loading/hleð
(3) Blaðsíða 3 (3) Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2009 hátíðarrit fríkirkjunnar • 3 Bænahús og þjóðarkirkja • Afmæliskveðja frá forseta íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Fríkirkjan í Reykjavík hefur í röska öld skipað veigamikinn sess í trúarlífi íslendinga; kall- aðist um skeið ein á við Dómkirkjuna; ásamt Tjörninni og Austurvelli höfuð- kennileiti í miðbæ höfuðstaðar. Hvað sem forminu leið var sam- búðin við þjóðkirkjuna oft náin en sérstaða Fríkirkjunnar hefur á síðari tímum gert henni kleift að taka vel á móti þeim sem leita að fjölbreytni í trúariðkan. Þegar séra Þorsteinn Björnsson, sóknarprestur á Þingeyri við Dýra- fjörð, var um miðbik síðustu aldar kosinn fríkirkjuprestur, fylgdu honum margir Vestfirðingar. Kirkjan við Tjörnina varð um leið þeirra kirkja. Fjölskylda mín fyllti þennan flokk; pabbi og mamma og frænkurnar. Því fermdi séra Þorsteinn mig, jarðsöng foreldra mína og útför afa og ömmu fór líka fram frá Fríkirkjunni; enda hafði afi minn og nafni verið meðhjálpari hjá séra Þorsteini fyrir vestan. Fríkirkjan varð því á vissan hátt okkar fjölskyldukirkja, líkt og þús- unda annarra íslendinga. Saga kirkj- unnar, andblær hins liðna ófst saman við minningar fjölskyldunnar, kirkjan með sérstakan sess í hugum og hjört- um. Fríkirkjan hefur haft svo ríku- leg áhrif á vegferð íslendinga frá fá- tækt fyrri alda til velferðar í nútím- anum að hún er í raun þjóðarkirkja líkt og aðrar höfuðkirkjur landsins. Þótt stormur hafi stundum leikið um kirkjuskipið og hún tekist á við breytta tíma, er hún enn tignarleg við Tjörnina, tekur vel á móti öllum, bænahús þeirra sem þjást og þurfa huggun; helgi- staður og stundum gleði og sorgar; tónarnir óma í takt við ákall tímans. Virðing fyrir ólíkum skoðunum • Afmæliskveðja frá forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur. Eitt af þjóðareinkennum íslendinga er þörf fyrir sjálfstæði og frelsi og ég kýs að líta svo á að stofn- un Fríkirkjunnar í Reykjavík í lok 19. aldar beri þessum einkennum okkar gott vitni. Þeir einstaklingar sem stóðu að stofnun Fríkirkjunnar leit- uðu frelsis frá ramma sem þeir töldu að hin hefðbundna kirkja setti þeim á þeim tíma, ramma sem þeir töldu að væri of þröngur. Þeir létu ekki sitja við orðin tóm og af rótum gagnrýni þeirra spratt kirkja sem verður sífellt öflugri og telur nú um níu þúsund manna söfn- uð. Mikið vatn hefur runnið til sjávar í þau 110 ár sem nú eru liðin frá stofnun Fríkirkjunn- ar og starfsumhverfi kirkju og trúfélaga hér á landi er nú fjölbreyttara en nokkru sinni fyrr og er það vel. Segja má að á erfiðum tímum, eins og þeim tímum sem við göngum nú saman í gegnum, sé mikilvægt að fyrir hendi sé í samfélaginu vettvangur sem ein- staklingar geta leitað til og sótt styrk í. Á tímum sem þessum er jafnframt afar mikilvægt að standa vörð um sið- ferðileg grundvallargildi og mannrétt- indi þjóðarinnar allrar og virða ólíka stöðu og mismunandi skoðanir fólks. Það hefur Fríkirkjan í Reykjavík svo sannarlega gert og hlýtur virðingu fyrir. Það er von mín og trú að starf Frí- kirkjunnar í Reykjavík og annarra kirkna og trúfélaga hér á landi muni þróa starfsemi sína í takt við tíðarand- ann og þjóna þeim sem þangað leita á hverjum tíma. Slík þjónusta er dýrmæt og okkur sem höfum kosið að starfa að samfélagsmálum með einum eða öðrum hætti ber skylda til að vera góðir hlustendur og leita nýrra aðferða í því efni þannig að við getum látið gott af okkur leiða frá degi til dags. Ég óska Fríkirkjunni í Reykjavík áframhaldandi gæfu og gengis í mikilvægum verkefnum sínum. Gott og öflugt safnaðarstarf • Afmæliskveðja frá dómsmála- og mannréttindaráðherra, Rögnu Árnadóttur. Nú minnumst við þess að 110 ár eru liðin frá því að Fríkirkjan í Reykjavík var stofnuð, en það var hinn 19. nóvember 1899. Nokkru áður eða á árinu 1881 höfðu einstakl- ingar frá Reyðarfirði sagt sig úr þjóð- kirkjunni og stofnað hina fyrstu frí- kirkju íslands. Reyndi þá meðal annars á trúfrelsisákvæði hinnar nýju stjórn- arskrár íslendinga frá árinu 1874. Þegar fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík sagði skilið við þjóðkirkjuna til þess að byggja upp eigin starfsemi bjuggu í Reykjavík um 6.000 manns. Á þessum tíma var breytingaskeið í ís- lensku þjóðfélagi. Almenningur var at- kvæðameiri um þjóðfélagsmál en oft áður og áhugi á félagslegum og lagalegum umbótum í íslensku sam- félagi mikill. Þeim sem þá þótti þjóðkirkjan ekki svara kalli tímans um stuðning og öfluga þjónustu, og ræktarsemi við trúarlega þörf, stóðu að sameig- inlegri viljayfirlýsingu haustið 1899 sem leiddi síðan til stofnunar fríkirkjusafnaðarins. Enn er hafið breytingaskeið í íslensku þjóðfélagi. Mjög reynir á alla samfélagsinnviði og er safnaðar- starf þar ómetanlegur þáttur. Á vegum Fríkirkjunn- ar í Reykjavík er unnið gott og öflugt starf og fyrir það ber að þakka. Eykur það á fjölbreytni safnað- ' ? ' arstarfs hér á landi og stuðlar að því að einstaklingar, sem það kjósa, geti á trúarlegum vettvangi leitað sér ásjár um leiðbeiningu, liðsinni og sáluhjálp. Þannig styrkist nauðsynleg kjölfesta í okkar samfélagi. Slíkt er brýnt á okkar tímum. Vert er að halda því til haga að trúfrelsi er varið í 63. og 64. gr. stjórn- arskrárinnar. Er þar verndaður réttur hvers manns til þess að aðhyllast þá trú sem hann sjálfur velur og réttur til þess að iðka trú sína, hvort heldur einn eða í félagi við aðra. Hver maður nýtur á sama hátt frelsis til þess að vera trú- laus og verður ekki skyldaður til þess að tilheyra trúfélagi eða iðka trúarbrögð. Trúfrelsi er varið þótt náið samband sé á milli rík- isvaldsins og hinnar evangelísku lútersku kirkju sem þjóðkirkju. Sú staðreynd, að hér starfar þjóðkirkja með ákveðnar skyldur sem slík, varpar ekki rýrð á hlutverk og mikilvægi annarra trúfélaga. Samfélags- legt hlutverk allra þessara trúfélaga er mikilvægt og stuðlar að því að hver og einn geti fundið farveg fyrir trúariðkan sína í samræmi við þau grundvallargildi sem staðfest eru í stjórnarskrá okkar. Fríkirkjan er þar á meðal og óska ég henni innilega til hamingju með 110 ára starfsafmælið. FRÍKl flKJAN í R£YK|AVÍK a FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK Laufásvegi 13, 101 Reykjavík - Sími 552 7270 - Fax 552 7287 Netfang:frikirkjan@frikirkjan.is Vefsíða: www.frikirkjan.is FORSTÖÐUMAÐUR OG PRESTUR: Hjörtur Magni Jóhannsson Sími: 899 4131 Netfang: hjorturm@frikirkjan.is Viðtalstímar eftir samkomulagi SAFNAÐARRÁÐ: Steindór I. Ólafsson, formaður Hörður Hafberg Gunnlaugsson, varaformaður Hilmar K.Viktorsson, gjaldkeri Sólrún Ó. Siguroddsdóttir Dagmar Maríusdóttir Ingunn Þorláksdóttir Óskar Þór Nikulásson VARAMENN: Ragna Sæmundsdóttir, ritari Sigursteinn R. Másson Helena Guðmundsdóttir RITARIÁ SKRIFSTOFU: Hafdís Jónsdóttir Netfang: hafdis@frikirkjan.is KIRKJUVÖRÐUR OG SAFNAÐARSTARFSMAÐUR: Anna Hulda Júlíusdóttir Sími: 868 4936 Netfang: annahulda@frikirkjan.is UMSJÓNARMAÐUR SAFNAÐARSALS: Lovísa Guðmundsdóttir Sími 663 7143 Netfang: veisluthjonustan@hotmail.com TÓNLISTARSTJÓRAR: Anna Sigríður Helgadóttir Sfmi: 861 3843 Netfang: annasigga63@simnet.is Carl Möller Sími: 897 2594 Netfang: voffar86@simnet.is EFÞÚVILTGEFA Frjáis framlög til Fríkirkjunnar, 110 ára afmælisgjöf eða framlag í líknarsjóð má leggja inn á reikn. 0334-03-802010, kt. 560169-4509. Útgefandi: Fríkirkjan í Reykjavík • Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hjörtur Magni Jóhannsson • Umbrot: Fréttablaðið /


Fríkirkjan í Reykjavík 110 ára

Ár
2009
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
12


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Fríkirkjan í Reykjavík 110 ára
http://baekur.is/bok/15d9ec83-81b9-446e-bdcc-d178853ae121

Tengja á þessa síðu: (3) Blaðsíða 3
http://baekur.is/bok/15d9ec83-81b9-446e-bdcc-d178853ae121/0/3

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.