loading/hleð
(9) Blaðsíða [3] (9) Blaðsíða [3]
UNGLIÐ, tunglið taktu mig og berðu mig upp til skýja«. Hugurinn ber mig hálfa leið í heimana nýja. Mun þar vera margt að sjá, mörgu hefirðu sagt mér frá þegar þú leiðst um loftin blá og leizt til min um rifinn skjá Komdu litla Lipurtá langi þig að heyra, hvað mig dreymdi, hvað eg sá og kannske sitthvað fleira. Ljáðu mér eyra. Litla flónið, ljáðu mér snöggvast eyra: Þa r er siglt á silfurbát með seglum þöndum, rauðagull i rá og böndum, rennir hann beint að ströndum, rennir hann beint að björtum sólarströndum »Þar situr hún móðir mín« i möttlinum græna, hún er að spinna hýjalin i hempu fyrir börnin sín. »0g seinna þegar sólin skín«, sendir hún þeim gullin fín, mánasilfur og messuvín, mörgu er úr að velja. Hún á svo margt sem enginn kann að telja. »Þar sitja systur«. Sá sem verður fyrstur að kyssa þeirra klæðafald og kveða um þeirra undravald honum gefa þær gullin streng á gígjuna sína. I / 'y\ ^ _ wtm * (.r u\ <110


Þulur

Ár
1916
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
24


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Þulur
http://baekur.is/bok/3a1bfe36-12ed-41ac-be81-daf5df38c57c

Tengja á þessa síðu: (9) Blaðsíða [3]
http://baekur.is/bok/3a1bfe36-12ed-41ac-be81-daf5df38c57c/0/9

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.