(9) Blaðsíða 9
9
VÍSIR:
Hjlómleikar á sýningu Kjarvals.
í gærkvöldi kl. ö—7 léku Billich og Valenta á mála-
verkasýningu Kjarvals í Markaðsskálanum. Virtist ný-
breytni þessi vel þegin af bæjarbúum, því að þeir fjöl-
mentu mjög á sýninguna.
Er nýbreytni þessi hin athyglisverðasta og listunnend-
ur munu kunna Kjarval miklar þakkir fyrir að ríða þarna
á vaðið. Öllum, sem á sýningunni voru, meðan á bljóm-
leikunum stóð, mun hafa verið það ljóst, hve fagrir hljóm-
ar eiga vel við lili, En manni er samt næst að halda, að
hljómar eigi alveg sérstaklega vel við málverk Kjarvals,
því það er því líkast, sem þau séu hygð upp af „músik“
i hiinun fjölþættustu blæbrigðum og tóntegundum. Það er
hljómrænn hrynjandi í málverkunum hans, stundum vold-
ugur symfoniskur kraftur, sem alt ætlar um koll að keyra,
en svo þess á milli mjúk og angurvær kyrð, ljúf og dreym-
andi eins og seyðandi kvöldóður í rökkri.
Hugmyndaflugið og æfintýrablærinn í málverkum Kjar-
vals nýtur sín alveg sérstaklega vel í samræmi við hljóma
og það er eins og þeir knýi mann ósjálfrátt lil að sjá hin-
ar sömu sýnir og listamaðurinn, sjá þær dularfullar, en
samt Ijóslifandi fyrir hugskotssjónum sínum.
Þannig þyrftu menn oftar að njóta málverka — og sér-
staklega málverka Kjarvals.
VÍSIR:
Málverkasýningin í Markaðsskálanum.
Þegar Jóhannes Sveinsson Kjarval varð fimtugur, beittu
nokkrir góðvinir hans sér fyrir því, að mikil sýning var
haldin í Mentaskólanum á verkum hans. Gaf sú sýning
liina ágætustu hugmynd um list og afköst þessa einstaka