loading/hleð
(20) Page 16 (20) Page 16
16 elli sinni, og unnið með kyrð að þeim störfum sem honum vóru á hendur falin, og hann ávalt kostaði kapps um að rækja sem bezt, þá fannst honum staða sín enganveginn svo hæg. Aldrei hafði hann efnaður orðið 1, því efni hans höfðu heldur gengið til þurðar hans fyrstu ár í Hvammi, en aukizt; síðan sleppti hann nokkru af tekjum brauðsins við son sinn, og má nærri geta, að tveir menn hafi ekki verið ofsælir af þvi, sem einum hafði sjaldan áður veitt af. Á hinn bóginn mættu honum einnig, einkum á árabilinu 1830—40, yms aðköst, er honum því síður gat geðjast að, sem hann í öllu rækti vel embætti sitt, enda var hann þá líka kominn á þann aldur, sem ílestir kjósa að lifa í ró og friði hjá vinum og vandamönnum, heldur en sjá sig og þá flækta inn í óþarfa umstang og vafnínga. Mun hann því á þeim árum hafa farið því á flot, að losast við prófastsembættið, sem þó ekki varð af fyrr en hann fór alfarinn frá Hvammi. Árið 1840 hinn 6. dag Januarmán. missti Jón prófastur Gíslason konu sína Sæunni Einarsdóttur. Hún var fædd árið 1753 á Tjörn í Svarfaðardal, var faðir hennar, sira Einar þórðarson, þar þá prestur, eu íluttist þaðan ársgömul með foreldrum 0 (,Aldrei var eg ríkur”, segir hann í æfisögubroti sínu, ,;nema af blessun Drottins. Hún var mér allt”. !


Æfisaga Jóns Gíslasonar

Year
1860
Language
Icelandic
Keyword
Pages
40


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Æfisaga Jóns Gíslasonar
http://baekur.is/bok/4bc27a27-6832-42df-bcb5-fbb0c832f5ac

Link to this page: (20) Page 16
http://baekur.is/bok/4bc27a27-6832-42df-bcb5-fbb0c832f5ac/0/20

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.