(2) Blaðsíða 2
Fríkirkjuprestur ásamt eiginkonu sinni Ebbu Margréti Magnúsdóttur og börnum; (í aldursröð) Aroni Þór, Ágústu Ebbu, Magnúsi Jóhanni og Rut Rebekku.
Hundurinn heitir Indý.
Mikil og
fólks
stöðug fjölgun Fríkirkju-
og kirkjulegra athafna
Undanfarin 6 ár hef ég boðið vel á annað þús-
und nýja félaga velkomna í Fríkirkjuna í
Reykjavík. Þar er um að ræða fólk á öllum
aldri og úr ólíkum sviðum mannlífsins. Mikið er um
að ungt fólk sem er meðvitað um trúfélagsskráningu
sína skrái sig í söfnuðinn og fer því ungum fjölskyld-
um fjölgandi og er það mjög gleðilegt.
Líklegast er Fríkirkjan í Reykjavík það trúfélag
sem er í hvað örustum vexti allra trúfélaga á landinu.
En einnig vaxa aðrir lúterskir fríkirkjusöfnuðir nokk-
uð ört og líklegast munu þeir saman ná að telja um
20.000 manns innan örfárra ára.
Vorið 1998 þegar ég tók við starfi Fríkirkjuprests
hafði safnaðarfélögum fækkað um nokkurn tíma og
töldust þeir þá vera um 4.850. í dag eru safnaðarfé-
lagar um 6.500 þegar allir eru taldir. Er Fríkirkjan í
Reykjavík nú stærst allra frjálsra trúfélaga í landinu
og er óháð landfræðilegum mörkum.
Leita þarf 25 ár aftur í tímann til að finna
sambærilegan fjölda athafna.
Leita þarf aftur til fyrri hluta síðustu aldar til
að finna sambærilegan vöxt safnaðarins.
Kirkjulegum athöfnum sem Fríkirkjuprestur er
fenginn til að framkvæma hefur fjölgað svo um mun-
ar. Fjölgunin á athöfnum jafnt í gleði sem í sorg hef-
ur verið stöðug ár frá ári allt frá því að ég tók við
störfum. En skírnir, brúðkaup og útfarir hafa ekki
verið jafn margar í aldarfjórðung, eða allt frá því þeg-
ar sr. Þorsteinn Björnsson þjónaði söfnuðinum. En í
þá daga voru mun færri þjóðkirkjuprestar starfandi í
Reykjavík og þá höfðu einnig mun færri kirkjur ver-
ið byggðar í höfuðborginni og nærliggjandi byggðar-
lögum.
í dag fara athafnirnar fram bæði í Fríkirkjunni við
Tjörnina sem og annars staðar t.d. í kapellu safnað-
arins í Safnaðarheimilinu við Laufásveg, í öðrum
kirkjum eða á heimilum fólks.
Vitundarvakning þrátt fyrir mismunun.
Þegar hafður er í huga sá aðstöðumunur sem Frí-
kirkjan í Reykjavík býr við í samanburði við þá ríkis-
kirkjusöfnuði sem eru allt í kring þá er ekki annað
hægt en að tala um vitundarvakningu. Fólk er að
vakna til vitundar um að það á sjálft að ráðstafa sín-
• Fríkirkjan í Reykjavík hefur einungis bol-
magn til að greiða einum presti laun af
rekstrarfé safnaðarins.
• Fríkirkjunni í Reykjavík er meinaður að-
gangur að miklum sjóðum sem liggja á
milli ríkis og kirkju.
• Fríkirkjan í Reykjavík getur haft 2-4
starfsmenn í hlutastörfum.
• Fríkirkjan í Reykjavík safnar ekki sjóðum.
um eigin trúfélagsgjöldum til þess trúfélags sem það
sjálft velur samkvæmt sinni samvisku.trú og réttlæt-
iskennd. Trúfélagsskráning er val hvers og eins og
fólk þarf að nota það val. Sú ógeðfellda tilhugsun að
trúfélagsgjöld fólks séu notuð til að mismuna og við-
halda ranglæti ýtir við mörgum og fær þá til að end-
urskoða sína trúfélagsskráningu. Slík vitundarvakning
er í raun mjög í anda evangelískrar lúterskrar trúar.
Hjörtur Magni Jóhannsson
• Þjóðkirkjusöfnuðirnir í nágrenninu hafa
tvo ríkislaunaða embættismenn á sínum
snærum. Þar að auki hafa þeir aðgang að
ríkislaunuðum afleysingarprestum eftir
þörfum.
• Þjóðkirkjusöfnuðirnir hafa aðgang að
sjóðum upp á hundruðir milljóna króna
auk þess að hafa ýmiskonar forgangsað-
gengi að stofnunum og þjónustu.
• Meðal annars vegna þess að þjóðkirkju-
söfnuðirnir þurfa ekki að greiða prestum
sínum laun eða standa skil á ýmsum öðr-
um kostnaði sem Fríkirkjan þarf að gera,
þá geta þeir haft 10 — 14 starfsmenn í
heilum eða hluta stöðum.
• Hinsvegar geta þjóðkirkjusöfnuðirnir
safnað hundruð milljónum króna.
2
Fríkirkjan í Reykjavík
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Kvarði
(34) Litaspjald
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Kvarði
(34) Litaspjald