
(21) Blaðsíða 21
25 ára afmælisrit Stómasamtakanna
Lög um réttindi sjúklinga
Lög um réttindi sjúklinga tóku fyrst gildi 1. júlí 1997 og
voru samþykkt með breytingum þremur árum síðar. í
þeim er að finna mörg mikilvæg ákvæði til hagsbóta fyrir
sjúklinga. Við ráðleggjum þér að kynna þér þau en þau
ættu að liggja frammi á öllum sjúkrahúsum eða a.m.k.
úrdráttur úr þeim. Annars má nálgast þau á netinu. Slóðin
er: http://www.althingi.is/lagas/131a/1997074.html
Um markmið laganna segir í 1. gr.:
„Markmið laga þessara er að tryggja sjúklingum
tiltekin réttindi í samræmi við almenn mannréttindi og
mannhelgi og styrkja þannig réttarstöðu þeirra gagnvart
heilbrigðisþjónustunni og styðja trúnaðarsambandið sem
ríkja ber milli sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna."
Um gæði heilbrigðisþjónustu segir í 3.gr.:
„Sjúklingur á rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu
sem á hverjum tíma er völ á að veita.
Sjúklingur á rétt á þjónustu sem miðast við ástand
hans og horfur á hverjum tíma og bestu þekkingu sem
völ er á. Heilbrigðisstarfsmaður skal leitast við að koma
á traustu sambandi milli sín og sjúklings.
Sjúklingur á rétt á samfelldri þjónustu og að samstarf
ríki milli allra heilbrigðisstarfsmanna og stofnana sem
hana veita.“
Við viljum vekja sérstaka athygli á 22. gr. laganna
sem greina frá reglum um innlögn og útskrift:
„Við komu sjúklings á heilbrigðisstofnun skulu
heilbrigðisstarfsmenn sem annast hann kynna sig og
starfssvið sitt. Jafnframt skal kynna fyrir honum reglur og
venjur sem gilda á stofnuninni og máli skipta.
Sjúklingi skal gerð grein fyrir hvaða læknir beri
meginábyrgð á meðferð hans á heilbrigðisstofnun.
Áður en að útskrift sjúklings kemur skulu aðstæður
hans kannaðar og honum tryggð fullnægjandi heima-
þjónusta eða önnur úrræði eftir því sem unnt er.
Við útskrift af heilbrigðisstofnun skal sjúklingur fá, eftir
því sem þörf krefur, leiðbeiningar um þýðingarmikil atriði
er varða eftirmeðferð, svo sem lyfjagjöf, mataræði, þjálfun
og hreyfingu. Ef þess er óskað skulu leiðbeiningarnar
gefnar skriflega.
Læknabréf og vottorð vegna veikinda, slysa, sjúkra-
húslegu og þess háttar skulu afgreidd án ástæðulauss
dráttar."
í samræmi við lög um réttindi sjúklinga átt þú því rétt á
eftirfarandi:
1. Að fá nákvæmar upplýsingar um þá aðgerð sem þú
átt í vændum.
2. Að stómahjúkrunarfræðingur annist þig þar sem því
verður við komið.
3. Að þú fáir heimsókn stómaþega fyrir og eftir aðgerð.
4. Að þú fáir allar skriflegar upplýsingar um
Stómasamtökin og stómaþega sem tiltækar eru.
5. Að þú fáir nákvæmar upplýsingar um eftirmeðferð og
heimahjúkrun.
6. Að þú fáir upplýsingar um það hvar þú getur fengið
stómavörur.
7. Að þú fáir umsóknareyðublað til að fá vottorð hjá
Tryggingastofnun ríkisins.
21
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44