loading/hleð
(7) Blaðsíða 3 (7) Blaðsíða 3
Hvað er meðalfag? í daglegu taii er mönnum mjög gjarnt að miða afkomu sína og annaö við meðalárferði. Þetta er gott og blessað, ef menn vita þá sj alfir, hvernig þetta meðalárferði er. Að vísu er ekki nauðsynlegt að vita það nákvæihlega, ef ekki er mikillar nákvæmni krafizt. n sé það gert, vandast málið. Jafnvel þótt vitað sé örugglega um meðalárferði síðustu 30 ára, og fæstir hafa aðstöðu til að þekkja vei miklu lengra tímabil sjálfir, þá er ekki víst nema það tíma- bil sé einmitt óeðlilega hagstætt eða erfitt. Það er því nauðsyn- legt, að allir miði við sama meðallag á hverjum stað, og í veður- fræðinni hafa menn komið sér saman um að nota í þessu skyni fyrsta hluta 20. aldar, árin 1901—1930. Þau meðallög hita og úr- komu, sem hér fara á eftir, eru því öll miðuð við þetta tímabil, að svo miklu leyti sem unnt er. Er sjálfsagt að reyna að fylgja þéss- ari reglu, þótt sá bagi sé að henni, að veðurathuganir hér á landi voru mjög óviða á þessum árum. Sú aðferð hefur því verið höfð aö lagfæra meðaltöl seinni ára með hliðsjón af þeim breytingum sem orðiö hafa síðan 1901—1930 á þeim stöðvum, sem starfað hafa allt frá aldamótum. Hvernig á ad nota kortin? Gera má ráð fyrir, að ýmsum komi ókunnuglega fyrir sjónir kort þau, sem hér eru birt, og er því nauðsynlegt að gefa á þeim nokkra skýringu. Kortin eru einföld fslandskort, þar sem sýnd er strandlengjan, en auk þess jöklamörk og allar helztu ár og stöðuvötn. Ættu því flestir að geta staðsett sveit sína og jafnvel bæi sína á kortunum þó að engin séu nöfnin sýnd á þeim. Ekki er nauðsynlegt að finna tiltekinn stað með mjög mikilli nákvæmni, en þó er gott til stuðn- FRÆÐSLURIT BF. ÍSL. 3


Hvernig er veðrið?

Ár
1956
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
28


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Hvernig er veðrið?
http://baekur.is/bok/d46f5869-1c74-4c45-9f7f-14ba5b715b41

Tengja á þessa síðu: (7) Blaðsíða 3
http://baekur.is/bok/d46f5869-1c74-4c45-9f7f-14ba5b715b41/0/7

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.