
(11) Blaðsíða 9
9
framt eru skyldur hvers meðlims meiri og
starfssvið hans víðtækara. Hann er bund-
inn við ákveðna stefnuskrá, þótt hún sje
enn sem komið er heldur losaraleg og ekki
laus við froðumælgi.
Nauðsyn þessara samtaka eru bersýnileg
öllum hugsandi alþýðumönnum. Betri og
varanleg lífsþægindi fá þeir aldrei frá kapí-
talistunum. t*að er ekki nema mannlegt að
þeir haldi því, sem þeir hafa fengið. Alþýða
manna verður þvi að skilja það, að þegar
hin vægðarlausa samkepni, »barátta allra
gegn öllum« er afnumin, er fyrst hægt að
hagnýta öll þau auðæfi náttúrunnar, sem
nú eru ónotuð. Með betra og hagsýnna
íyrirkomulagi, skipulagi á framleiðslunni er
hægt að b)'ggja járnbrautir, gera áveitur og
annað sem okkur vantar svo tilfinnanlega
hjer á land, en sem ekki er gert, vegna
þess að fjármagnið er i höndum einstakra
manna og alt er miðað við að það borgi
sig »en ekkert tillit er tekið til« nauðsynja
og þarfa fjöldans. Nú er alt metið á »lands-
vísu«, gáfur og manngildi.
Það er bein skylda hvers einasta vinn-
andi manns að styrkja af fremsta megni
samtök alþýðunnar hjer á landi, stjettarbar-
áttan er hafin gegn stjetíaríkinu. Þótt ein-