loading/hleð
(1) Page 1 (1) Page 1
F RÍ KIRKJAN í REYKJAVÍ K 1899-2009 HÁTÍÐARRIT Stofnun Fríkirkjunnar í Reykjavík í lok 19. aldar er með merk- ari atburðum íslenskrar kirkjusögu. Frá byrjun var Fríkirkjan grasrótarhreyfing og nýtt lýðræðisafl í ferskum anda nýfengins trúfrelsis. Hún var stofnuð af íslenskri alþýðu en ekki goðum, höfðingjum, valds- eða embættismönnum. Iðnaðarmenn og barn- margar verkamannafjölskyldur voru í fararbroddi sem og fjöl- skyldur sjómanna og bænda sem voru að flytja til Reykjavíkur. Stofnun Fríkirkjunnar gegndi mikilvægu hlutverki í sjálfstæðisbaráttu ís- lendinga. Stofnunin og síðan bygging hinnar stóru viðarkirkju við Tjörnina einkenndist af einstakri framtakssemi, trú, von og djörfung. Á fyrri hluta síðustu aldar tilheyrði helmingur íbúa Reykjavíkur Fríkirkjunni og því hefur hún alltaf verið miðlæg í sögu borgar og menningar- lífs landsmanna. Allir eru velkomnir í Fríkirkjuna, óháð þjóð- erni, litarhætti, tungumáli, kyni, kynhneigð, samfélagsstöðu eða trú. Okkar samfélagslegu gildi og trúarlegu leið- arljós hafa frá upphafi verið: Heiðarleiki, jafn- ræði, frelsi, djörfung, mannréttindi, umburðar- lyndi og víðsýni. Allt eru þetta gildi sem eiga sér djúpar og órjúfanlegar rætur í þjóðarsál okkar. Fríkirkjan í Reykjavík þakkar af alhug þeim mörgu sem hafa haldið uppi og leitt starf kirkjunnar í 110 ár. Víst er að Kvenfé- lag Fríkirkjunnar hefur átt ríkulegan þátt í flestum þeim fram- faramálum er Fríkirkjan hefur komið að. Blað þetta er helgað fjölmörgum velunnurum og það er von okkar að í því megi finna fróðleik um sögu okkar og starf, hugsjónir og framtíðarsýn. Heiðarleiki Jafnræði Frelsi Djörfung Geymið blaðið Mannréttindi Umburðarlyndi Víðsýni


Fríkirkjan í Reykjavík 110 ára

Year
2009
Language
Icelandic
Pages
12


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Fríkirkjan í Reykjavík 110 ára
http://baekur.is/bok/15d9ec83-81b9-446e-bdcc-d178853ae121

Link to this page: (1) Page 1
http://baekur.is/bok/15d9ec83-81b9-446e-bdcc-d178853ae121/0/1

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.