loading/hleð
(15) Blaðsíða 7 (15) Blaðsíða 7
7 ingu. Agóði af nafnsverðs- og' gengismun skal lagður \iS innstæSuna. 5. gr. Af vöxtum sjóðsins skal greiða kostnað allan við stjórn sjóðsins og rekstur, en leggja allan afganginn við höfuðstólinn, uns hann er orðinn 10.000 kr. Skal i þessu sambandi telja verð skuldabrjefanna eftir inn- kaupsverði þeirra. Þegar höfuðstóllinn licfir náð ofangreindri upphæð, skal úr því (að frádregnum útgjöldum við stjórn og rekstur sjóðsins) aðeins leggja 20% af ársvöxtunum við hann, á meðan jeg eða meðundirrituð kona mín erum á lifi, afganginn, 80%, skal meðan jeg er á lífi, greiddur mjer, og síðan meðundirritaðri konu minni, ef hún lifir mig, meðan liún er á lífi, til undirhún- ings næstu útgáfu bókarinnar. Þegar við erum dáin bæði, skal stjórnin ráða einn eða fleiri menn til undirbúnings næstu útgáfu, og má til þess verja 80% af ársvöxtunum, en 20% leggist áfram við liöfuðstólinn. Til skýringar á 5. gr. skal jeg leyfa mjer að skjóta hjer inn grein úr eignasamningi okkar Sigfúsar Blön- dals. ()g er hún þannig: „5. Rentur af orðabókarsjóði: Af útborgun jieirri af rentum orðabókarsjóðsins, sem ákveðin er, samkvæmt skipulagsskrá hans, skal Sig- fús Blöndal greiða Björgu Þ. Blöndal helming' upp- hæðar, enda taki hún að sjer að vinna eða sjá um vinnu á alt að helmingi eftir samkomulagi af störf- um þeim, er stofnendur eða stjórn sjóðsins ákveða að láta framkvæma ár hvert viðvíkjandi orðasöfnun og undirbúningi næstu útgáfu orðabókarinnar. Þessi greiðsla fellur hvorki burt við giftingu nje fasta at- vinnu eða stöðu“.


Ísland skapar fordæmi

Ár
1928
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
24


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Ísland skapar fordæmi
http://baekur.is/bok/07394a61-ccc8-4474-85ab-d3a7691dd352

Tengja á þessa síðu: (15) Blaðsíða 7
http://baekur.is/bok/07394a61-ccc8-4474-85ab-d3a7691dd352/0/15

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.