loading/hleð
(11) Blaðsíða 11 (11) Blaðsíða 11
Hér verða taldir upp aðalhlutar bún- ingsins og þeim lýs't í stuttu máli. Upphlutur Framan á upphlutnum (bolnum) eru 2 borðar, 8 millur (4 á hvorum barmi) ásamt reim (festi) og nál (reimanál, millunál), á baki eru 2 legg- ingar, og leggingar eru á axlasaum- um og bryddingar um hálsmál og handvegi. — Upphluturinn er svartur. — Borðar eru svartir, úr flaueli með hvítri eða gylltri baldýringu eða borðaskrauti smíðuðu úr silfri, hvítu eða gylltu. Ath. Með svo- nefndum borðamillum (sjá mynd bls. 13) er baldýringu eða borða- skrauti sleppt og aðeins hafðar 6 millur, 3 á hvorum barmi. — Leggingar á baki og axlasaumum eru úr svörtum flauelsböndum og vírkniplingum, hvítum eða gyllt- um. — Bryddingar um hálsmál og hand- vegi eru úr skáböndum úr upp- hlutsefninu eða svörtum flauels- eða herkúlesböndum. — Millur, reim og nál eru úr hvítu eða gylltu silfri. Reimina má festa í efstu millu og er þá reimað í kross (sjá mynd bls. 2), eða í neðstu millu og er þá reimuð einföld eða bein reiming (sjá mynd hér að ofan). Pils Pilsið er svart, skósítt, krækt eða hneppt á upphlutinn, fellt undir streng (frá vinstri til hægri séð aftan frá), þéttfellt að aftan, minna fellt á mjöðmum, en slétt að framan; það er með 30 cm breiðu skófóðri. Skotthúfa A húfunni er skúfur og hólkur (skúfhólkur); henni fylgja títuprjón- ar og e. t. v. húfuprjónar. — Húfan er svört og skúfurinn úr svörtu silki. — Skúfhólkur er úr hvítu eða gylltu silfri eða úr gulli. Húfuprjónar eru úr silfri, hvítu eða gylltu. ÁBENDINGAR um upphlut tuttugustu aldar — Títuprjónar eru svartir með svörtum glerhnúð. Skyrta Skyrtan er með löngum ermum, rykktum eða felldum undir líningu; hálsmál eru mismunandi (sjá teikn- ingar bls. 5). Skyrtunni fylgja brjóst- nál og ermahnappar úr hvítu eða gylltu silfri. Svunta Svuntan er felld (í sömu átt og pilsið) undir streng. Strengurinn er hnepptur, e. t. v. með svuntuhnappi úr silfri eða gulli. Belti Beltið er ýmist með pörum, með doppum og pörum, baldýrað og með pörum, eða stokkabelti. — Beltið er svart (t. d. úr teygjan- legum flauelsborða); doppur og pör eru úr silfri, hvítu eða gylltu; baldýring er hvít eða gyllt. — Stokkabelti er úr hvítu eða gylltu silfri. Sokkar Sokkar eru svartir og ógagnsæir. Skór Skór eru svartir og sem látlausastir. Rétt þykir að undirstrika að upp- hlutur, pils, húfa og skúfur, belti, sokkar og skór eiga að vera í svört- um lit. Æskilegt er — að upphluturinn (upphlutsbolur- inn) og pilsið séu úr lipru ullar- efni, þ. e. klæði eða þvílíku, — að skotthúfan sé úr ullarbandi, prjónuð, — að skyrtan sé hvít eða hvítleit, úr ógagnsæju efni, t. d. með lér- eftsáferð, og með látlausu sniði, — að notuð sé dúksvunta, annað- hvort langröndótt eða köflótt. Upphlutinn og pilsið má hafa úr peysufatasilki, sem gljáaminnstu, skotthúfuna úr flaueli. Séu bolur og pils úr silki, er e. t. v. eins smekk- legt að hafa svuntu úr silkikenndu efni. Þó ætti að forðast blúnduefni og einnig sérlega skartmikil efni, svo sem vírofin efni alls konar. Svartar skyrtur hafa tíðkast nokkuð, og einn- ig skyrtur og svuntur úr eins efni, oftast munstruðu. Elsa E. Guðjónsson


Íslenskir þjóðbúningar.

Höfundur
Ár
1974
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
14


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Íslenskir þjóðbúningar.
http://baekur.is/bok/811d7d74-8ed4-499c-a81b-b5e4bd0c6e95

Tengja á þessa síðu: (11) Blaðsíða 11
http://baekur.is/bok/811d7d74-8ed4-499c-a81b-b5e4bd0c6e95/0/11

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.