífs og dauða sjái Ijósið og það gerði ég sannarlega í þetta sinn. Ég bjó þá í Ytri-Njarðvík og systir mín ók mér á Landakot í einum logandi hvelli. Á Landakoti reyndu þeir hvað þeir gátu til að lækna meinið en svo gerist það að ristillinn springur á þremur stöðum og því var ekki um annað að ræða en skera mig í hvelli. Ég hefi aldrei liðið aðrar eins kvalir og þá. Aðgerðin tók 4-5 klst. Ég var lengi með næringu í æð og á þessum tíma léttist ég um rúmlega 40 kg. eða úr 82,5 kg. í 40. Meðan meltingin var að komast í lag fékk ég eingöngu barnafæði og ég man hve ánægður ég var þegar ég fékk fyrstu raunverulegu máltíðina. Þú hafðir lagt stund á íþróttir á þessum árum og gerir reyndar enn. Heldurðu að þessi ástundun hafi skipt sköpum? Það er engin spurning. Ég er sannfærður um að ég hefði ekki haft þetta af ef ég hefði ekki verið í svona líkamlega góðu formi. Ég stundaði lyftingar, sund og skíði á þessum árum og geri enn. Stómað verður engin hindrun því þegar ég lyfti þungum lóðum nota ég sérhannað leðurbelti sem herðir að stómanu án þess að meiða það. Ég hefi tekið þátt í mótum hjá lömuðum og fötluðum þar sem ég var greindur til að taka þátt í ákveðnum flokki. Vegna stómans get ég ekki tekið þátt í hvaða grein sem er en sú grein sem ég legg aðallega stund á er bekkpressa. Markmið mitt nú er að taka þátt í mótum sem ætluð eru þeim sem eru á aldrinum 50-60 ára. Það hefur hins vegar ekki orðið af þvi ennþá því ég hefi verið að ná mér eftir bílslys sem ég lenti í fyrir þremur árum sem hafði m.a. þær afleiðingar að brjóstkassinn brotnaði. Ég átti allt eins von á því að fara í aðgerð vegna stómans því hún var hálfóvirk eftir slysið en einhvern veginn hefur þetta jafnað sig. Hreyfing í hvaða formi sem er er sálarbætandi. Þú leggur mikið upp úr líkamlegri þjálfun? Það er ekkert vafamál að hreyfing í hvaða mynd sem er er ekki aðeins nauðsynleg fyrir heilsuna heldur ekki síður fyrir andlega líðan. Líkamleg og andleg vellíðan fer saman. Maður hefur orðið var við það i fjölmiðlum upp á síðkastið að fólk sem á í einhvers konar sálrænum vandamálum sé hvatt til að hreyfa sig. Þetta eru engar nýjar fréttir fyrir mig. Það er löngu vitað að hreyfing í hvaða formi sem er er sálarbætandi. 37
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44


25 ára afmælisrit Stómasamtaka Íslands 1980-2005

Ár
2006
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
44


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: 25 ára afmælisrit Stómasamtaka Íslands 1980-2005
http://baekur.is/bok/ba45aae8-7b8b-4896-96a8-81d176881fb5

Tengja á þessa síðu: (37) Blaðsíða 37
http://baekur.is/bok/ba45aae8-7b8b-4896-96a8-81d176881fb5/0/37

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.