loading/hleð
(15) Blaðsíða 11 (15) Blaðsíða 11
1930. Á þennan hátt eru fengnar tölur þær, sem hér fara á eftir um meðallag úrkomunnar á nokkrum stöðvum: Stöðvar: Jan. Feb. Marz Apr. Maí Júní Júlf Ág. Sept. Okt. Nóv. Des. 4rið Akureyri 40 35 30 25 20 25 30 35 40 45 45 40 410 Rlönduós 30 25 25 25 25 30 40 50 55 50 35 35 425 Grímsstaðir 25 25 20 20 25 30 40 45 40 35 25 30 360 Hæll í Hreppum 100 80 80 60 60 60 70 70 110 110 100 90 990 Raufarhöfn 30 25 25 25 30 40 55 70 75 70 45 35 525 Reykjavfk 85 75 55 45 35 40 45 45 75 80 75 80 735 Stórhöfði, Vm. 130 120 100 80 70 60 70 80 130 140 130 120 1230 Stykkishólmur 79 70 54 40 33 37 35 39 68 83 73 69 680 Suðureyri 100 80 60 50 40 40 40 50 100 130 120 90 900 Teigarhorn 146 109 97 82 70 65 70 88 136 13J 111 139 1256 Meðallal 76 64 54 45 42 43 49 57 83 88 76 73 750 % ársúrkomu 10.2 8.5 7.2 6.0 5.6 5.7 6.5 7.6 11.1 11.7 10.2 9.7 100.0 Þessi tafla ber það greinilega með sér, að úrkoman er minnst á vorin, víðast í maí eða júní ,en mest á haustin, í september eða október. Meðaltal þessara 10 stöðva gefur allgóða mynd af árstíða- breytingunni í byggðum landsins, því að stöðvarnar eru fremur .iafnt dreifðar um landið allt. Ef menn þekkja ársúrkomuna á til- teknum stað, og það verður helzt gert af kortinu á 4. mynd, er þvi hægt að reikna út meðallagsúrkomu hvers mánaðar á staðn- um. Sem dæmi má taka Borgarnes. Samkvæmt kortinu er árs- úrkoman þar um 800 mm, og sé reiknað með hæðinni 0 yfir sjó, bætist engin leiðrétting við þessa tölu. Ef úrkomunni er nú skipt á mánuðina eftir sömu hlutföllum og meðaltal stöðvanna sýnir, verður úrkoma hvers mánaðar þessi, í millimetrum: Jan. Febr. Marz Apr. Maí Júní Júlí Ág. Sept. Okt. Nóv. Des 81 68 58 48 45 46 52 61 89 94 81 77 Eins og gefur að skilja er ekki hægt að treysta nákvæmni þess- ara talna. Mjög er sennilegt, að skekkjan sé 10—20%. og sums- staðar gæti jafnvel skakkað helmingi. En betri upplýsingar er bó vart að fá nema úrkomumælingar verði auknar að mun, og þá ekki fyrr en eftir margra ára mælingar. Úrkoman getur verið af- ar breytileg eftir staðháttum, og til dæmis virðist úrkoman í Loftsölum aðeins vera um 80% úrkomunnar 1 Vík í Mýrdal. þótt örstutt sé á milli. FRÆfíSr.URrT BF. fSL. 11


Hvernig er veðrið?

Ár
1956
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
28


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Hvernig er veðrið?
http://baekur.is/bok/d46f5869-1c74-4c45-9f7f-14ba5b715b41

Tengja á þessa síðu: (15) Blaðsíða 11
http://baekur.is/bok/d46f5869-1c74-4c45-9f7f-14ba5b715b41/0/15

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.