loading/hleð
(9) Blaðsíða 5 (9) Blaðsíða 5
5 Láttu lijarta Jiitt vera læst, en ásýnd opna. Sá er enginn rjettlátur, scm eigi vill gjöra hvað rjctt er, neina sjer til hróss. Sá, sem ekki fcrbatnandi, er vissineðað fara vesnandi. Aðalkostur ungbarnsins er sakleysi, æsku- mannsins kurteysi, fullorðna mannsins at- gjörfi, og gamahnennisins hyggindi. Drykkjurúturinn er eins og líkneski, sem staðið hefur úti í óveðri, öll mannsmynd er ináð í burt. Skrifuð Iög ættu að vera undir stjórn skynseminnar, en skynscmin ætti ekki að vera fjötruð af bókstaf orðanna. Væntu aldrei mikils af stærilátum raupara. Enginn er rjettilega hygginn og óhultur, nema dánumaðurinn. Dygðugt líf er varanlegasti minnisvarðinn. ltoiddu þig ekki á þann mann, sem lol'ar þjer með særi. j)að er hægt fyrir þann, sem sjálfur er sloppinn úr torfærunni, að ráðleggja þeim, sem staddir eru í henni. það er maður ósvifinn, sem lætur fjeskort og fávizku reisa sjer hurðarás um öxl. Hatur gegn vildarmönnum sprettur af löngun eptir hylli höfðingjanna, og er öf- und í dularbúningi. Ef þú ert í efa um, hvort áform þitt er gott, eður illt, þá slcpptu því. þar sem fjársjóður vor er, þar er hjarta vort einnig. Sæll er sá, sem á engu á von, því hon- um getur ekki vonin brugðizt. Án samkomulags ercngin ánægja í sambúð. það er hið fyrsta stig til framfara, að vera sannfærður um, að vjer þurfum þeirra með. þær hugsanir vorar cru optast ágætastar, sem koma óbeðnar, og eins og þær drjúpi inn í sálina. Fórnaðu á altari náttúrunnar, og forðastu útúrdúra vanans. þeir, sem hafa lcngi lifað og hrærzt I hje- gómanum, losna varla nokkurn tíma við hann. Sá, sem erhygginn í smámunum, reynist elski heimskur í meiri efnum. Tortrygg alla þá, sem láta mjög dátt að þjer fyrir Iauslegan kunningsskap, og án nokkurrar vitanlegrar orsakar. Sannfærðu bcttlarann og flækinginn um það, hver maðiir hann sjc, og skaltu sanna, að liann óðar skiptir háttum sínuin. Af öllu því andstyggilega illgresi, sem kviknað getur í hjarta æskuinannsins, cr hræsnin banvænust. Ekkert illverk getur verið vel gjört, en góðverk getur verið illa gjört. Kauptu fyrir peninga út í hönd, ef þú vilt lifa í friði. þar sem hugvit cr á rciðum hönduni, ætti góð greind að vcra nærri. Áður en vjer óskum þess með ákefð, sem annar hefur, ættum vjer að ransaka, hversn sá er sæll, sem þess nýtur að. þó að hygginn maður hafi hnefann fullan af sannleika, þá lætur hann sjer opt nægja, að opna einungis litla fingurinn. Hvort sem þú hefur fyrir stafni mikið eða lítið, þá Iáttu hverja stund hafa sitt vissa verk, hvort sem eru vinnustörf, bók- iðnir, samræður eða skemtanir. það er vegur til sannarlegs heiðurs, að vera afbragðsgóður. Heimili lagamannanna cru bygð á höfðuin heimskingjanna. Lærdómur er prýði æskunnar, og hug- svölun ellinnar. Frjálsræði undir góðri stjórn er skynsam- legasta frelsið. Engir þola síður ójöfnuð, en ójafnaðar- mennirnir. GuII ætti aldrei að vera guð vorrar til- beiðslu, hcldur þjón góðgjörðasemi vorrar. Ekkert gjörir fávísan mann eins hlægi- Iegan, cins og að vilja hafa við mikilfeng orð. Náttúran cr ánægð með Iítið, cn Iuöfur óhófsins eru óseðjandi. Enginn hlutur er svo fólginn, að tíma- lengd og sannleiki ekki leiði hann í ljós. þaö er sannur friður, að hafa frið við dygðina, en ciga í ófriði við ódygðina. Ekkcrt rírir ágæti lærdómsins meir, held- ur cn að tildra honum frain af gorti. þeir, sem hælast mjög um góð kaup, þurfa sjaldan að hrósa sjcr af of mikilli ráðvendni. Sem þú ætíð við manninn fyrir frain, og líð lionum aldrei að láta þig ráða kaupi hans. Gjörðu þjer aldrci far af því, að sýnast vitrari eða Iærðari, en hinir fjelagar þínir;


Nýársgjöf 1851 handa Íslendingum

Ár
1850
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
16


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Nýársgjöf 1851 handa Íslendingum
http://baekur.is/bok/a7d52337-ee56-4e7e-a3bb-047947aa7ca4

Tengja á þessa síðu: (9) Blaðsíða 5
http://baekur.is/bok/a7d52337-ee56-4e7e-a3bb-047947aa7ca4/0/9

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.