loading/hleð
(57) Blaðsíða 57 (57) Blaðsíða 57
40 ára afmælisrit Stómasamtakanna | 57 1. gr. Félagið heitir Stómasamtök Íslands, ISILCO. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. 2. gr. Tilgangur félagsins er að stuðla í hvívetna að velferð fólks sem gengist hefur undir stómaaðgerðir, þ.e. ristilstóma (colostomy), garnastóma (ileostomy), þvagstóma (urostomy), svo og garnapoka­ (J­poka) og nýblöðruaðgerð. Þessum tilgangi hyggst félagið fyrst og fremst ná með því: 1. að vinna á allan hátt að hagsmunum þeirra sem gengist hafa undir stómaaðgerðir, garnapoka­ og nýblöðruaðgerðir og kynningu á málefnum þeirra. 2. að stuðla að fræðslustarfsemi og miðlun upplýsinga um stómaaðgerðir og viðeigandi hjálpartæki til fólks sem þarf að gangast undir slíkar aðgerðir, sem og til aðstandenda og annarra velunnara. 3. að beita sér fyrir því að hentug hjálpartæki séu ætíð á boðstólum og jafnframt að afgreiðsla þeirra sé sem greiðust. 4. að efla samstarf við lækna og hjúkrunarfólk, sem annast þá er fara í stómaaðgerð eða skylda aðgerð. Einnig samtök svo sem Krabbameinsfélag Íslands, Öryrkjabandalag Íslands og CCU­ samtökin. 5. að stofna til samskipta við erlend stómasamtök. 6. að taka að sér verkefni erlendis til hagsbóta fyrir stómaþega á viðkomandi svæði. Ævinlega skal þess gætt að verkefnin séu hæfileg að umfangi og geti ekki stefnt fjárhag Stómasamtaka Íslands í hættu. 3. gr. Stómasamtök Íslands eru aðili að Krabbameinsfélagi Íslands og Öryrkjabandalagi Íslands en starfa að öllu leyti sem sjálfstætt félag. Samtökin starfa á landsvísu og geta félagar orðið allir þeir sem gengist hafa undir stóma­, garnapoka­ eða nýblöðruaðgerðir, greinst hafa með sjúkdóm eða fæðingargalla sem leiða kann til stómaaðgerðar, aðstandendur þeirra og aðrir velunnarar félagsins. 4. gr. Stjórn félagsins er skipuð fimm aðalmönnum og tveim til vara, kosnum á aðalfundi. Formaður skal kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn. Annað hvert ár skal kjósa tvo meðstjórnendur til tveggja ára og hitt árið einn meðstjórnanda. Fyrirliði ungliðahreyfingarinnar er stjórnarmaður með tveggja ára kjörtímabil í senn. Varamenn í stjórn skal kjósa til tveggja ára í senn. Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund kýs stjórnin úr sínum hópi varaformann, ritara og gjaldkera. Meirihluti stjórnar skal ætíð skipaður fólki sem gengist hefur undir stómaaðgerð. Sá sem gengur úr stjórn má gefa kost á sér á ný eftir tvö ár. Boða skal varamenn á stjórnarfundi og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt. Á aðalfundi skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara til tveggja ára í senn. Prófkúruhafi er stjórn félagsins eða sá stjórnarmaður sem hún veitir slíkt umboð. Kjörgengi til allra embætta er háð því að viðkomandi hafi greitt félagsgjöld sín mánuði fyrir aðalfund hið minnsta. 5. gr. Ungliðahreyfing Stómasamtakanna velur sér fyrirliða til tveggja ára í senn. Ef fleiri en einn sækjast eftir embættinu skal kosið um það eftir sömu reglum og gilda um aðrar kosningar í þessum lögum. Fyrirliðinn skal vera stómaþegi á aldrinum 20­40 ára. Fyrirliðinn er stjórnarmaður í Stómasamtökunum með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgja og tekur fullan þátt í störfum stjórnarinnar. 6. gr. Aðalfundur skal haldinn að vori fyrir miðjan maí og er lögmætur ef til hans er boðað með minnst tveggja vikna fyrirvara. Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagins. Aðrir félagsfundir skulu boðaðir með minnst viku fyrirvara. Stjórnarfundi getur formaður boðað hvenær sem hann telur henta. 7. gr. Reikningsár samtakanna er almanaksárið og skulu endurskoðaðir reikningar lagðir fram á aðalfundi ár hvert. Árgjald skal ákveðið á aðalfundi. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir félagar, sem greitt hafa félagsgjöld sín hið minnsta einum mánuði fyrir aðalfund. 8. gr. Til breytinga á lögum þessum þarf 2/3 greiddra atkvæða á aðalfundi. 9. gr. Verði félaginu slitið, en til þess þarf 2/3 greiddra atkvæða á aðalfundi, skal eignum þess varið til líknarfélaga eftir því sem fundurinn ákveður. Samþykkti á aðalfundi 4. maí 2017 LÖG STÓMASAMTAKA ÍSLANDS
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44
(45) Blaðsíða 45
(46) Blaðsíða 46
(47) Blaðsíða 47
(48) Blaðsíða 48
(49) Blaðsíða 49
(50) Blaðsíða 50
(51) Blaðsíða 51
(52) Blaðsíða 52
(53) Blaðsíða 53
(54) Blaðsíða 54
(55) Blaðsíða 55
(56) Blaðsíða 56
(57) Blaðsíða 57
(58) Blaðsíða 58
(59) Blaðsíða 59
(60) Blaðsíða 60
(61) Blaðsíða 61
(62) Blaðsíða 62
(63) Blaðsíða 63
(64) Blaðsíða 64
(65) Blaðsíða 65
(66) Blaðsíða 66
(67) Blaðsíða 67
(68) Blaðsíða 68
(69) Blaðsíða 69
(70) Blaðsíða 70
(71) Blaðsíða 71
(72) Blaðsíða 72


Stómasamtök Íslands

Ár
2020
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
72


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Stómasamtök Íslands
http://baekur.is/bok/96aeb6e7-9acf-4e8a-89ec-861916199fc9

Tengja á þessa síðu: (57) Blaðsíða 57
http://baekur.is/bok/96aeb6e7-9acf-4e8a-89ec-861916199fc9/0/57

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.