loading/hleð
(46) Blaðsíða 42 (46) Blaðsíða 42
gerir kleift, með t.d. vasaútstöðvum, að komast í samband við gagnadreifikerfi eins og X.25. Búast má við að kerfi tölvuframleiðendanna verði fyrst og fremst notuð í lokuðum kerfum einstakra fyrirtækja og stofnana, en kerfi eins og X.25 verði hið almenna net, þar sem allar al- mennar upplýsingar fara eftir og verða því allir tölvuframleiðendur að geta boðið tengingu við X.25. 1.2 Flutningur á upplýsingum (data) Ljóst er að stóraukið álag verður á núverandi símalínukerfi þar sem flutningur á upplýsingum, öðrum en venjulegu tali, mun vaxa verulega á komandi árum. Tvær lausnir hafa aðallega kom- ið til greina, en þær eru: a) Nýtt leiðslukerfi (COAXIAL) þar sem öll tæki tengd þessu leiðslukerfi hafa skynsemi til að þekkja úr upplýsingar, sem þeim eru ætl- aðar. b) Stórar tölvustýrðar miðstöðvar (Super Cont- rolers), þar sem byggt er á núverandi leiðslu- kerfi, en það aukið, þannig að hægt er að anna aukinni þörf vegna flutnings á upplýs- ingum (data). Líklegt er að báðar lausnirnar verði notaðar. Kostnaður við að leggja alveg nýtt leiðslukerfi er það mikill. Digital Equipment Corp., XEROX Corp., og Intel Corp., hafa nýverið kynnt net, er þeir vinna nú saman að þróun á. Net þetta bygg- ist á Coaxial hugmyndinni og kallast ETHER- NET og er búizt við því að IEEE (Institute of Electrical and Electronics Engineers) mæli með því að Ethernet verði gert að alþjóðlegum staðli. Nú er hægt að senda gögn eftir Ethernet með hraðanum 10 milj. bit/sek. Gert er ráð fyrir að í framtíðinni verði hægt að auka sendihraða upp í 500 milj. bit/sek. Þær upplýsingar, sem væntanleg kerfi koma til með að flytja, eru t.d. eftirfarandi: 1.2.1 í dag eru talsendingar á analog formi. Nú hefur tekizt samstaða hjá CCITT nefndinni um staðal er ákveður hvernig breyta skuli rödd mannsins yfir á digital form. Hægt er að fá rásir er geta komið í venjuleg talfæri og má búast við að allar sendingar á tali milli talfæris og símstöðvar verði á digital formi. 1.2.2 Sjónvarpsútsendingin hefur venjulega verið á analog formi. Vegna þess að sjónvarpsútsending krefst mikillar bandbreiddar (ca. 6 mHz) hefur ekki verið hægt að nota venjulega símalínu við dreifingu á sjónvarpsefni. Því hafa verið notaðar Coaxial línur (lokað kerfi) eða micro bylgja (opið kerfi). Hægt er að breyta sjónvarpsmynd yfir á digital form og þarfca. 64—100 miljónir bita/sek. fyrir svart/hvíta eða lita sendingu. Bell rannsóknarstofurnar hafa nú kynnt nýja tækni, er byggist á því að senda aðeins upplýsing- ar um breytingu á myndrömmum. (Hreyfimynd samanstendur af 50 römmum/sek.) Með þessari tækni er hægt að koma sendingu á sjónvarpsefni niður í 1.5 milljónir bita á sek. og með því að nota venjulega símalínu. 1.2.3 Gögn, svo sem: rafeindapóstur (Electronic Mail). Þá þarf ekki lengur að bera út póst, heldur verður hægt að fá fram upplýsingar á skjá og ef óskað er, útprentun á prentara. Nú býður t.d. ITT upp á slíka þjónustu í Bandaríkjunum. Kall- ast kerfið FAXPAK. Hægt er með sérstökum búnaði, að nota venjulegt símtæki til þess að komast í samband við FAXPAK. Er þá gefið upp reiknings númer sendanda, númer viðtakanda og forgangsgildi og að lokum skeytið sjálft. Mörg stórfyrirtæki eru nú farin að taka þessa þjónustu í sína þágu. 1.2.4 Fjarfundahöld. Ford Aerospace & Commun- ication hefur sett slíkt kerfi upp hjá sér, en í dag, eru slík kerfi all dýr. Kerfið byggist á því að í mörgum mismunandi fundarherbergjum er kom- ið fyrir myndavélum og sýningartjöldum. Geta þá fundarmenn í herbergi A (París) séð fundar- menn í herbergi B (New York) og öfugt. Mynda- vélin beinist að þeim fundarmanni er hefur hæst, en ef enginn hefur talað í 15 sek. er sýnd yfirlits- mynd affundarherberginu. Hægt er að senda á milli fundarstaða, línurit og töflur og birtast þær þá á sjónvarpsskjá þess, sem þær á að fá og getur hann tekið afrit af þeim. FAC telur að hægt sé með þessari tækni, að ná fram miklum sparnaði, t.d. í fargjöldum, máltíð- um, hótelkostnaði og síðast en ekki sízt, tíma. 1.2.5 Rafeindadagblöð (Electronic Newspaper). Hægt er að fá upplýsingar um nýjustu fréttir á tölvuskjá í heimahúsi. Brezka VIEWDATA kerf- ið er nú búið að vera í gangi í nokkur ár og reynsla af því er allgóð. Þar er nú hægt að fá aðgang að hundruðum þúsunda blaðsíðna, er geymdar eru í tölvubanka. Hægt er með einfaldri viðbót (deco- der) auk lykilborðs, að nota venjulegt sjónvarps- tæki sem útstöð og gera fyrirspurnir um, t.d. veðurfréttir, upplýsingar um umferð, nýjustu íþróttafréttir, láta lesa sögur fyrir börn og fleira og fleira. Hægt er að taka fjölmörg önnur dæmi um upp- lýsingar, sem leiðslukerfi framtíðarinnar kemur til með að flytja, en ég læt þó hér staðar numið. Lokaorð Með tilkomu tölva — tölvuneta með útstöðvum á hverju heimili, er hægt að gjörbreyta heiminum.
(1) Band
(2) Band
(3) Saurblað
(4) Saurblað
(5) Blaðsíða 1
(6) Blaðsíða 2
(7) Blaðsíða 3
(8) Blaðsíða 4
(9) Blaðsíða 5
(10) Blaðsíða 6
(11) Blaðsíða 7
(12) Blaðsíða 8
(13) Blaðsíða 9
(14) Blaðsíða 10
(15) Blaðsíða 11
(16) Blaðsíða 12
(17) Blaðsíða 13
(18) Blaðsíða 14
(19) Blaðsíða 15
(20) Blaðsíða 16
(21) Blaðsíða 17
(22) Blaðsíða 18
(23) Blaðsíða 19
(24) Blaðsíða 20
(25) Blaðsíða 21
(26) Blaðsíða 22
(27) Blaðsíða 23
(28) Blaðsíða 24
(29) Blaðsíða 25
(30) Blaðsíða 26
(31) Blaðsíða 27
(32) Blaðsíða 28
(33) Blaðsíða 29
(34) Blaðsíða 30
(35) Blaðsíða 31
(36) Blaðsíða 32
(37) Blaðsíða 33
(38) Blaðsíða 34
(39) Blaðsíða 35
(40) Blaðsíða 36
(41) Blaðsíða 37
(42) Blaðsíða 38
(43) Blaðsíða 39
(44) Blaðsíða 40
(45) Blaðsíða 41
(46) Blaðsíða 42
(47) Blaðsíða 43
(48) Blaðsíða 44
(49) Blaðsíða 45
(50) Blaðsíða 46
(51) Blaðsíða 47
(52) Blaðsíða 48
(53) Blaðsíða 49
(54) Blaðsíða 50
(55) Blaðsíða 51
(56) Blaðsíða 52
(57) Blaðsíða 53
(58) Blaðsíða 54
(59) Blaðsíða 55
(60) Blaðsíða 56
(61) Blaðsíða 57
(62) Blaðsíða 58
(63) Blaðsíða 59
(64) Blaðsíða 60
(65) Blaðsíða 61
(66) Blaðsíða 62
(67) Blaðsíða 63
(68) Blaðsíða 64
(69) Blaðsíða 65
(70) Blaðsíða 66
(71) Blaðsíða 67
(72) Blaðsíða 68
(73) Saurblað
(74) Saurblað
(75) Band
(76) Band
(77) Kjölur
(78) Framsnið
(79) Kvarði
(80) Litaspjald


Tæknifræðingafélag Íslands

Höfundur
Ár
1981
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
76


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Tæknifræðingafélag Íslands
http://baekur.is/bok/d9cc0b99-039b-4775-97ed-e77a980aee8d

Tengja á þessa síðu: (46) Blaðsíða 42
http://baekur.is/bok/d9cc0b99-039b-4775-97ed-e77a980aee8d/0/46

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.