loading/hleð
(8) Blaðsíða 6 (8) Blaðsíða 6
6 smáborgaralegu kaupfjelög bænda eöa sam- tök embættismanna, í sjer neinn tilgang til breytingar á stjórn framleiðslunnar.*) Þau eru varnarsamtök gegn okri og eru því mikilsverð, ef þeim er stjórnað af þeim mönnum, sem kunna að ota þeim fram gegn samtökum kaupmanna um vöruverð. Svipuðu máli er að gegna um verkamanna- eða iðnfjelög (Trade-Unions, Gewerk- schaften). Þau eru með tvennu móti, aktiv (virk) eða passiv (óvirk). Passiv (óvirk) eða hlutlaus má nefna þau verkamannafjelög, sem aðeins byggja á hinum smáborgaralega hugsunarhætti, að draga sjer sem mest án þess að hrófla við kapitalistiska kerfinu. Þau gera ekki ráð tyrir neinni breytingu, eru jafnvel stundum undir áhrifum einhvers sjerstaks trúar- bragðaflokks, t. d. kristileg** verkamanna- og iðnfjelög. Slik fjelög eru oft varnarsam- tök, en oftastnær eru þau stofnuð til að girða fyrir að verkamenn komist undir bein áhrif þeirra manna, sem gagnrýna skipun þjóðfélagsins. Óbreytt eru þau skað- leg verkamönnum, því þar er reynt að bola ') Hjer er vitanlega átt við framleiðslu i stórum stií, svó sem stóriðnað, a íslandi fiskiveiðar og annað skj’lt. **) Pekkjast raunar ekki hjer.


Ávarp til ungra alþýðumanna

Ár
1923
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
16


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Ávarp til ungra alþýðumanna
http://baekur.is/bok/fe1acbdc-9b8f-4555-a5aa-115d92a9c53c

Tengja á þessa síðu: (8) Blaðsíða 6
http://baekur.is/bok/fe1acbdc-9b8f-4555-a5aa-115d92a9c53c/0/8

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.