
(22) Blaðsíða 18
BJARNIKRISTJÁNSSON, REKTOR:
Um Tækniskóla Islands
á 20 ára afmœli
Tœknifrœðingafélags
Islands
Haustið 1961 skipaði Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra, nefnd þriggja manna til þess að
semja frumvarp til laga um stofnun tækniskóla á
íslandi. Nefndina skipuðu þeir Ásgeir Pétursson,
deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, formaður,
Gunnar Bjarnason, skólastjóri Vélskólans í Reykja-
vík og prófessor Finnbogi R. Þorvaldsson.
Hlutverk nefndarinnar var að gera tillögur um
úrbætur á fræðslukerfinu, sem miðuðu að því að
koma á fót tæknifræðslu, er bætti úr þörfum þjóð-
félagsins fyrir tæknimenntaða menn.
I greinargerð með frumvarpinu sem nefndin samdi segir
m.a.:
„Meginforsenda fyrir eðlilegri þróun þjóðfélagsins í tækni-
átt verður að álíta að sé sú, að kostur sé nægilega margra
tæknilega menntaðra manna. Það er grundvöllur fyrir því,
að þjóðfélag tuttugustu aldar dafni og starfi eðlilega. Efna-
hagslífið er nú meir en nokkru sinni íyrr háð framförum í
tæknilegum efnum.
Því verður ekki með rökum neitað, að sá þáttur íslenzkra
fræðslumála, sem staðið hefur í stað, meðan talsverð fram-
þróun hefur orðið á sviði annarrar fræðslu, er einmitt
tækninám. Er því mjög brýn þörf á því að hefjast þegar í
stað handa um úrbætur, og er með frumvarpi þessu stefnt í
þá átt.”
Tíu árum síðar þegar fyrst voru brautskráðir
tæknifræðingar á Islandi, komst undirritaður m.a.
svo að orði við skólaslit Tækniskólans, sem fram fóru
í hátíðasal Vélskóla íslands, 26. júní 1971:
„Tugur ára er nú liðinn síðan menntamálaráð-
herra skipaði nefnd til að semja frumvarp til laga um
tækniskóla, og frumvarpið varð að lögum nr. 25 1963.
Eftir þetta skipaði ráðherra tækniskólanefnd hina
síðari til að semja reglugerð um skólann og gera
áætlanir um þróun hans. Síðari nefndin starfaði á
árunum ’63/’64 og haustið ’64 var skólinn settur í
fyrsta sinn, og fór athöfnin fram hér á þessum stað.
Skólastjóri hafði verið ráðinn Ingvar Ingvarsson,
sem þá gegndi prófessorsembætti í Bandaríkjunum,
en Helgi Gunnarsson tæknifræðingur tók að sér
stjórn skólans fyrsta árið. Eg man vel þann virðuleika
og bjartsýni, sem hér lá í lofti í þessum sal, þegar
Helgi setti skólann í fyrsta sinn og menntamálaráð-
herra flutti ræðu sína. Ingvar gegndi hér skólastjóra-
starfi árið eftir en hvarf síðan til fyrri stöðu fyrir
vestan haf. Aftur á móti hefur skólinn alla tíð notið
dugnaðar og hæfileika Helga Gunnarssonar, sem eft-
ir þetta tók stöðu deildarstjóra í véladeild.
Undirbúningsdeild tækniskóla á sér þó upphaf
tveim árum fyrir haustið 1964 — svo er hinni öldnu
og athafnasömu kempu Gunnari Bjarnasyni, fyrir að
þakka. Af framsýni sinni fékk hann leyfi til kennslu í
námsefni undirbúningsdeildar, að danskri fyrir-
mynd, þegar haustið 1962, og ég hygg á engan hallað,
þótt Gunnari sé öðrum fremur þakkað, að tækniskóli
var hér stofnaður ekki síðar en raun varð á.
Haustið ’64 settust 48 nemendur í undirbúnings-
deild skólans í Reykjavík og 12 nemendur á Akureyri.
Jafnframt hófu nú 13 nemendur, sem áður höfðu
verið í undirbúningsdeild, hið eiginlega tæknifræði-
nám.
Vorið 1965 voru hér notuð próf frá prófnefnd fyrir
dönsku tækniskólana og við fengum prófdómara
bæði frá Danmörku og Noregi.
Haustið ’65, fóru þessir 13 til að ljúka tveim síð-
ustu námsárunum í Danmörku og Noregi og haustið
’66 fóru 24.
Þetta haust ’66, gerðist merkur atburður í mennta-
málum okkar, og enn að danskri fyrirmynd. Raun-
greinadeild tækniskóla var nú hleypt af stokkunum.
Deildin tekur eitt námsár og er því skotið inn á undan
hinu eiginlega 3ja ára tæknifræðinámi. Segja má, að
aukningin sé u.þ.b. að 1/2 leyti almenns eðlis og að
1/2 leyti tæknifræðileg. — Eg tek það sérstaklega
fram, að í þessu tilviki tel ég sízt minna virði aukn-
ingu almennu menntunarinnar heldur en þeirrar
tæknilegu. Hér munu Danir hafa tekið heilladrjúga
ákvörðun — og við höfðum vit á að herma eftir þeim.
(1) Band
(2) Band
(3) Saurblað
(4) Saurblað
(5) Blaðsíða 1
(6) Blaðsíða 2
(7) Blaðsíða 3
(8) Blaðsíða 4
(9) Blaðsíða 5
(10) Blaðsíða 6
(11) Blaðsíða 7
(12) Blaðsíða 8
(13) Blaðsíða 9
(14) Blaðsíða 10
(15) Blaðsíða 11
(16) Blaðsíða 12
(17) Blaðsíða 13
(18) Blaðsíða 14
(19) Blaðsíða 15
(20) Blaðsíða 16
(21) Blaðsíða 17
(22) Blaðsíða 18
(23) Blaðsíða 19
(24) Blaðsíða 20
(25) Blaðsíða 21
(26) Blaðsíða 22
(27) Blaðsíða 23
(28) Blaðsíða 24
(29) Blaðsíða 25
(30) Blaðsíða 26
(31) Blaðsíða 27
(32) Blaðsíða 28
(33) Blaðsíða 29
(34) Blaðsíða 30
(35) Blaðsíða 31
(36) Blaðsíða 32
(37) Blaðsíða 33
(38) Blaðsíða 34
(39) Blaðsíða 35
(40) Blaðsíða 36
(41) Blaðsíða 37
(42) Blaðsíða 38
(43) Blaðsíða 39
(44) Blaðsíða 40
(45) Blaðsíða 41
(46) Blaðsíða 42
(47) Blaðsíða 43
(48) Blaðsíða 44
(49) Blaðsíða 45
(50) Blaðsíða 46
(51) Blaðsíða 47
(52) Blaðsíða 48
(53) Blaðsíða 49
(54) Blaðsíða 50
(55) Blaðsíða 51
(56) Blaðsíða 52
(57) Blaðsíða 53
(58) Blaðsíða 54
(59) Blaðsíða 55
(60) Blaðsíða 56
(61) Blaðsíða 57
(62) Blaðsíða 58
(63) Blaðsíða 59
(64) Blaðsíða 60
(65) Blaðsíða 61
(66) Blaðsíða 62
(67) Blaðsíða 63
(68) Blaðsíða 64
(69) Blaðsíða 65
(70) Blaðsíða 66
(71) Blaðsíða 67
(72) Blaðsíða 68
(73) Saurblað
(74) Saurblað
(75) Band
(76) Band
(77) Kjölur
(78) Framsnið
(79) Kvarði
(80) Litaspjald
(2) Band
(3) Saurblað
(4) Saurblað
(5) Blaðsíða 1
(6) Blaðsíða 2
(7) Blaðsíða 3
(8) Blaðsíða 4
(9) Blaðsíða 5
(10) Blaðsíða 6
(11) Blaðsíða 7
(12) Blaðsíða 8
(13) Blaðsíða 9
(14) Blaðsíða 10
(15) Blaðsíða 11
(16) Blaðsíða 12
(17) Blaðsíða 13
(18) Blaðsíða 14
(19) Blaðsíða 15
(20) Blaðsíða 16
(21) Blaðsíða 17
(22) Blaðsíða 18
(23) Blaðsíða 19
(24) Blaðsíða 20
(25) Blaðsíða 21
(26) Blaðsíða 22
(27) Blaðsíða 23
(28) Blaðsíða 24
(29) Blaðsíða 25
(30) Blaðsíða 26
(31) Blaðsíða 27
(32) Blaðsíða 28
(33) Blaðsíða 29
(34) Blaðsíða 30
(35) Blaðsíða 31
(36) Blaðsíða 32
(37) Blaðsíða 33
(38) Blaðsíða 34
(39) Blaðsíða 35
(40) Blaðsíða 36
(41) Blaðsíða 37
(42) Blaðsíða 38
(43) Blaðsíða 39
(44) Blaðsíða 40
(45) Blaðsíða 41
(46) Blaðsíða 42
(47) Blaðsíða 43
(48) Blaðsíða 44
(49) Blaðsíða 45
(50) Blaðsíða 46
(51) Blaðsíða 47
(52) Blaðsíða 48
(53) Blaðsíða 49
(54) Blaðsíða 50
(55) Blaðsíða 51
(56) Blaðsíða 52
(57) Blaðsíða 53
(58) Blaðsíða 54
(59) Blaðsíða 55
(60) Blaðsíða 56
(61) Blaðsíða 57
(62) Blaðsíða 58
(63) Blaðsíða 59
(64) Blaðsíða 60
(65) Blaðsíða 61
(66) Blaðsíða 62
(67) Blaðsíða 63
(68) Blaðsíða 64
(69) Blaðsíða 65
(70) Blaðsíða 66
(71) Blaðsíða 67
(72) Blaðsíða 68
(73) Saurblað
(74) Saurblað
(75) Band
(76) Band
(77) Kjölur
(78) Framsnið
(79) Kvarði
(80) Litaspjald