loading/hleð
(6) Page [4] (6) Page [4]
ugt er, frekar litlum vinsældum að fagna meðal almennings. En auðvitað á þessi tján- ingarháttur rétt á sér, því að forn og ný dæmi sanna, að í sumum ágætum listaverk- um er sértekning til staðar á háu stigi. Ohlutstæð listaverk eru að sjálfsögðu ýmist góð eða léleg eins og önnur listaverk, þar sem öðrum tjáningarháttum er meir beitt. Hin sama hætta vofir yfir óhlutstæðri list og raunsæislist, sem sé sú, að hún staðni í dauö- um formum venju og eftirlíkingar. Listamaðurinn sækir þá ekki lengur ferskleika og kraft í uppsprettu allrar listar: hina frjóu lífsnautn. Ég hef oft heyrt menn koma fram með þá mótbáru gegn óhlutstæðri list. að með henni sé sérstaklega auðvelt að gabba almenning, þar sem hann sé lítt vanur þessu tjáning- arformi. Yissulega er það hægt, enda oft gert. Sumir listamenn falla fyrir þeirri freist- ingu að reyna að vekja á sér athygli með alls konar fáránleik, sem verður þeim sjálf- um til falls, eins og öll óhreinskilni í list. En einkum eiga hér hlut að máli „listsnobb- ar“, sem halda, að þeir sýni listasmekk sinn með því að vegsama alla óhlutstæða list. En ég held þó, að smekk almennings stafi ekki meiri spilling af þessari tegund listar en af sumum öðrum, jafnvel töluvert minni, þar sem hún á yfirleitt ekki miklum vin- sældum að fagna. Eftirlíkingin blekkir sjálfsagt miklu fleiri; menn villast á tækni og list, menn halda skemmtanir list osfrv. Einfeldningurinn lætur hvarvetna hæglega blekkjast, og því miður get ég ekki bent á nein handhæg ráð til að lækna hann af trú- girni og dómgreindarleysi. SÍMON JÓH. ÁgÚSTSSON


Septembersýningin 1951.

Year
1951
Language
Icelandic
Pages
24


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Septembersýningin 1951.
http://baekur.is/bok/1281f32d-28d1-45ad-9034-95afbbfc5996

Link to this page: (6) Page [4]
http://baekur.is/bok/1281f32d-28d1-45ad-9034-95afbbfc5996/0/6

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.