(11) Page 11
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2009
hátíðarrit fríkirkjunnar • 11
---------------------------------'
Helgihald og tónleikar
í Fríkirkjunni í Reykjavík 2009
19. nóvember
Fimmtudagur: í tilefni þess að Fríkirkjan f
Reykjavík var stofnuð á þessum degi fyrir 110
árum, árið 1899, verður kirkjan opin frá kl.
11.00 til 16.00.
22. nóvember
Sunnudagur: Kl. 11.00 Hátíðarguðþjónusta í
tilefni 110 ára afmælis kirkjunnar. Athugið:
Breyttur tími. Hjörtur Magni Jóhannsson,
fríkirkjuprestur predikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt Pétri Þorsteinssyni, presti Óháða
safnaðarins. Anna Sigríður Helgadóttir og
Carl Möller ásamt kór Fríkirkjunnar leiða
og flytja tónlist. Guðþjónustunni verður
útvarpað beint á RÚV. Að athöfn lokinni
verður komið saman í safnaðarheimilinu
þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.
25. nóvember
Miðvikudagur: Kl. 12.15 Hádegistónleikar.
Listrænn stjórnandi Gerrit Schuil.
26. nóvember
Fimmtudagur: Kl. 12.00 Kyrrðar- og fyrir-
bænastund f kapellu. Kaffi og samfélag á eftir.
29. nóvember
Fyrsti sunnudagur í aðventu: Kl. 14.00 Guð-
þjónusta og barnastarf.
2. desember
Miðvikudagur: Kl. 12.15 Hádegistónleikar.
Listrænn stjórnandi Gerrit Schuil.
Kl. 19.30 Jólafundur Kvenfélags Fríkirkjunnar f
safnaðarsal.
KL 20.00 Tónleikar með Flugfreyjukórnum
3. desember
Fimmtudagur: Kl. 12.00 Kyrrðar- og fyrir-
bænastund í kapellu. Kaffi og samfélag á eftir.
6. desember
Annar sunnudagur I aðventu: Kl. 14.00
Guðsþjónusta og bamastarf.
Kl. 20.00 Aðventukvöld. Anna Sigriður
Helgadóttir og Carl Möller ásamt kór
Frlkirkjunnar flytja fjölbreytta aðventu- og
jólatónlist. Anna Kristine Magnúsdóttir, rit-
höfundur og fjölmiðlakona, les úr nýrri bók
sinni, Milli mjalta og messu. Ræðumaður
kvöldsins er Herdís Þorvaldsdóttir, leikkona
og fyrrum formaður Lífs og lands. Sérstak-
ir gestir eru tónlistarmennirnir Magnús
Eiríksson og Pálmi Gunnarsson, sem flytja
nokkur lög af sinni alkunnu snilld.
9. desember
Miðvikudagur: Kl. 12.15 Hádegistónleikar.
Listrænn stjórnandi Gerrit Schuil.
10. desember
Fimmtudagur: Kl. 12.00 Kyrrðar- og fyrir-
bænastund f kapellu. Kaffi og samfélag á eftir.
KI. 20.00Tónleikar með Ellen Kristjánsdóttur
12. desember
Laugardagur. Kl. 20.00 Tónleikar með Eyvör
Pálsdóttur
13. desember
Þriðji sunnudagur i aðventu: Kl. 14.00
Jólatrésskemmtun hefst f kirkjunni með stuttri
helgistund, en heldur sfðan áfram í safnað-
arheimilinu og fjör færist f leikinn. Dansað
f kringum jólatréð og jólasveinninn kemur f
heimsókn færandi góðar gjafir.
Kl. 17.00 Jólaljóss - styrktartónleikar á að-
ventu til styrktar atvinnulausum. Fram koma
m.a. Guðrún Gunnarsdóttir, Karlakór Kjal-
nesinga, Jóhann FriðgeirValdimarsson, Egill
Ólafsson, Hjörleifur Valsson, Anna Sigrfður
Helgadóttir, Sigurður Flosason og hljómsveit.
Ejnnig syngur Kirkjukór Lágafellssóknar.
Stjórnandi og forsvarsmaður tónleikanna er
Jónas Þórir.
16. desember
Miðvikudagur: Kl. 20.00 Blásarakvintett
Reykjavfkur. Kvöldlokkur á jólaföstu.
17. desember
Fimmtudagur. Kl. 12.00 Kyrrðar- og fyrir-
bænastund f kapellu. Kaffi og samfélag á eftir.
Kl. 20.00 Tónleikar með Gunnari Þórðarsyni
og Svavari Knúti.
20. desember
Fjórði sunnudagur I aðventu. Kl. 14.00
Helgistund fyrir alla fjölskylduna.
Kl. 17.00 Heilunarguðsþjónusta á vegum
Sálarrannsóknarfélags Islands, Fríkirkjunnar og
Kærleikssetursins.
23. desember
Þorláksmessa. Kl. 21.00 Tónleikar-Árstíðir.
24. desember
Aðfangadagskvöld. IG. 18.00 Hátfðarguðs-
þjónusta fyrir alla fjölskylduna, jólin sungin
inn. Anna Sigrfður Helgadóttir syngur einsöng
og Carl Möller er organisti.
Kl. 23.30 Miðnætursamvera. Páll Óskar og
Monika Abendroth koma fram.
25. desember
Jóladagur. Kl. 14.00 Hátíðarguðsþjónusta.
31. desember
Gamlársdagur. Kl. 14.00 Guðsþjónusta á
Elli- og dvalarheimilinu Grund.
Gamlárskvöld. Kl. 18.00 Hátfðarguðs-
þjónusta.
_____________________________________/
w
j „Égheftekið
j þátt í mið-
j næturmessu
j Fríkirkjunn-
j aráaðfanga-
; dagskvöld
j síðan árið
j 2002. Þessi stund hefur alltaf
j fangað anda jólanna, og snort-
j in af fegurð og friði hef ég farið
j út íjólanóttina."
Monika Abendroth, hörpuleikari.
w
j „í huga
j mínum hefur
j Fríkirkjan
I orðið ein af
j fáum kirkjum
j þarsemallt
j virðist koma
’j saman. Hún er
j falleg og kyrrlát og þýr yfir ein-
j stöku andrúmslofti. Vegna frá-
j bærs hljómburðar er kirkjan full-
j kominn staður fyrir hið talaða
j orð og tónlistarflutning. Fríkirkj-
j an er hús þar sem manni líður
j eins og maður sér kominn heim
j og veitist að taka á móti eilífum
j innblæstri Skaparans."
: Gerrit Schuil, píanóleikari.
Kirkjan okkar er
táknmynd Reykjavíkur
Um þessar mundir höldum
við upp á 110 ára afmæli
Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík.
Söfnuðurinn var stofnaður
sem lúterskur fríkirkjusöfnuð-
ur árið 1899, en framkvæmdir
við kirkjubygginguna hófust árið
1901. Kirkjan var síðan fullbyggð
og vígð árið 1904.
Ári síðar eða árið 1905 þurfti
síðan að stækka kirkjuna og enn
á ný, árið 1941 voru byggðar við-
byggingar við kirkjuna.
Fríkirkjan er önnur kirkjan
sem reist er í Reykjavík. Bærinn
var þá ekki stór en hefur stækkað
mikið síðan. Fjölmargar kirkjur
voru reistar í Reykjavík á þessum
árum og söfnuðir stofnaðir í öllum
hverfum borgarinnar og nágrenni.
Fríkirkjusöfnuðurinn hefur vaxið
og dafnað á þessum tíma og er nú
orðinn einn stærsti kirkjusöfnuð-
ur á Reykjavíkursvæðinu.
Steindór I. Ólafsson
Kirkjan okkar við Tjörnina í
Reykjavík er fyrir löngu orðin
táknmynd Reykjavíkur, þar sem
hún birtist á fjölmörgum myndum
af miðborg Reykjavíkur. Þar sem
kirkjan speglast í tjörninni, er hún
frábært myndefni fyrir ljósmynd-
ara. Hljómburður kirkjunnar er
mjög góður og nýtur hún því mik-
illa vinsælda hjá hljómlistarfólki,
sem sækist eftir að halda tónleika
í kirkjunni. Það hefur því verið
góð nýting á kirkjunni okkar, dag-
skráin verið fjölbreytt og dregið
að nýja safnaðarmeðlimi.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson
var ráðinn prestur og forstöðu-
maður safnaðarins fyrir rétt-
um tíu árum. Hann hefur unnið
ötult starf og verið duglegur við
að finna ný og krefjandi verkefni
fyrir söfnuðinn. Hann hefur notið
mikilla vinsælda og hefur söfn-
uður okkar rúmlega tvöfaldast á
þessu tímabili og nær nú yfir allt
stór Reykjavíkursvæðið.
Um leið og við fögnum þess-
um áfanga í sögu Fríkirkjunnar
óskum við söfnuðinum og starfs-
fólki kirkjunnar velfarnaðar á
komandi árum.
Steindór I. Ólafsson,
formaður safnaðarráðs.
SJÓVÁ
w
| „Pabbi og
; mamma
j sungu með
I Fríkirkju-
j kórnum um
j margra ára
; skeið og
j tóku mig með í allar messurnar.
j Seinna kom það í minn hlut að
j sjá um tónlistarflutninginn í fjöl-
j mörgum athöfnum þar, brúð-
j kaupum, jarðarförum sem og
j á hátíðarstundum. Fríkirkjan í
j Reykjavík er stærri partur af lífi
j mínu en marga grunar."
Pdll Öskar Hjúlmtýsson, söngvari.
99............
j „Eftiler
; hugsun sem
j er óhugs-
j andi, þá rúm-
; asthúninnan
j Fríkirkjunnar.
j Fyrirsunnan
j Fríkirkjuna, fyrir norðan Fríkirkj-
j una, fyrir austan hús og vestan
! er fagurt um að litast og innan
j hennar rúmast sérhver mann-
j leg hugsun."
Egill Ólafsson, tónlistarmaöur.
FRÍKIRKJAN í REYKJA.VÍK.
1