(6) Blaðsíða 4
4
Braut mín lá yfir brenndar raumstennur,
og þar við kennda þj áning hugar.
Á fjallseggjasólar flagðahnúksstólpanum,
kveið jeg fyrir þeim Krakadætrum;
hjelt jeg því fram um haflatanga,
þar logaleif lá í nábýlum.
þórsdrykkir skemmdu mjer þessar slóðir,
því rúnahlýri rann fyrir norðri.
þræddi jeg fyrir þrautar enda
fiskiklæddur fjórtándu rúnar.
Hitti jeg ipks það kaupendur kjósa,
óbyggðar pláss að allra rómi;
hafði jeg þar hettuværð hjá hollum vinum
sem ætíð veittu mjer innýfla böndin.
Hitti jeg loks það höfðingjasetui’
er Hjölnir forðum markaði á nóttu;
var þar ráðandi Veturliði
í tvöföldu standi; eg til hans var sendur.
Merghúsaval jeg mátti þar kanna
draumnjórun eina, drógst svo til hryggjar,
sömu mölvaði svo hjelt jeg aptur
yfir tvær þjóðir endilángar.