(5) Blaðsíða 3
99 9 9
KVENNAMÁL
Á alþingi íslendinga verður það hlutverk okkar að standa vörð
um hagsmuni kvenna og bama. Konur eiga hagsmuna að gæta á
öllum sviðum íslensks samfélags. Öll mál, jafnt efnahagsmál sem
uppeldismál koma konum við sem þátttakendum í íslensku þjóð-
lífi. Öll mál eru því kvennamál. Við viljum skoða og skilgreina
heiminn út frá okkar eigin forsendum.
Við viljum að sameiginleg reynsla og verðmætamat kvenna
verði metið til jafns við reynslu og verðmætamat karla sem
stefnumótandi afl í samfélaginu. Við viljum að mannleg verðmæti
verði fyrst og fremst lögð til grundvallar þegar ákvarðanir eru
teknar í þjóðmálum. Við viljum samfélag þar sem allir, konur,
karlar og böm em jafnvirtir og jafnréttháir. Við viljum hugarfars-
byltingu.
Til þess að ná þessum markmiðum verðum við að berjast fyrir
bættum hag kvenna. Við höldum því fram að fleira sameini konur
en sundri. Þótt lífskjör kvenna séu misjöfn emm við sem heild
lægst launaði hópurinn í þjóðfélaginu. Konur njóta skemmri
skólagöngu en karlar. Þetta tvennt gerir okkur efnahagslega
ósjálfstæðar og áhrifalausar við mótun þjóðfélagsins.
Menning og reynsla kvenna byggir að mestum hluta á hefð-
bundnum störfum við heimilishald og umönnum bama. Við vilj-
um halda tengslum okkar við þau störf sem hafa mótað okkur og
lagt okkur til lífsgildi okkar, en við viljum ekki lengur vera í stöðu
3