loading/hleð
(5) Blaðsíða 5 (5) Blaðsíða 5
25 ára afmælisrit Stómasamtakanna Og konan kom, brosandi og jákvæð, svaraði öllum mínum spurningum. Settist meira að segja á rúmstokkinn og hneppti örlítið pilsinu frá pokanum. Þú hefurþá væntanlega farið bjart- sýnni í aðgerðina eftir heimsóknina? Því er skemmst frá að segja að til London fór ég á sjúkrabörum í fylgd Hauks og skilaði hann mér í hendur skurðlæknanna á St. Mark's með Mr. P. R. Hawley í broddi fylkingar sem þá var talinn einn fremsti læknir á þessu sviði á Bretlandseyjum. Sjúkraflutningamaður á Heathrow flugvelli sagði við mig þegar hann renndi mér inn í bílinn: „Þú ert óvenju hress og kátur af sjúklingi að vera.“ Ég svaraði: „Já, það er vegna þess að ég hitti konu um daginn sem sannfærði mig um að það er líf eftir stóma.“ Það hafa reynst orð að sönnu. Konan var Sigríður Flygenring og við vorum meðal þeirra sem stofnuðum Stómahópinn 1977 og Stómasamtökin 1980. Hvert var fyrsta verkefni ykkar í Stómahópnum? Á meðal fyrstu verkefnanna, auk þess að tryggja gott og öruggt framboð hjálpartækja, var að stofna heimsóknar- þjónustu og höfum við bæði ásamt mörgum öðrum stómaþegum heimsótt sjúklinga á spítölum og jafnvel í heima- húsum því að við vitum að slíkar heim- sóknir geta skipt sköpum þegar fólk er að búa sig undir aðgerðir. Framfarir í læknisfræði og hjúkrun eru mikils virði en okkar hlutverki geta engir aðrir tekið við vegna reynslu okkar. Það skiptir miklu máli hvernig sjúklingar eru undirbúnir andlega og viðhorf þeirra til læknisaðgerðarinnar sem slíkrar. Bati að henni lokinni getur ráðist nokkuð af þeim undirbúningi. Eftir aðgerð vakna líka ýmsar spurningar sem gott er að fá svör við. Internetið er gott og gagnlegt til viðbótar þeim ráðum og upplýsingum sem hið ágæta starfsfólk heilbrigðiskerfisins veitir. Engu að síður tel ég heimsókn stómaþega með reynslu geta skipt sköpum líkt og gerðist hjá mér tæplega 30 ára gömlum síðla vetrar 1974. CCU - Crohn's og Colitis Ulcerosa samtökin á Islandi Ásgeir Theódórs meltingarsérfræðingur er frumkvöðull að stofnun CCU-samtakanna en þegar hann var í sérnámi í Bandaríkjunum sá hann hvað slík samtök gera fyrir sjúklinga. Eftir að hafa rætt þessi mál við kollega sinn voru fimm sjúklingar boðaðir á St. Jósefsspítala til fundar við Ásgeir og tvo hjúkrunarfræðinga á St. Jósefsspítala til umræðu um stofnun slíkra samtaka. Þetta var haustið 1992. Eftir þennan fund var farið í undirbúningsvinnu og bréf sent til meltingasérfræðinga og sjúklinga með bólgusjúkdóma í smáþörmum og ristli, þ.e. Crohn's og Colitis ulcerosa, og þeir beðnir að hafa samband við undirbúningshópinn. Undirbúningsfundur var haldinn í Gerðubergi 23. mars 1993. Þar mættu fimm manna undirbúningsnefnd, tveir aðstandendur og ellefu sjúklingar - af 450 sem þá var vitað um. Ekki gekk að stofna samtökin formlega í þetta sinn eins og vonast hafði verið til en undirbúningshópurinn hélt ótrauður starfi sínu áfram og í september 1995 voru aftur send bréf til meltingarsérfræðinga og einnig til allra heilsugæslustöðva landsins með auglýstum stofnfundi 26. október. Einnig var hringt í alla sem fengu bréf og bar þetta það góðan árangur að á stofnfundinn mættu 70-80 manns. í lögum CCU-samtakanna segir að tilgangur þeirra sé að styrkja velferð félaga með stuðningi, fræðslu, þýðingu á fræðsluefni og gæta þess að samtökin nái til félaga um allt land. Félagar í CCU hafa farið í heimsókn til sjúklinga þegar þess er óskað og eins verið í símasambandi við þá. CCU-samtökin hafa verið ötul við að kynna starfsemi sína út á við. Þau hafa dreift bæklingum til lækna, spítala og lyfjaverslana, farið í útvarpsviðtal og fengið umfjöllun í Morgunblaðinu. Að undanförnu hafa CCU-samtökin og Stómasamtök íslands haft með sér samstarf og til dæmis haldið sameiginlega fundi enda er óhætt að segja að áhugamál þeirra skarist. CCU-samtökin eru með talhólf: 881 3288 og eru hér með allir sem áhuga hafa á starfi þeirra hvattir til að hafa samband. Heimasíðan er doktor.is/ccu og netfangið ccu@isl.is. 5
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44


25 ára afmælisrit Stómasamtaka Íslands 1980-2005

Ár
2006
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
44


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: 25 ára afmælisrit Stómasamtaka Íslands 1980-2005
http://baekur.is/bok/ba45aae8-7b8b-4896-96a8-81d176881fb5

Tengja á þessa síðu: (5) Blaðsíða 5
http://baekur.is/bok/ba45aae8-7b8b-4896-96a8-81d176881fb5/0/5

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.