loading/hleð
(17) Blaðsíða 15 (17) Blaðsíða 15
Einhverra hluta vegna verður manni hugsað til tónlistar frammi fyrir myndum Karls. Ekki eru það hljómsveitarverk með lúðrablæstri né heldur lýrísk einleiksverk. Þær eru í ætt við vel samin kammerverk, eitthvað í anda síðustu kvartetta Beethovens.5 Þetta samspil, hrynjandi, hljómfall og endurtekning hefur verið fyrir hendi í verkum hans, annaðhvort innbyrðis milli lína, litflata eða einstakra verka. Þau eru skyld en þó sjálfstæð. Þannig er samræmi í heildinni. Þetta er hljóðlát list, en samt láta verkin áhorfendur ekki (friði heldur leitar þessi strangleiki litar og forms á þá á undarlega krefjandi hátt. Þessir þættir í list Karls Kvarans gera myndir hans í senn áleitnar og yfirþyrmandi. BERA NORDAL 1) Dominique Viéville, „Vous avez dit géometrique? Les Salon des Réalités nouvelles 1946-1957“, Paris, Centre Georges Pompidou, Paris-Paris 1937-1957, 28. mai - 2 novembre 1981, bls. 270-289. 2) Þorvaldur Skúlason, „Nonfígúratív list", Birtingur, 2. hefti 1955, op. cit. bls. 6. 3) Björn Th. Björnsson, „Viðtal við Karl Kvaran", Birtingur, 1. hefti 1958, op. cit. bls. 14. 4) Birtingur, 1958, op. cit. bls. 15. í samtölum mínum við Karl Kvaran tjáði hann mér að Boyesen hafi lagt mest upp úr heildinni og hreyfingunni í heildarlínunni. Eiríkur Smith hefur einnig sagt frá veru sinni í skóla Rostrup Boyesens og leggur þar áherslu á þetta sama atriði í kennslu hans, sjá Aðalsteinn Ingólfsson, Eiríkur Smith, Reykjavík 1982, bls. 19. 5) Halldór Björn Runólfsson, „Hið fullkomna samræmi", Þjóðviljinn, 1. sept. 1984, op. cit. 15


Karl Kvaran

Ár
1986
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
40


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Karl Kvaran
http://baekur.is/bok/875a2b79-5b82-4691-9cfa-2885ab90238f

Tengja á þessa síðu: (17) Blaðsíða 15
http://baekur.is/bok/875a2b79-5b82-4691-9cfa-2885ab90238f/0/17

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.