loading/hleð
(8) Blaðsíða 6 (8) Blaðsíða 6
I. NÝLENDUTÍMABILIÐ Fyrsti EvrópumaSurinn, sem hlotið hafði listmenntun og settist að í Ameríku, var Hendrik Conturier. Hann tók bólfestu í New York, er þó hét Nýja Amsterdam, einhverntíman ó óratugnum eftir 1660. Hann hafði stundað listnóm sitt aðallega í borginni Leiden ó Hollandi. Margir listmólarar í Evrópu fóru að dœmi Conturiers ncestu kynslóð- irnar ó eftir og fluttust vestur um haf. En þegar komið var rétt fram yfir fyrri helming 18. aldarinnar bar orðið meir ó listmólurum, sem fœddir voru og uppaldir í Ameríku. JOHN SINGLETON COPLEY (fœddur í Boston, Massachusetts órið 1738, lézt í Lundúnum órið 1815). Copley var fyrsti snillingurinn, sem fceddur er ó amerískri grund. Hann mó teljast með öllu sjólfmentaður í list sinni, en lókst engu að síður að hefja hina hefðbundnu mólun mannamynda ó nýlendutímabilinu upp ó œðsta svið stíls og innsýni. Hann starfaði í Boston fram til órsins 1775, en bjó síðan lengi og starfaði í Lundúnum. 1. Frú Roger Morris. (Ungfrú Mary Philipse). (Eigandi: Lawrence A. Fleischman). Myndina mólaði listamaðurinn í New York, er hann var þar í stuttri heimsókn, órið 1771 -1772. Myndin ber glöggt vitni um hinn einfalda og stranga stíl mólarans, sem jafnframt einkennist af gegnsœrri hreinskilni, laus við öll óhrif tilbeiðslu eða smjaðurs. Myndin ber jafnframt gott vitni um óhrifa- mikla túlkun mólarans ó persónuleika viðfangsefnisins. Fyrirsœtan var dóttir eins af auðugustu og kunnustu borgurum New Yorkborgar ó nýlendutímabilinu. George Washington forseti var einn af aðdóendum hennar, en hún giftist hins vegar Roger Morris, ofursta, sem byggði henni skrauthýsi eitt mikið, er nefndist Morris-Jumel Mansion og er nú eitt af sögufrœgustu húsunum í New York. Morrisfjölskyldan fylgdi Englendingum að mólum og fluttist til Englands eftir frelsisstríð nýlendnanna. 2. Negrahöfuð. (Eigandi: Listasafnið í Detroit). Myndin er af manni, sem var einn af þjónum fjölskyldu mólarans og í miklu uppóhaldi hjó þeim. Ekki er erfitt að sjó að þessi maður hefur varla verið mikið menntaður (líklegast ólœs), en engu síður karlmannlegur, glaðlyndur, djarfur og alúðlegur. Þessi mynd segir mikið um eiginleika einnar mannssólar, og það í mjög samþjöppuðu formi. BENJAMIN WEST (1738—1820). West var af cettum kvekara og bcendafólks í Fíla- delfíu. Hann fór fyrstur amerískra mólara til listnóms ó Italíu (1759), og fyrstur þeirra öðlaðist hann heimsfrcegð. Hann settist aS í Lundúnum (órið 1763), hlaut þann heiður að móla fyrir Georg III Bretakonung, og órið 1792 tók hann við af Reynolds sem forseti konunglegu Akademíunnar. 3. Skírn Jesú Krists. (Teikning, 1813). Eigandi: Listasafnið í Detroit). Teikning þessi er gott dœmi um leikni Wests í kompósisjón og meðferð flókinna líkinga. 6


Málverkasýning

Höfundur
Ár
1959
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
32


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Málverkasýning
http://baekur.is/bok/f2c0bc3e-4028-44f1-8f20-1ea36018eff5

Tengja á þessa síðu: (8) Blaðsíða 6
http://baekur.is/bok/f2c0bc3e-4028-44f1-8f20-1ea36018eff5/0/8

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.