(14) Blaðsíða 12
12
vindi. Egyfíar, Indverjar, Tyrkir og írar
hristu hlekkina. »Hin kúgaða stjettcc er að
vakna til baráttu — hlífðarlausrar baráttu
gegn auðvaldi og hervaldi.
Hreyfing verkalýðsins er komin til þessa
lands. Þeir menn sem öld eftir öld voru
kúgaðir, af dönsku konungs og kaupmanna-
valdi eru að finna að hjer er í raun rjettri
aðeins breytt um nöfn, islenskir húsbændur
hafa í stað danskra tekið þjóðina heljar-
tökum. — Verkalýðurinn á íslandi hefir
sofið, en er nú að vakna.
»Fjelag Ungra Kommunista«, sem ennþá
telur táa meðlimi vill með þessu fyrsta riti
sinu leggja sinn skerf í starfið. Það skorar
á alla unga menn af alþýðustjett, hvort
heldur eru til sjávar eða sveitar að taka
höndum saman. Hjer er tækifæri fjelagar
til að vinna — til að fórna kröftum sínum.
Það er ætlun vor að stofnað sje í hverju
kauptúni landsins fjelag og þau myndi siðan
öll »Samband Ungra Kommunista«. F. U.
K. i Reykjavik er deild úr »Internationale
Ungra Kommunista« (Alþjóðasamband U.
K.), sem telur nú miljónir meðlima og
starfar i nánu sambandi við Kommunista
Internationale (3. Alþjóðasamband Jafnaðar-
manna) í Moskva.