loading/hleð
(36) Blaðsíða 32 (36) Blaðsíða 32
sem nú. í niðrlagi orða og orðstofna er ýmist ritað ur eða r, þar sem r á að vera eptir hinum forna framburði, alt fram á miðja sextándu öld, en eptir miðja sextándu öld verðr alment að rita ur í niðrlagi orða og orðstofna, þar sem svo er framborið. Eg vil að endingu geta þess, að þessi ritlingr er einungis saminn í því skyni, að rekja og skýra þetta eina atriði í sögu ís- lenzkrar tungu, því að ef til væri smáritlingar um ýmisleg atriði í sögu máisins, gæti á endanum margt smátt gjört eittstórt, og slíkir ritlingar geta að minsta kosti orðið til þess, að vekja athygli manna eigi að eins á því atriði, sem þeir eru um, heldr og á öðrum at- riðum, sem því eru skyld og standa í sambandi við það, og á eðli málsins yfir höfuð, og á því, hvernig það hefir smámsaman breytzt. Hins vegar hefir það engan veginn verið fyrirætlan mín, að gefa nrönnum neinar stafsetningarreglur með þessum ritlingi; hvortveggja stafsetningin, bæði sú að rita r eptir fornum framburði, og sú að rita ur eptir hinum nýja framburði, hefir mikið til síns máls og við margar ástœður að styðjast. Eg vil því láta menn vera sjálf- ráða í því efni. það er eigi svo mikið undir því komið, hver staf- setning er höfð; en sú sem er höfð, þarf að vera sjálfri sér nokk- urn veginn samkvæm; fullkomin samkvæmni er ómöguleg. Eg vil að eins í þessu efni ráðleggja þeim, er eigi þekkja fornmálið til hlítar, að fara eptir hinum nýja framburði og hinni nýju slafsetn- ingu, þvíað sá vegrinn verðr óhættari fyrir þá.


Um r og ur í niðrlagi orða og orðstofna í íslenzku

Ár
1863
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
40


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Um r og ur í niðrlagi orða og orðstofna í íslenzku
http://baekur.is/bok/15a4fa01-83ec-41b7-9938-ef80e7ed51fe

Tengja á þessa síðu: (36) Blaðsíða 32
http://baekur.is/bok/15a4fa01-83ec-41b7-9938-ef80e7ed51fe/0/36

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.