loading/hleð
(25) Blaðsíða 21 (25) Blaðsíða 21
Deildarstjórarnir í deildunum sem kenndar eru við raungreinar, byggingar, rafmagn og vélar gera vænt- anlega á öðrum stað í þessu riti grein fyrir fjölda brautskráðra, hver í sinni deild. Auk þeirra deilda sem nú var getið starfa við skól- ann meinatæknadeild og útgerðardeild. Þar er fjöldi brautskráðra eins og hér greinir: Ár Meinatæknar Útgerðart 1968 15 1969 11 1970 17 1971 16 1972 11 1973 22 1974 27 1975 15 1976 12 1977 20 10 1978 19 16 1979 15 24 1980 20 16 Samtals 220 66 Af framansögðu er ljóst að staða Tækniskóla ís- lands er bæði á framhaldsskólastigi og háskólastigi, og hann er einn eða einstakur í menntakerfinu. I sambandi við tækniskólahaldið er nauðsynlegt að gá til allra átta. Vegna tengslanna við atvinnulífið í landinu skipar menntamálaráðherra skólanefnd en um hlutverk hennar segir svo í reglugerð um skólann: ,,Við skólann starfar 5 manna skólanefnd, skipuð af menntamálaráðuneytinu til fjögurra ára í senn. Alþýðu- samband Islands, Landssamband iðnaðarmanna, Félag íslenskra iðnrekenda og Tæknifræðingafélag Islands til- nefna hvert um sig einn mann í nefndina og annan til vara en ráðuneytið skipar formann og varaformann nefndarinn- ar án tilnefningar. Rektor situr fundi skólanefndar. Hlut- verk skólanefndar er að vera rektor til ráðuneytis um mikil- væg atriði varðandi stjórnun skólans, fylgjast með erlendri reynslu og þróun á sviði tæknimenntunar, gera tillögur um stefnumörkun í málefnum skólans og stuðla að sem nánust- um tengslum hans við atvinnulífið. Hún gerir tillögur um sérstök inngönguskilyrði fyrir ákveðnar námsbrautir og kveður á um brautskráningu (sbr. 8. gr.). Heimilt er skóla- nefnd að fela iðnskóla, sveinsprófsnefnd eða öðrum hæfum aðila að prófa verkkunnáttu umsækjenda. Loks gerir nefndin tillögur um breytingar á reglugerð skólans. Formaður skal kveðja skólanefnd til fundar eigi sjaldnar en tvisvar á ári með þriggja daga fyrirvara. Auk þess skal skólanefnd sitja a.m.k. einn fund á ári með skólastjórn. Formaður skal einnig boða til fundar í nefndinni ef 2 nefndarmenn æskja þess. Alyktun fundar er því aðeins gild að 4 nefndarmenn eða varamenn þeirra sæki fund. Rektor leggur skrá um námsefni fyrir skólanefnd sem gengur úr skugga um að það sé í samræmi við almenna þróun á sviði tæknimenntunar. Skólanefnd skal stuðla að nánum tengslum tækniskólans við aðra skóla sem veita verk- og tæknimenntun.” Til að fylgjast með almennri þróun í tækniskóla- haldi er haft náið samband við þvílíka skóla erlendis, einkum í Danmörku. Auðsætt virðist að hlutverk Tækniskólans hafi vaxandi þýðingu fyrir lífið í þessu landi. Til þess að virkja náttúruöflin og nýta eiginleika landsins þarf einnig, og raunar fyrst af öllu, að virkja hæfileika ungra, duglegra og athafnafúsra manna. I sem allra stystu máli má segja að hlutverk Tækniskóla Islands sé að veita þess háttar menntun að leiða muni til aukinnar framleiðslu og framleiðni í landinu — til langframa og án þess að missa sjónar á náttúruvernd og náttúrubót — jafnframt því að auka lífsfyllingu einstaklinganna sem skólann sækja. Nóvember 1980. 21
(1) Band
(2) Band
(3) Saurblað
(4) Saurblað
(5) Blaðsíða 1
(6) Blaðsíða 2
(7) Blaðsíða 3
(8) Blaðsíða 4
(9) Blaðsíða 5
(10) Blaðsíða 6
(11) Blaðsíða 7
(12) Blaðsíða 8
(13) Blaðsíða 9
(14) Blaðsíða 10
(15) Blaðsíða 11
(16) Blaðsíða 12
(17) Blaðsíða 13
(18) Blaðsíða 14
(19) Blaðsíða 15
(20) Blaðsíða 16
(21) Blaðsíða 17
(22) Blaðsíða 18
(23) Blaðsíða 19
(24) Blaðsíða 20
(25) Blaðsíða 21
(26) Blaðsíða 22
(27) Blaðsíða 23
(28) Blaðsíða 24
(29) Blaðsíða 25
(30) Blaðsíða 26
(31) Blaðsíða 27
(32) Blaðsíða 28
(33) Blaðsíða 29
(34) Blaðsíða 30
(35) Blaðsíða 31
(36) Blaðsíða 32
(37) Blaðsíða 33
(38) Blaðsíða 34
(39) Blaðsíða 35
(40) Blaðsíða 36
(41) Blaðsíða 37
(42) Blaðsíða 38
(43) Blaðsíða 39
(44) Blaðsíða 40
(45) Blaðsíða 41
(46) Blaðsíða 42
(47) Blaðsíða 43
(48) Blaðsíða 44
(49) Blaðsíða 45
(50) Blaðsíða 46
(51) Blaðsíða 47
(52) Blaðsíða 48
(53) Blaðsíða 49
(54) Blaðsíða 50
(55) Blaðsíða 51
(56) Blaðsíða 52
(57) Blaðsíða 53
(58) Blaðsíða 54
(59) Blaðsíða 55
(60) Blaðsíða 56
(61) Blaðsíða 57
(62) Blaðsíða 58
(63) Blaðsíða 59
(64) Blaðsíða 60
(65) Blaðsíða 61
(66) Blaðsíða 62
(67) Blaðsíða 63
(68) Blaðsíða 64
(69) Blaðsíða 65
(70) Blaðsíða 66
(71) Blaðsíða 67
(72) Blaðsíða 68
(73) Saurblað
(74) Saurblað
(75) Band
(76) Band
(77) Kjölur
(78) Framsnið
(79) Kvarði
(80) Litaspjald


Tæknifræðingafélag Íslands

Höfundur
Ár
1981
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
76


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Tæknifræðingafélag Íslands
http://baekur.is/bok/d9cc0b99-039b-4775-97ed-e77a980aee8d

Tengja á þessa síðu: (25) Blaðsíða 21
http://baekur.is/bok/d9cc0b99-039b-4775-97ed-e77a980aee8d/0/25

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.