loading/hleð
(28) Blaðsíða 24 (28) Blaðsíða 24
24 ekki skrifað niður inntak ræðunnar og haft það fyrir sér, til þess að útlistunin yrði með því skipu- legri og greinilegri. I ræðum sínum tók hann sér fremur snið eptir hinum ströngu guðfræðíngum fyrri hluta 18. aldar, heldur en þeim sem uppi vóru um og fyrir næstu aldamót. Hann var gagntekinn af helgi og dýrmæti biblíunnar, vóru því ræður hans eingöngu biblíulegar, en fráleitur öllum heim- spekilegum rannsóknum, og öllum keim seinni tíma skynsemistrúar. Eins og trúræknin bjó með auðmýkt og einfeldni í hjarta hans, svo vóru einnig orðin sem hann talaði í kirkju sinni, en ekki vant- aði hann þar röggsemi og vandlæti; studdi að því frómlyndi hans og hinir öru geðsmunir, ab liann dróg ekki dulur á það sem í hjartanu bjó. Af þessu má ráða, að hinn enski prestur Dr. Hen- derson muni hafa satt að mæia, þar sem hann segir um sira Jón Gíslason: „þegar eg kom inn til hans, vai' ritníngin fyrir framan hann, og komst eg að því, að hann var mjög biblíufróður; var þar fyrir postullegur andi og trúrækni” *. J>að sem hann gaf sig mest að, næst guðfræð- inni, var sagan. Var hann því, einsog margir hinir eldri Íslendíngar, mjög fróður í sögu íslands og ættfræði. Á ýngri árum hafði hann koinizt yfir i) Samanber Ferííabók hans Edinburgh 1818, ii, 81-82 og J. Möllers Nyt theol. Bibliothek 15. bindi.


Æfisaga Jóns Gíslasonar

Ár
1860
Tungumál
Íslenska
Efnisorð
Blaðsíður
40


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Æfisaga Jóns Gíslasonar
http://baekur.is/bok/4bc27a27-6832-42df-bcb5-fbb0c832f5ac

Tengja á þessa síðu: (28) Blaðsíða 24
http://baekur.is/bok/4bc27a27-6832-42df-bcb5-fbb0c832f5ac/0/28

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.