loading/hleð
(11) Blaðsíða 11 (11) Blaðsíða 11
Fríkirkjuprestur Hjörtur Magni og eiginkona hans Ebba Margrét. trúfélagi þ.e.a.s. ríkiskirkjunni og þangað runnu trúfé- lagsgjöldin jafnt og þétt. Hvað olli? Jú það hafði verið gefin út auglýsing. Fjármálaráðherra í samráði við kirkjumálaráðuneyt- ið birti litla auglýsingu sem sárafáir tóku eftir en olli aftur á móti straumhvörfum í trúfélagaskráningu í landinu. Hún fól það í sér að ef Fríkirkjufólk flutti lög- heimili sitt út ákveðin landfræðileg mörk þá var það sjálfkrafa tekið af skrá síns trúfélags en sett í þá land- fræðilega afmörkuðu þjóðkirkjusókn sem það flutti í. Nú ef fólkið flutti síðan til baka í sitt gamla hverfi þá var það ekki aftur skráð í Fríkirkjuna heldur í tilheyrandi þjóðkirkjusókn. Ljóst er að þjóðkirkju- stofnunin hagnaðist heilmikið á þessu. Líklegt er að í dag myndi slíkur gjörningur flokkast undir mannrétt- indabrot. Með þessum „sjálfvirka hætti“ voru þús- undir teknar af skrá Fríkirkjunnar og enn þann dag í dag eru þeir fjölmargir sem telja sig vera á skrá Frí- kirkjunnar en eru það ekki í raun. Þessu var ekki breytt fyrir en árið 1991 eftir mikinn þrýsting frá Frí- kirkjufólki. Ástæðan sem gefin hefur verið fýrir þessari auglýsingu er sú að það þurfti að finna einhverja leið fyrir ríkiskirkjuna til að skipta Reykjavík upp í land- fræðilega afmarkaðar sóknir. Slík sóknarmörk eru leifar af stjórnunar- og valda- kerfi miðaldakirkjunnar og hafa í raun lítið sem ekk- ert með kristni eða trú að gera. Þau eiga ekki leng- ur við í nútíma borgarsamfélagi og víða í evrópskum borgum hafa þau verið aflögð fyrir löngu. A.m.k. eru það einmitt sjálfir prestar þjóðkirkjunnar sem í sínum störfum fara fremstir í því að vanvirða og rjúfa þau sóknarmörk. Framtíðarfyrirkomulag trúmála á Islandi Kirkjumálaráðherra Björn Bjarnason segir í loka- orðum sínum „Við upphaf 21. aldar er ekki síður mikil gerjun í íslensku þjóðlífi en var fyrir 100 árum og nú ekki síður en þá hafa frjálslynd sjónarmið um minni hlut ríkisvaldsins í lífi þjóðarinnar fengið braut- argengi. Enginn vafi er á því, að eftir eina öld verður litið til breytinga samtímans til aukins frjálsræðis með jafnmiklu stolti og litið er til þess, sem gerðist fyrir 100 árum. Ég óska Fríkirkjusöfnuðinum í Reykjavík til hamingju á þessum tímamótum, fullviss um, að hann mun enn um langan aldur setja sterkan svip á trúarlíf þjóðarinnar". í dag úti í hinum stóra heimi er kristni mjög víða í miklum blóma og í örum vexti. Þetta á við í flestum Trúarskrefið sem þjóðkirkjustofn- unin hefur nú ekki næga trú til að taka, tók Fríkirkjan í Reykjavík fyr- ir meira en hundrað árum. Það á ekki að refsa henni fyrir það eins og nú er gert. heimsálfum nema í Evrópu. I Evrópu hafa ríkiskirkjur haft slævandi og deyfandi áhrif á trú fólks enda hefur fækkað í þeim jafnt og stöðugt alla síðustu öld. Ná- lægð ríkiskirkjustofnanna við veraldlega valdið, þátt- taka þeirra í styrjöldum og ýmiskonar kúgunaratferli í gegnum aldirnar hefur rænt ríkiskirkjurnar öllum trúverðugleika og vægi í hugum fólks. Því eru ríkis- kirkjur á hröðu undanhaldi víðast hvar í Evrópu og almenningur hefur mikla fýrirvara gagnvart kirkju- stofnunum og þeirra hefðum. Undanfarin ár hefur verið unnið að aðgreiningu kirkjustofnunarinnar frá íslenska ríkinu. Það er í fullu samræmi við eðlilega lýðræðisþróun og framgang kristinnar kirkju í heiminum í dag. Stofnunin setur traust sitt á ríkið í stað þess að treysta á verkun Guðs anda í söfn- uðunum og í samfélaginu. En í dag halda forsvarsmenn þjóðkirkjunnar því nú fram að hér á landi sé alls enga ríkiskirkju að finna lengur. Því er einnig haldið fram af forsvarsmönnum þjóðkirkjunnar að hún sé sem hvert annað trúfélag og að nú sé svo til alveg skilið á milli ríkis og kirkju og að öll kristin trúfélög sitji nú við sama borð. En sá veruleiki sem við blasir er allt annar. íslenska þjóðkirkjustofnunin gerði samning við ríkið um hinn kirkjusögulega arf Islendinga. Milljarðar króna streyma því inn í stofnunina ár hvert auk þeirra milljarða sem stofnunin fær árlega sem trúfélagsgjöld. Þjóðkirkju- stofnunin sem þannig hvílir í faðmi ríkisins og er á framfærslu ríkisins meinar nú Fríkirkjunni og öðrum frjálsum kristnum trúfélögum aðgang að sínum kirkju- sögulega arfi og hagar sér því nákvæmlega eins og sú miðalda valdastofnun sem Marteinn Lúter barðist svo ötullega gegn á sínum tíma. Stofnunin setur traust sitt á ríkið og veraldlega valdið í stað þess að treysta á verkun Guðs anda í söfnuðunum og í samfélaginu. Samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins. Fríkirkjan í Reykjavík hefur lifað og starfað sem evangelísk lútersk kirkja í rúma öld. í 62. gr. stjórnar- skrárinnar segir „Hin evangelíska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á [slandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda." Fríkirkjan í Reykjavík hefur verið evangelísk lút- ersk frá upphafi og aldrei ætlað sér að vera neitt annað. Hún fer ekki fram á forréttindi en hún vænt- ir þess að fá að njóta jafnræðis og lýðræðis í anda kristinnar boðunar og íslenskrar stjórnarskrár. Framhald á næstu síðu. Fríkirkjan í Reykjavík 11


Fríkirkjan í Reykjavík

Ár
2004
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
32


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Fríkirkjan í Reykjavík
http://baekur.is/bok/f4b3a6a4-737c-4f5c-8fd7-3a4f60be73d8

Tengja á þessa síðu: (11) Blaðsíða 11
http://baekur.is/bok/f4b3a6a4-737c-4f5c-8fd7-3a4f60be73d8/0/11

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.